Heima er bezt - 01.11.1971, Page 18

Heima er bezt - 01.11.1971, Page 18
að mig minnir. Marteinn hafði reiðing á einum sínum hesti og fengum við hjá skólastjóra hey í pokum og rúg- miölsslatta, sem við fluttum með okkur, því frétzt hafði, að heylítið væri í Öxnadalnum. Ekki man ég mánaðardaginn, sem við lögðum af stað frá Hólum, en hefur að öllum líkindum verið 4.-9. maí. Góðviðri var þessa daga en ekki mikil leysing. Jörð mikið til auð í byggð, en þiljugaddur á heiðum. Nú lögðum við af stað frá Hólum snemma dags yfir Hrís- háls og fram Blönduhlíð. Þá skein við sólu Skagafjörð- ur, innan útvarða héraðsins, Tindastóls, Mælifellshnjúks og Glóðafeykis. Mér gafst því miður aldrei tækifæri til þess síðar á ævi, að sjá aftur þetta fagra hérað. Við gistum um nóttina á Silfrastöðum og lögðum þaðan á Öxnadalsheiði daginn eftir. Á heiðinni var þæfings- færi, en ekki ófærð. Vestan í heiðinni kom það atvik fyrir, er við fórum upp með gili einu, að sá brúni minn fór eitthvað út úr slóðinni, og sprakk þá undan honum snjóhengja og hrapaði hann þar niður. Nú flaug það gegnum huga minn, að ég hefði keypt hann til þess að farast þarna í snjóflóði. En þegar við fórum að huga niður í gilið, þá sáum við þann brúna, í einu mjall- kófi, hlaupa upp gilið og upp úr því nokkru ofar. Allt gekk svo vel yfir heiðina, en við fórum hægt og vorum nokkuð lengi, komumst í Bakkasel í Öxnadal um kvöld- ið. Þar var víst heylítið, eins og frétzt hafði, og komu sér nú vel heypokarnir frá Hólum, sem við höfðum meðferðis. Að öðru leyti var þar mikil gestrisni og alit fúslega veitt, sem við þurftum, en nafni búanda er ég búinn að gleyma. Daginn eftir héldum við svo niður hinn vinalega dal, Öxnadalinn, með sínum séreinkenn- um, Hraundranga á vinstri hönd og hálfan dalinn hól- um fylltan. Og svo sem leið liggur út Þelamörk og inn Krældingahlíð til Akureyrar. Nú vorum við komnir til Akureyrar, en þar hafði Steindór lagt fyrir Martein son sinn að vera um kyrrt og hvíla vel hestana. Það voru líka góð skilyrði til þess á Akureyri, og það má undrast nú, hve snemma var þar fullkominn gististaður fyrir ferðamenn. Þessi gististaður var „Caroline Rest“. Þar var fullkomið hesthús með básum fyrir hvern hest, og var aðbúnaður allur og hirðing gripanna með ágæt- um, svo ég hygg, að einsdæmi hafi verið á þeirri tíð hér á landi. Okkur hefði ekki komið til hugar, báðum alveg ókunnugum, að svona hesthús væri inni í miðj- um kaupstaðnum skammt frá hinum glæsilegu verzl- unarhúsum og snotru íbúðarhúsum. En hér kom okk- ur að haldi fræðsla Steindórs Jóhannessonar, sem eins og áður sagði hafði ákveðið gististaðina fyrir okkur. Dag þann, sem við vorum á Akureyri, notuðum við til að skoða ofurlítið nágrennið og fara í búðir, þó lítið væri nú hægt að kaupa fyrir það litla skotsilfur, sem við höfðum. Það varð áð sitja fyrir öllu að kaupa hey- tuggu handa hestunum til þess að hafa meðferðis aust- ur á bóginn. Við keyptum líka rúgmjölsslatta í poka, því það var nauðsynlegt að hafa til þess að hressa hest- ana á þegar stanzað var. Fjórða dag ferðarinnar héldum við svo frá