Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.1971, Qupperneq 35

Heima er bezt - 01.11.1971, Qupperneq 35
Páll Ólafsson: Fundin ljóð. Rvík 1971. Helgafell. Það er óvenjulegur atburður, að handrit að heilli ljóðabók liðins skálds komi í leitirnar öllum á óvart, eftir að hafa verið lengi á refilsstigum, en svo var þó s. 1. sumar, þegar allstórt ljóðasafn Páls Ólafssonar kom fram í leitimar og var komið á prent nokkr- um vikum síðar. Hitt er þó ef til vill enn nýstárlegra, að öll ljóð bókarinnar skuli vera ástaljóð, ort til sömu konu, þ. e. Ragn- bildar, konu Páls, sem hann unni svo heitt, að fágætt má kallast. Mun engin íslenzk kona liafa hlotið svo stóran og fagran ljóða- krans sem hún, og sýna kvæðin ljóslega, hversu mjög Páll unni konu sinni, og hversu honum entist sú ást, því að sami er eldurinn og aðdáunin í yngstu kvæðunum og þeim elztu. Annars kemur lesandanum fátt á óvart í Fundnum ljóðum. Hann þekkir hina leikandi hagmælsku og snilldina í efnismeðferð frá fyrri ljóðabók- um Páls, og alþjóð hefir löngum verið kunnugt, hve mjög hann unni Ragnhildi konu sinni. Engu að síður er ánægjulegt, að ljóð þessi skyldu finnast. Þarna eru mörg fegurstu ástaljóðin, sem ort hafa verið á íslenzku, og vissulega eiga þau eftir að ylja mörg- um um hjartarætur þeim, sem unna ljóðum og kiinoa að meta fagran ástaróð. Hinsvegar vil ég engum ráða til að lesa þau í belg og biðu, þau njóta sín bezt eitt og eitt, en þá eru þau líka öll fersk og heillandi. Ólafur Jónsson: Á tveimur jafnfljótum. Rvík 1971. — Leiftur. Ólafur Jónsson búnaðarráðunautur sendir hér frá sér fyrra bindi ævisögu sinnar, mikla bók og merka. og lýkur bindinu, þegar hann hefir lokið námi í Landbúnaðarháskólanum danska og er ráðinn framkvæmdastjóri Ræktunarfélags Norðurlands. Ævisögur skrifa menn með ýmsu móti. Sumir hafa á þeim skáldsöguform, stikla á stóru um atburði og taka ekki hátíðlega, þótt einhverju kunni að skeika í sannfræði eða nákvæmri frásögn. Fyrir þeim er skemmtanin oft aðalatriðið. Aðrir rekja æviferil sinn nákvæmlega ár frá ári og jafnvel dag frá degi. Hjá þeim situr sannfræðin í fyrirrúmi, minna er skeytt þar um stílbrögð í frá- sögn eða spennandi atburði. Þenna síðari kostinn hefir Ólafur valið. Hann rekur hér uppvaxtar og æskusögu sína með hinni mestu nákvæmni, en lætur þó lesandann ekki skyggnast um of í innsta hug sinn. Fyrir bragðið verður saga hans mjög góð menn- ingarsöguleg heimild. Þótt umhverfi og lifnaðarhættir séu að vísu l)reytilegir eftir landshlutum og viðhorf einstaklinganna misjöfn, munu lýsingar Ólafs fara nærri því, sem gerðist á býsna mörgum stöðum á landinu, hvort heldur sem er sveitastörf og líf austur á Héraði, Búnaðarsambandsvinna í Borgarfirði, skólavist á Hvann- eyri eða ferðalög á sjó og landi á öðrum tug aldarinnar. En öllu þessu kynnumst vér í bókinni. Ég endurtek það, að bókin er merk söguleg heimild frá fyrstu tugum aldarinnar, og verður áreiðan- lega metin því meir, sem lengra líður. Frásögnin fellur í breiðum, lygnum straum, en er stundum óþarflega margorð, t. d. um Dan- merkurdvölina, sem mér þykir óþarflega langur kafli. Lýti þykja hvað höf. talar oft um væskilshátt sinn, því sagan öll sannar hið gagnstæða. Og það voru engir aukvisar, sem á þeim árum ruddu sér braut frá fátækt og vinnumennsku í sveit til hinna æðri menntastofnana í Kaupmannahöfn. Æskumenn nútímans, sem sífellt eru að krefjast alls konar fyrirgreiðslu og hjálpar, dreymir