Heima er bezt - 01.04.1975, Side 9
Dvöl séra Friðriks og frú Gertrud á Hálsi varð ævin-
týri líkust. Presturinn vann sín þjónustustörf í söfnuð-
unt sínurn. Bæði héldu þau áfram kennslu. Frú Gertrud
var organisti í kirkjunum ef þess var þörf og æfði söng.
Séra Friðrik stundaði nótnaskrift sína og hlóð torfi og
grjóti til skrauts og skjóls utan húss. „Tómstundir“
urðu engar en unaðsstundir margar í kyrrð og næði.
Björg Friðriksdóttir, Ingvar Þórarinsson, Stefán Örn Ingvars-
son, Sigríður Ingvarsdóttir.
Álfhildur og séra Örn Friðriksson, prestshjón á Skútustöðum.
Áldis Friðriksdóttir, Páll Þór Kristinsson, Geirþrúður Páls-
dóttir, Guðbjörg Pálsdóltir og Ari Páll Pálsson.
Birna Friðriksdóttir, Þorvaldur Veigar Guðmundsson, Helga
Þorvaldsdóttir, Sólveig Þorvaldsdóttir.
En fegurst og lærdómsríkust var sambúð safnaðanna
við prestshjónin. Hún einkenndist af gagnkvæmum kær-
leika og umhyggju. Hið góðhjartaða fólk í dreifðri
byggð unni þeim og bar þau á höndum sér svo sem
kostur var. Það vakti yfir þörfum þeirra og veitti þeim
alla þá hjálp og aðhlynningu er það mátti veita. Prests-
hjónin segja það opinskátt við hvern sem vera skal, að
þeim hafi hvergi liðið betur. Þau komu frá Hálsi endur-
nærð og hvíld. Þótt árin færðust yfir sá þess varla stað.
Nú hafa þau séra Friðrik og frú Gertrud búið sér
heimili á Húsavík. Þar er fagnaðarefni að vera gestur
þeirra og eiga við þau orðræður, eins og ætíð fyrr.
Börn þeirra eru:
Björg, f. 24. marz 1926, gift Ingvari Þórarinssyni kaup-
manni á Húsavík.
Örn, f. 27. júlí 1927, prestur á Skútustöðum, kvæntur
Alfhildi Sigurðardóttur.
Aldís, f. 10. desember 1932, hjúkrunarkona, var gift
Páli Þór Kristinssyni, kaupmanni á Húsavík. Hann er
nú látinn.
Birna, f. 5. maí 1938, gift Þorvaldi Veigar Guðmunds-
syni, lækni í Reykjavík.
Barnabörnin eru þrettán.
Lokaorð þessarar greinar skulu tekin úr einni af pre-
dikunum séra Friðriks A. Friðrikssonar. Þau hljóða svo:
„Því sjá — ,stuðlarnir‘ tveir í lífs- og vaxtarljóði
mannsandans eru trú og von, en ,höfuðstafurinn‘ er kær-
leiknr.lí
Heima er bezt 121