Heima er bezt - 01.11.1971, Page 17

Heima er bezt - 01.11.1971, Page 17
HFXGI GÍSLASON, HRAPPSSTÖÐUM: agar ur mínu Ferðaþattur, frá Skagafiréi til Vopnafjarðar að var vorið 1917, sem ég útskrifaðist frá bún- aðarskólanum á Hólum í Hjaltadal, þá rétt tví- tugur að aldri. Með mér útskrifaðist piltur úr Vopnafirði, Marteinn Steindórsson, á líkum aldri og ég. Steindór Jóhannesson, faðir Marteins, var verzlunarmaður á Vopnafirði við „Framtíðina“, sem var verzlunarfélag, stofnað á Seyðisfirði, með útibúi á Vopnafirði og ef til vill víðar. Steindór Jóhannesson var mikilhæfur maður og hestamaður svo af bar. Hann þurfti að hafa mikil ferðlög fyrir verzlunina, markaðs- ferðir o. fl. Hann þurfti því mikið á hestum að halda, enda átti hann þá oft marga. Haustið 1916 hafði Stein- dór keypt 3 hesta í Skagafirði hjá kunningjum sínum og kannske frændum, því hann var, að ég held, ættaður af þeim slóðum og víða þekktur um sveitir Norður- lands. Steindór hafði svo kornið hestunum í vetrarfóð- ur í Skagafirði til vors 1917. Um veturinn skrifaði Stein- dór Marteini syni sínum og lagði fyrir hann að koma með hestana heim til Vopnafjarðar, þegar hann væri búinn í skólanum. í bréfi sínu skipulagði Steindór ferð- ina af hinni mestu snilld, sagði fyrir urn gististaði og yfirleitt alla tilhögun ferðarinnar í smáatriðum. Nú víkur sögunni til mín. Þegar ég heyrði um þessa fyrir- huguðu ferð Marteins á hestum til Vopnafjarðar, þá vaknaði sterk löngun hjá mér til að vera með honum. En hvernig átti það fram að ganga? Fangaráðið varð það að fara til Sigurðar skólastjóra. Sagði ég honum frá þessu öllu og stóð þá ekki á úrlausn þessara mála hjá honum, því auk þess að vera búnaðarfrömuður, var hann líka mannkostamaður mikill. Ég hafði hugsað mér að kaupa taminn brúkunarhest, ekki dýran gæð- ing, en hest, sem væri traustur ferðahestur. Skólastjóri vissi um rauðskjóttan hest, sem var til sölu á Lóni í Viðvíkursveit, keypti hann fyrir mig og ábyrgðist greiðslu til næsta hausts, því alveg var ég peningalaus eins og á stóð, þar sem allir peningar, sem ég hafði, höfðu farið í skólakostnaðinn. Hesturinn til ferðarinnar var nú fenginn, og kostaði hann 380 kr. Þá vakti skólastjóri máls á því, hvort mig langaði ekki til að fá reiðhestsefni, því í Skagafirði væri víða óbrigðult reiðhestakyn, svo sem víða væri kunn- ugt, og væri gott fyrir mig að eignast góðan reiðhest, sem væri til frambúðar. A þessum tíma var hesturinn enn eina farartækið á landi og mest á hann treyst, eins og verið hafði frá upphafi Islandsbyggðar. Það er svo ekki að orðlengja það, nema það ræðst svo, að ég kaupi tryppi af góðu kyni. Um veturinn hafði verið í skólanum, í yngri deild, piltur úr Blönduhlíð, Magnús sonur Gisla Björns- sonar á Ökrum. Hann sagði, að faðir sinn muni geta selt brúnan fola 4 vetra af ágætu hestakyni, sem margir úrvalshestar væru af komnir. Það varð svo úr, að ég kaupi þennan fola. Hann kostaði 400 kr. og átti ég að borga hann með haustinu, eins og þann skjótta. Nú var þetta orðið allmikið fyrirtæki og hestaskuldin orðin 780 kr. Það var svimandi há upphæð í þá daga. Nú, til þess að hafa eitthvað að standa á, og til þess að minnka áhættu Sigurðar skólastjóra, þá bað ég Martein, tilvon- andi ferðafélaga minn, að tala í síma við föður sinn, Steindór verzlunarmann, og biðja hann að fara þess á leit við verzlunina, að hún greiddi fyrir mig þessa upp- hæð á komandi hausti gegn loforði um innlegg í verzl- unina síðar. Svarið frá Steindór var jákvætt, og það með, að hann fagnaði því, að við værum nú tveir á ferð með fleiri hesta, sem alltaf væri betra þegar um snjó og ófærð á heiðum væri að ræða. Þessu fagnaði ég meira en orð fá lýst en kom ekki á óvart, því Steindór Jóhannesson var þekktur að alls konar fyrirgreiðslu í verzlunarsökum. Skólanum var sagt upp um mánaðamótin apríl og maí, og hófst þá strax undirbúningur ferðarinnar. Mar- teinn þurfti að ná saman gæðingum Steindórs, sem ekki voru allir á sama stað. Ég þurfti að sækja þann skjótta niður í Lón, en þann brúna frá Ökrum tókum við í leiðinni til heiðarinnar. Reiðtygi keypti ég af Pálma Einarssyni, síðar landnámsstjóra, sem þá var í yngri deild skólans. Hafði hann komið ríðandi á afsláttar- hesti vestan úr Dalasýslu haustið áður, og þess vegna voru reiðtygin til sölu. Þetta hefur nú kannske verið sama sem gjöf, því reiðtygin kostuðu örfáar krónur, Heima er bezt 397

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.