Heima er bezt - 01.11.1971, Page 14

Heima er bezt - 01.11.1971, Page 14
Þættir um lífið í Laxá, Mývatni og fleiri vötnum eftir Helga Hallgrímsson safnvörð ÞÖRUNGAR II I byrjun þessara þátta um veröld vatnsins, var greint frá nokkrum aðalflokkum þeirra vatnajurta, sem einu nafni kallast þörungar eða ölgtir, þ. e. bláþörungum, kísilþörung- urn og grænþörungum í þrengri merkingu. í þessum þætti verður rætt um nokkra þörungaflokka, sem tilhéyra grænþörung- um í víðri merkingu, svo og rauðþörunga og skoruþörunga. GRÆNÞÖRUNGAR Skrautþörungar (Desmidaceae) er flokkur mjög sérkennilegra, smásærra þörunga, sem teljast til grænþörunganna. Skrautþör- ungarnir eru flestir einfrumungar, en frum- ur þeirra eru nær alltaf skiptar í tvo ná- kvæmlega einslaga parta, sem geta annars haft mjög mismunandi lögun, og eru oft ákaflega formfagrar. Þeir eru algengir í ýmiss konar tjörnum, pollum og vötnum, helzt með hreinu og tæru vatni, en forð- ast næringarrík vötn eða menguð. Eru þeir stundum notaðir sem mælikvarði á hreinleika vatnsins. Magn þeirra er þó Kransþörungurinn. (Nitella). stundum svo mikið, að vatnið verður grænt af þeim sökum, og er þá oftast um að ræða fáar tegundir, en annars er oftast fjöldi tegunda saman á hverjum stað. Hver tegund hefur sitt sérstaka lag, sem oft er ótrúlega flókið og furðulegt, og hafa skrautþörungar því, frá tilkomu smásjár- innar vakið mikla athygli smásj árrýnenda, og fyrir bragðið eru tegundir þeirra til- tölulega vel þekktar, þrátt fyrir hinn mikla fjölda, en talið er, að um 4 þús. teg- undir skrautþörunga séu til á jörðunni. — Gamlar flórubækur með lituðum teikn- ingum af þessum þörungum, eru hreinustu listaverk, þótt þær hafi ekki gert annað en líkja eftir náttúrunni. Hérlendis eru þekktar um 60 tegundir skrautþörunga, en þó má ætla, að þær séu a. m. k. helmingi fleiri. Einna algengastar eru tegundir af ættkvíslinni Closterium, sem líkjast mánasigð. I Mývatni eru skrautþörungar lítið á- berandi, vegna þess hve vatnið er nxring- arríkt, en hins vegar töluvert af þeim í ýmsum nágrannavötnum, svo sem Más- vatni og Sandvatni. Kransþörungar (Charales) eru stórvaxn- 394 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.