Heima er bezt - 01.11.1971, Page 31

Heima er bezt - 01.11.1971, Page 31
vita, hver séu aðal störf þín hér á heimilinu,“ sagði gamli maðurinn að lokum. Hann var léttur í máli og hiklaus, og alltaf var sama hlýjan í röddinni. „Ég er gangastúlka hérna. Það er eiginlega nóg fyrir mig. Ég er ánægð með það. Ég er mikið við að hreingera í húsinu, búa um rúm, færa þeim mat, sem ekki komast sjálfir í borðstofu. Það er raunar margt fleira, því að stundum er ég látin fara í önn- ur störf. En ég er ráðin hingað sem gangastúlka og þú skalt líta á mig sem slíka. Það er ekki neitt sér- lega flott embætti, en ég er ánægð með það.“ „Ágætt, ágætt. Hvert starf, sem vel er rækt, er veg- legt embætti. Það er gæfumerki fyrir þig, að vinna fyrir aðra. Ég hefi svolítið reynt að stefna sjálfur að því. Ég skil það vel, að þú ert ekki búin að átta þig á því, hvað það er, sem ég er raunverulega að fara fram á við þig. Þú mátt alls ekki misskilja það þannig, að ég sé að fara þess á leit við þig, að þú farir að bera einhverja ábyrgð á mér. Nei, góða, það dettur mér ekki í hug. Ég fer aðeins fram á það, að innan veggja FRIÐHEIMS sé einhver ungur og traustur, sem getur verið mér hjálplegur. Það skal ekki vera bindandi að neinu leyti öðru en því, að ég megi kalla til þín öðru hvoru. En ertu kannski eitthvað viðbundin utan heimilisins?“ spurði gamli maðurinn og horfði fast á hana. „Nei, nei, það er ekki það. En mér finnst nú samt, að þetta, sem þú ferð fram á, hafi einmitt nokkra ábyrgð í för með sér, en þó að fyrirhöfnin sé kannski einhver, er það allt í lagi. En heldurðu annars að ég sé fær um að uppfylla þessar óskir þínar?“ „Það tel ég. En auðvitað getum við ekkert sagt ákveðið um þá hlið málsins núna. Ég vona bara, að þú þurfir ekki að fá nánari lýsingu á því, hvers ég óska af þér. Auk þeirra skýringa, sem ég hef gefið þér, vil ég enn endurtaka það, að ég get falið þessar óskir mínar í þessum þremur orðum: Ég þarfnast vinar.“ Framhald. Dægurlagaþátturinn . . . FramhalcL af bls. 406 ---------------- Aldrei spyrðu alla daga að í kvöld ég hef ort á tungu yztu skaga einstök fábreytt stef. Þegar brátt þín mynd og minning máist föl og hljóð er til marks um okkar kynning aðeins þetta ljóð. Allar raddir óma glaðar, einn ég raula mér, lestin brunar, hraðar, hraðar, húmið ljósrák sker. Steinn Steinarr er eitt af eftirlætisskáldum mínum, ég get ekki vel útskýrt af hverju, en eitthvað í kvæð- um hans grípur hug minn. Hann hefur verið kallaður atómskáld, nafngift, sem ég þó ekki skil, því öll hans ljóð eru ort að hefðbundnum hætti, með hljóðstöfum og endarími, meira að segja Ijóðabálkurinn Tíminn og vatnið. Hins vegar er orðafar og hugrenningar Steins nýstárlegt. Ég ætla því að lokum að birta ástarljóð eftir Stein, og kannski heyri ég það einn daginn sung- ið sem dægurlag af lagvísum guma eða snoturri snót. Það er aldrei að vita. MALBIK Undir hundruðum járnaðra hæla dreymdi mig drauminn um þig, sem gengur eitt haustkvöld í hljóðum trega dúnléttum sporum hinn dimmleita stig, dúnléttum sporum veg allra vega og veizt að ég elska þig. Fleiri ljóð birtast þá ekki að sinni. — Kær kveðja, BREFASKIPTI Ellen Stefánsdóttir, Skriðu, Breiðdalsvík, S.-Múl., óskar eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 17—19 ára. Lilja Jóhannsdóttir, Ásunnarstöðum, Breiðdalsvík, S.-Múl., óskar eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 16—18 ára. Sigrún Sigurðardóttir, Vetleifsholti, Ásahreppi, Rang., óskar eftir bréfaskiptum við pilta á aldrinum 17—20 ára. Æskilegt að mynd fylgi fyrsta bréfi. Kristborg Hafsteinsdóttir, Smáratúni, Þykkvabæ, óskar eftir bréfaskiptum við pilta 17—25 ára. Æskilegt að mynd fylgi fyrsta bréfi. Arnleif Sigurðardóttir, Húsmæðraskólanum, Hallormsstað, óskar eftir bréfasambandi við pilta og stúlkur á aldrinum 18—19 ára. Mynd fylgi fyrsta bréfi. Valgerður Stefánsdóttir, Keldulandi, Austurdal, Skagafirði, ósk- ar eftir bréfaskiptum við stelpur og stráka á aldrinum 14—16 ára, sama hvar er á landinu. Æskilegt að skrifa sem fyrst. Þorsteinn Pétursson, Bessastaðagerði, Fljótsdal, N.-Múl., óskar eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 14 til 16 ára. Æskilegt að mynd fylgi fyrsta bréfi. Heima er bezt 411

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.