Heima er bezt - 01.11.1971, Page 27

Heima er bezt - 01.11.1971, Page 27
NÝ FRAMHALDSSAGA EFTIR JÓN KR.ÍSFELD GAMALL MAÐUR OG GANGASTÚLKA 1. HLUTI 1. kafli. Gamli maðurinn kemur á elliheimilið. í brekkuhalla, rétt fyrir ofan kauptúnið í Axlar- firði, stendur elliheimilið FRIÐHEIMUR. Þetta er glæsileg bygging. Þrjár burstir gnæfa hátt á þeim hluta hússins, sem að kauptúninu veit. Tíguleg, ljós byggingin virðist enn fegurri vegna þess, að um- hverfis hana er stór trjáa- og blómagarður, sem nú er í fullum skrúða, enda kominn 18. júlí. Að aflíðandi hádegi rennir stór fólksbifreið heim að aðaldyrum elliheimilisins. Vistfólkið er flest á ferli. Það hefir nýlega lokið góðri máltíð og finnur hjá sér þörf til hreyfingar á eftir. Margt fólk er á gangi um garðinn, aðrir reika um stofur og ganga. Nokkrar konur standa við glugga og horfa út í garðinn. Þegar bifreiðin rennur hægt og virðulega upp að breiðum tröppunum, nema þeir staðar, sem þeim megin hafa verið á göngu í garðinum, og konurnar fá ekki einar að stara út um gluggana. Þangað leita forvitnir áhorfendur af göngunum, því að fregnin um stóra fólksbifreið fer leifturhratt frá manni til manns. Bifreiðarstjórinn, ungur, þreklegur maður, kem- ur út, gengur rösklega aftur fyrir bifreiðina og að framhurðinni hinum megin. Hann opnar dyrnar og út úr bifreiðinni mjakar sér virðulegur öldungur. Svo nemur hann andartak staðar, réttir úr sér og horfir á umhverfið. Bifreiðarstjórinn hefir á meðan tekið ferðatöskur út úr bifreiðinni. Siðan lokar hann dyrunum, en opnar farangursgeymsluna. Hún er full af allskonar farangri, sem bifreiðarstjórinn raðar vandlega á stéttina fyrir neðan tröppur húss- ins. í garðinum og innan við gluggana er pískrið fljótlega hafið. Það fer um hópana líkast bylgjandi klið. „Þarna er þá einn nýr að koma. Kannast þú nokk- uð við hann?“ „Nei, ég hef áreiðanlega aldrei séð hann.“ „Hann er bara með heila búslóð með sér, þessi. Hann ætlar víst að vera hér til eilífðarnóns.“ „Mér var sagt í gær, að það væri von á einhverj- um útgerðarmanni hingað. Ætli þetta sé ekki hann?“ „Jæja, það var nýtt, sem sjaldan skeður, að fá út- gerðarmann hingað. Skyldi hann ekki vera loðinn um lófana?“ „Ja, nú blöskrar mér. Þetta er víst einhver sér- vitringurinn. Hann er með kommóðu með sér.“ „Ekki held ég það nú. Þetta er einhvers konar kista.“ „Sér er nú hver kistan! Jæja, sama er mér, hvað það er kallað. — En þetta er sjálfsagt rúmfatapoki, sem bílstjórinn fleygir svona." „Hann er með „spásserustokk". Það veitir víst ekki af að styðja sig við hann hérna í garðinum, hí, hí.“ „Nú, eða þá berja frá sér með honum, ha, ha!“ Forstjóri elliheimilisins kom í þessu andartakinu niður tröppurnar, gekk til nýkomna öldungsins, og auðsjáanlega heilsuðust þeir, því að þeir tókust í hendur. — Skrambans vandræði að vera svona langt frá þeim, að geta ekki heyrt, hvað þeir talast við, fannst áhorfendunum, sem höfðu hljóðnað, meðan þeir heilsuðust. Hana, nú gengu þeir, forstjórinn og sá nýkomni, upp tröppurnar, og bifreiðarstjórinn á eftir þeim með tvær þungar ferðatöskur. Þegar þeir hurfu inn Heima er bezt 407

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.