Heima er bezt - 01.11.1971, Síða 24

Heima er bezt - 01.11.1971, Síða 24
vitað, blessaður, hvað hann átti að gera við tímann, því auðvitað þurfti hann líka að gegna umsvifa- miklum embættisrekstri á landfógetasetrinu í Við- ey. , Þá skal og þess getið, að iðnaðarstofnanirnar komu upp allstóru fjárbúi uppi við Elliðakot fyrir ofan Reykjavík. Því var komið á fót m. a. til að bæta úr skorti á ull og gærum til vinnslunnar. Bú þetta eyddist í magnaðri fjárpest, sem fræg er í sögu frá þessum tíma. Rekstur innréttinganna gekk ekki vel fyrst í stað, má segja, að allt gengi þar á tréfótum. Bar margt til. Hinir erlendu menn, sem veita skyldu forstöðu, reyndust oft ekki vandanum vaxnir við þá ótrúlegu erfiðleika, sem hér var við að stríða, þar sem margt skorti, sem þeir voru vanir að nota. Svo var allt verkafólk fákunnandi í byrjun. Oft þurfti að segja starfsfólki upp og stöðva reksturinn vegna matarskorts af völdum hallæris. Með þessu vannst seint að koma upp æfðu starfsliði. Svo síðast en ekki sízt var sífelld orrahríð við hörmangara- félagið, sem notaði sér ástandið og gerði allt, sem það megnaði til að bregða fæti fyrir reksturinn. Þeir reyndu að koma í veg fyrir, að stofnanirnar gætu fengið hráefni með því að kaupa alla ull og öll skinn af bændum, sem þeir gátu komist yfir, og neituðu síðan að selja stofnununum nema þeir fengju hæsta erlent markaðsverð fyrir. Þegar svo danska stjórnin vildi skipa hörmangarafélaginu að kaupa klæðavörur stofnananna, birgðu þeir sig upp með klæði frá danskri verksmiðju, sem nægja myndi til margra ára, og þóttust því ekki geta keypt meiri birgðir. Fleiri lúabrögð notuðu þeir og. Félaginu var þó verst við það leyfi til Skúla að mega flytja vörur milli landa á duggum stofn- unarinnar, með þeirri undanþágu var stórt skarð rofið i einokunina, sem Skúli vildi knésetja. Ekkert samkomulag náðist við hörmangara um kaup á fullunnum vörum stofnananna, en stjórn- in var hin einarðasta og úrskurðaði allt í vil Skúla og stofnunum hans. Gekk því ekki á öðru en kærum og gagnkærum, og ekki gott að segja um hvernig farið hefði, ef hörmangarar hefðu ekki gefið slíkan höggstað á sér vegna óhæfu í verzlunarháttum, að þeim var að lokum þröngvað til að afsala sér verzluninni. Járn og brýni félagsins voru ónýt, önglar og færi, trjáviðurinn ekki hæfur í árar og orf. Svo fluttu þeir aldrei næga kornvöru til landsins og stundum stórskemmda. Sýslumenn urðu víða um landið að brjóta upp vöruskemmur kaupmanna á vetrum til að seðja hungur fólksins. Þegar þetta illa þokkaða verzlunarfélag hrökklað- ist frá verzluninni, lét danska stjórnin halda upp- boð á verzlunarhöfnum landsins og skyldu þær seldar á leigu til sex ára. Nú brá svo við, að eng- inn danskur kaupmaður vildi bjóða í þær, svo kon- ungur neyddist sjálfur til að taka í sínar hendur verzlunina við þetta skattland sitt og reka hana á eigin kostnað. Þetta gerðist árið 1759. Með konungsverzluninni hefst nýr þáttur í sögu innréttinganna, og þau fáu ár, sem hún stóð, snýst margt þeim í hag, sumar greinar þeirra meira að segja reknar með hagnaði. Auk þess voru þær orðnar skóli í nvjum vinnubrögðum, garnspuna og vefnaði. Margir menn þaðan höfðu farið um land- ið og veitt tilsögn í þeim greinum, enda er það mála sannast, að ullariðnaður landsmanna gerbreyttist og menn tóku nú upp rokka og vefstóla með nýju lagi. Með stofnun innréttinganna skeði og annað. Með þeim reis upp fyrsti vísir að fjölbýlisbyggð á ís- landi, þ. e. a. s. í Reykjavík. Það er því ekki rang- nefni að kalla Skúla Magnússon föður þess bæjar.

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.