Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1975, Qupperneq 23

Heima er bezt - 01.04.1975, Qupperneq 23
Við hjuggum göt á ísinn, sem var ekki þykkur, því að dálítill straumur var þarna í mjóddinni á milli vatnanna. Svo er áhaldinu stungið undir ísinn. Það dregur línuna með því að kippa í. Þá brunar áhaldið einn metra í hvert skipti. Ég labba áfram með áhald- inu. Það heyrist vel í því undir ísnum. Svo kallar fiskimaðurinn, þegar línan er komin netlengd, og þá er höggvið gat. Við komum þremur netum niður í hálfgerðu myrkri. Það var aðeins snjórinn, sem lýsti upp svolítið. Hvernig var það? Gleymdist nestið heima? Jú, satt var það. Og ekki að furða, við fórum svo snemma af stað í morgun, stríddi ég mínum verkstjóra. „Við fáum mat og gistingu hjá Rússanum,“ segir verkstjórinn, Pál skulum við kalla hann. Svo að verkinu loknu er farið til Rússanna, og Páll biðst gistingar. „Mat getið þið fengið, en húsrúm hef ég ekki fyr- ir ykkur,“ sagði gamli Rússinn og var smámæltur sem von var, því að í munni hans var aðeins ein tönn sjáanleg. Hún stóð út fyrir vörina. Kofi Rússanna var aðeins tveir metrar á breidd og um 3,50 metrar á lengd. Og gestur var háttaður á gólfinu, svo að það var varla rúm fyrir okkur tvo að setjast á kubba, sagaða úr skóginum. En karlinn er hinn kátasti, og sagði, að því miður gæti hann aðeins boðið okkur baunir í kvöld. Þeir hefðu reynt að skjóta dýr, en það hefði ekki lukkazt, svo að nú væri aðeins fiskur eða baunir til matar. En við vorum vanir baununum og máttum bara vera þakklátir. Svo hrærir Rússinn í baununum, svo að þær brynnu ekki við á pönnunni. Og slefan rann út úr gamla manninum ofan í baun- irnar. Svo skammtaði blessaði gamli maðurinn okkur á tvo diska og brauðbita með. Páli þótti baunirnar góðar, en ég var alveg lystar- laus, borðaði aðeins brauðið. Svo þökkuðum við fyr- ir okkur, fórum út og bjuggum um okkur undir stóru grenitré, hjuggum greinar af smágrenitrjám og breiddum yfir okkur svefnpoka Páls. Maður svaf bara sæmilega, því að logn var og ekki mikið frost. Við vöknuðum snemma næsta morgun og vitjuðum um netin, sem við höfðum lagt meðfram netum gamla mannsins. Og viti menn. Það var mikill fiskur í þessum netum. Svo að gamla merin var pínd til að brokka alla leið til baka, því að nú skyldi bara flytja alla útgerðina hingað. Það gerðu þessir piltar og fisk- uðu nokkuð vel, það sem eftir var vetrarins. Framhald í næsta blaði. Heima er bezt 135

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.