Akur- eyri, en þá var komin niðaþoka, og þótti okkur óhugn- anlegt að leggja á vaðlana fyrir innan Pollinn, þegar ekki sá yfir í landið hinum megin. Þetta fór þó allt vel, því fljótlega sást yfir og fremur lítið vatn var í Eyja- fjarðará. Við héldum svo í þokunni einhverjum götu- slóðum upp heiðarbrekkuna, en þær slitnuðu sundtu: af snjófönnum þegar ofar dró, og kviðum við því ef þoka væri á háheiðinni og þar sæi ekki til vegar fyrir snjó. Það fór þó á annan veg, því að þessi 550 m hái fjallshryggur stóð upp úr þokunni og var þar glaða- sólskin, sem var mjög hressandi fyrir sálina eins og á stóð fyrir ókunnugum piltungum um tvítugt. Þar á háheiðinni gáfum við hestunum rúgmjöl á seglbrigði, sem við höfðum yfir föggunum á reiðingshestunum til að verja þær bleytu. Ferðin gekk svo vel yfir heiðina og komum við að Hálsi í Fnjóskadal um kvöldið og vorum þar um nóttina. Þar mættum við framúrskarandi gestrisni eins og vænta mátti. Þá var þar prestur séra Asmundur Gíslason frá Þverá í Dalsmynni, búhöldur mikill og góður prestur. Hann var bróðir Ingólfs Gísla- sonar læknis á Vopnafirði. Hafði séra Ásmundur kom- ið til Vopnafjarðar og haft einhver kynni af Vopnfirð- ingum í gegnum Ingólf lækni, bróður sinn. Kona séra Ásmundar var skörungskona mikil, Anna Pétursdóttir frá Vestdal í Seyðisfirði, og því systir Margrétar konu Jóns Bergssonar á Egilsstöðum á Völlum, sem voru ein af merkustu hjónum á Austurlandi á sinni tíð. Nú var haldið frá Hálsi austur Ljósavatnsskarð og var þar með öllu snjólaust og sæmileg færð, því ekki var til muna komin aurbleyta í veginn. Héldum við svo með litlum hvíldum austur yfir Skjálfandafljót og Fljóts- heiði að Einarsstöðum í Reykjadal. Þar stönzuðum við eftir fyrirsögn Steindórs og var okkur þar vel tekið og hestunum gefið hey undir húsgafli, en okkur boðið tii stofu og veittur þar beini af mikilli rausn. Einarsstaðir var sýnilega stórt heimili og mikill myndarbragur þar á öllu. Við fórum svo um kvöldið yfir hálsinn milli Reykjadals og Laxárdals og komum að fyrirfram ákveðnum gististað, Halldórsstöðum í Laxárdal, seint um kvöldið. Á þessari dagleið höfðum við fengið sæmi- lega færð, nema á Fljótsheiðinni, því þar var kominn krapi í snjóinn á köflum. Á Halldórsstöðum bjó þá Hallgrímur Þorbergsson fjárræktarmaður, þjóð- kunnur maður, og gistum við hjá honum við mikla gest- risni og glaðværð. Morguninn eftir, sjötta dag ferðar- innar, fórum við svo yfir Laxá að Hólum og þaðan upp á Hólasand í átt til Mývatnssveitar. Á Hólasandi var fremur lítill snjór og engin ófærð, þó hægt yrði að fara til þess að hestarnir ofþreyttust ekki. Annars vor- um við heppnir með það alla ferðina, hvað leysing var lítil, miðað við það, sem vænta mátti á þessum tíma vors. Snjórinn fór heldur vaxandi eftir því sem austar dró í héraðið og var flekkótt jörð í Mývatnssveit. Um kvöldið komum við að Grímsstöðum við Mývatn og vorum þar um nóttina. Á Grímsstöðum var sýnilega stórt heimili og margbýli. Fengum við þar ágætan beina, en ekki man ég nafn á búendum, sem við gistum 398 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.