Heima er bezt - 01.04.1975, Blaðsíða 19
9. Guðrún Þorsteinsdóttir átti Magnús Guð-
mundsson. Dóttir þeirra:
10. Guðrún Magnúsdóttir,1 átti fyrr Gísla Guð-
laugsson2 og var seinni kona hans. Sonur þeirra:
Þorsteinn B. Gislason prófastur í Steinnesi.
(Birt með leyfi höfundar.)
ENN UM ÆTTMENN GESTS BJARNASONAR,
eftir samantekt greinarhöfundar:
Árið 1816 er Þorsteinn Bjarnason 19 ára gamall
vinnumaður á Auðunarstöðum í Víðidal, talinn
fæddur á Stóruborg, síðar hreppstjóri á Sporði.
Þorsteinn Bjarnason og Guðrún Tómasdóttir
voru gefin saman 3. janúar 1820. Búa þá á Hvarfi.
Sigríður dóttir þeirra fæddist þar 13. febrúar sama
ár, og virðist hún hafa verið eina barn þeirra hjóna.
Sigríður er enn í foreldrahúsum á Sporði 1860, ógift
og barnlaus.
Laundóttir Þorsteins Bjarnasonar, Guðrún, fædd
31. júlí 1831 á Syðri-Kárastöðum. Þorsteinn bjó þar,
og barnsmóðirin, Kristín Jónsdóttir, var þar vinnu-
kona.
Þorsteinn Bjarnason og fjölskylda fluttist frá
Syðri-Kárastöðum að Sporði 1836.
Manntal á Sporði 1840:
Þorsteinn Bjarnason, 43 ára, húsbóndi. Guðrún
Tómasdóttir, 45 ára, kona hans. Sigríður Þorsteins-
dóttir, 21 árs, dóttir þeirra. Jóhann Steinsson, 23 ára,
sonur húsmóður. Guðrún Þorsteinsdóttir, 10 ára,
dóttir húsbóndans.
Þetta er óbreytt á manntali 1850, að öðru leyti
en því, að Jóhann Steinsson er horfinn frá fjölskyld-
unni og orðinn vinnumaður í Nípukoti í Breiða-
bólstaðarsókn. Þar bjuggu þá hjónin Sveinn Mark-
ússon og Helga Arnbjömsdóttir. Jóhann Steinsson
er þá kvæntur Margréti Tómasdóttur 36 ára, sem
talin er fædd í Staðarsókn í Norður-Amti. Jóhann
og Margrét búa 1860 í hjáleigukoti, Sporðshúsum,
og hafa þar hjá sér þessi börn sín:
Gest, 11 ára, fæddan í Melstaðarsókn, og Ingi-
björgu, 3 ára, fædda í Víðidalstungusókn.
Magnús Guðmundsson og Guðrún Þorsteins-
dóttir, Bjarnasonar, voru gefin saman 15. júní 1856.
Hann er þá talinn húsmaður á Selási, en hún heima-
sæti á Sporði. — Börn þeirra:
1. Þorsteinn Björn, sundkennari, Reykjavík.
2. Gestur bóndi, Ormsstöðum, Klofningshreppi.
1 Guðrún Magnúsdóttir hét fullu nafni Guðrún Sigurrós, fædd
á Auðunnarstöðum 24. júlí 1870, d. 17. apríl 1953 (sjá áður).
2 Gísli Guðlaugsson var fæddur 29. apríl 1850, d. 23. okt. 1906.
Þau bjuggu í Forsæludal, síðar á Koti í Vatnsdal. — G. J.
3. Bjarni smiður og fangavörður, Stykkishólmi.
4. Guðmundur bóndi, Sunnuhlíð, Vatnsdal.
5. Elínborg, kona Hannesar Hannessonar í Dældar-
koti, Helgafellssveit.
6. Guðrún húsfreyja á Kársstöðum, Helgafellssveit,
átti fyrr Gísla Guðlaugsson( þau foreldrar Þor-
steins prófasts í Steinnesi). Seinni maður Guð-
rúnar var Gísli Guðmundsson frá Slitvindastöð-
um í Staðarsveit (Hjarðarfellsætt). Þau bjuggu
á Ámýrum í Helgafellssveit. Synir þeirra eru:
Gísli og Guðmundur, bændur á Kársstöðum í
Helgafellssveit.
7. María barnsmóðir Björns L. Guðmundssonar á
Marðarnúpi. — Sonur þeirra var Sigurður brúar-
smiður í Reykjavík, f. 16. maí 1890. Fyrri kona
hans var Ása, f. 1. júlí 1897, d. 1932, Benedikts-
dóttir bónda á Þorbergsstöðum, Laxárdal. Seinni
kona: Lilja, f. 26. maí 1902, alsystir fyrri kon-
unnar.
Gísli Guðmundsson, s. m. Guðrúnar var fædd-
ur 28. marz 1875 á Slitvindastöðum, d. 5. septem-
ber 1960 á Kársstöðum.
Framhald í næsta blaði.
Leiðrétting
í grein um ASalbjörgu Björnsdóttur, sem birtist í okt,—
nóv. hefti „Heima er bezt“ 1974, bls. 344, eru tekin upp um-
mæli eftir Norðmanninum Ivan Knudsen um Aðalbjörgu, en
ummælin eru þannig: „Hun Bugga har de uligste mennesker
i huset men hun guterer dem aldrig.“ Setningin á að enda
svo: „ . . . men hun guterer dem alle.“ Lesendur eru vin-
samlega beðnir að leiðrétta þetta.
BRÉFASKIPTI
Bergpóra Jóhannsdóttir, Hóli, Hauganesi, Árskógsströnd, Eyja-
firði, óskar eftir að skrifast á við stelpur á aldrinum 11—12 ára.
Mynd fylgi fyrsta bréfi.
Tyrfingur Arnar Kristjónsson, Tjöm, Þykkvabæ, Rang., óskar
eftir bréfaskiptum við stelpur eða stráka á aldrinum 14—16 ára.
Æskilegt er að mynd fylgi fyrsta bréfi.
Helena Kristjánsdóttir, Fjarðarvegi 10, Þórshöfn, Langanesi,
óskar eftir bréfaskiptum við stelpur og stráka á aldrinum 12—14
ára; er sjálf 12 ára. Mynd fylgi fyrsta bréfi.
Bergljót Benónýsdóttir, Reykjaskóla, Hrútafirði, V.-Hún., óskar
eftir bréfaskiptum við strák á aldrinum 16—19 ára.
Sólrún Pálsdóttir, Hreiðarsstöðum, Fellum, N.-Múl., óskar eftir
bréfaskiptum við strák og stelpu á aldrinum 13—14 ára.
Rósa Maria Benediktsdóttir, Sólheimum, Grímsnesi, Árnessýslu,
óskar eftir bréfaskiptum við fólk á aldrinum 30—40 ára.
Heima er bezt 131