vart um, hversu þurfti að leggja sig fram til að komast gegnum skóla á þeim árum, sem enginn kvartaði, né gerði kröfur til ann- arra en sjálfra sín. Kröfugerðarmenn meðal æskulýðs nútímans hefðu gott af að lesa bók Ólafs, og það höfum vér raunar allir. Florence Elliott: Heimurinn þinn. Rvík 1971. Bókaút- gáfan Öm & Örlygur. Þetta er nýstárleg bók og nytsöm, og jafnskjótt og maður kynn- ist henni, skilst manni, að hana hafi raunverulega alltaf vantað í bókaskápinn. Þetta er eins konar orðabók, sem veitir fræðslu um hin margslungnu heimsmál í stuttum, aðgengilegum greinum. f stuttu máli verður ekki lýst öllum hennar matarholum, en geta má þess, að hér er fjallað um öll ríki heims, stjórnmálamenn, póli- tísk og félagsfræðileg hugtök, alþjóðastofnanir og samninga og yfirlýsingar, svo að hið helzta sé nefnt. íslandi og íslenzkum mál- efnum eru gerð góð skil, getið allra núverandi alþingismanna, ráðherra, flokksforingja. flokkaskiptingar o. s. frv. Hér er því að finna svör við ótrúlega mörgum atriðum, sem við mætum daglega um lönd og þjóðir, t. d. flest það af fréttatagi, sem á oss dynur í fjölmiðlum daglega, verður betur skýrt við lestur þessarar bókar. Vel má hún vinna gegn þeim hugtakaruglingi, sem svo mjög tíðk- ast, ýmist af flónsku eða í áróðursskyni. Svo virðist sem framsetn- ing sé skýr og brotalaus, þótt víða sé fljótt yfir sögu farið, en meg- inatriðin eru dregin fram. Síðan bók þessi kom fyrst út í Englandi 1957, hefir hún oft verið prentuð þar og þýdd á mörg mál. Ég fæ ekki betur séð en þetta sé ómissandi bók fyrir alla skóla og opinberar stofnanir og hvern 'þann, sem fylgjast vill með í heim- inum okkar. Ritstjóri bókarinnar er Jón Ögmundur Þormóðsson lögfræðingur. en mcðþýðendur Gunnar Jónsson lögfræðingur og Sigurður Ragnarsson kandidat í sögu og landafræði. Björn Jónsson skólastjóri hefir gert orðaskrá, sem er til mikils hagræðis. Virðast þeir allir hafa unnið verk sitt vel. Gunnar Gunnarsson: Vikivaki. Rvík 1971. — Almenna bókafélagið. Almenna Bókafélagið hefir byrjað nýja útgáfu af verkum Gunn- ars Gunnarssonar. Svartfugl kom út fyrir nokkru og nú bætist Vikivaki við. Mun svo verða áfram haldið, og gefst mönnum þar með kostur á að eignast ritverk hins merka höfundar smám sam- an án bindandi áskriftar. Vikivaki er um margt ein sérkennileg- asta skáldsaga Gunnars, ævintýraleg og dulúðug öðrum þræði en raunsæ á hinn bóginn. Teflt er saman afturgöngum úr forneskju, meira að segja höfði Grettis og sögumanninum. sem er alheims- borgari, víðförull rithöfundur, sem á efri árum hefir sezt að á afskekktu öræfabýli, þar sem hann þó hefir öll þægindi nútíma- menningar, meira að segja flugvél, ef hann þarf að bregða sér bæjarleið. Hinir framliðnu rísa upp úr gröfum sínum við lúður- hljóma úr útvarpinu á Gamlaárskvöld, og hyggja sig hafa verið kvadda til efsta dóms. Sagan fjallar síðan um sambýli og viðræður Jaka rithöfundar og afturgangnanna. Og lýkur með himnaför þeirra og dauða hans. Frásögnin er sem endranær, hjá Gunnari, þróttmikil og sérkennileg, sums staðar ef til vill dálítið tyrfin, en fellur vel að efninu. Og verður svo ekki niðurstaðan að loknum lestrinum sú, að manneðlið sé alltaf hið sama, þótt aldir líði milli kynslóðanna, og jafnvel hin fullkomna tækni og raunvísindi nú- tímans fái þar engu um haggað? Og dulmögnin verða alltaf dul- mögn, hvað sem hver segir. Heima er bezt 415

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.