Heima er bezt - 01.04.1975, Side 31

Heima er bezt - 01.04.1975, Side 31
svo óvænt, að Guðrún þegir og lítur undrandi á Siggu. Eftir nokkra þögn segir hún: „Við eigum ekki nóga peninga til þess, Sigga mín. Það kostar mikið.“ En Sigga er fljót að grípa fram í: „Gísli bróðir Jóns hérna ætlar að lána mér það sem til vantar, og svo ætlar hann að ljá mér herbergi, ef ég fæ það ekki í skólanum.“ „Alltaf er Gísli jafngóður, það er leit að öðrum eins manni,“ segir Guðrún. En jafnframt flýgur það um hug hennar, að nú sé hún að missa augasteininn sinn. Og nú komi hún ekki lengur til hennar, ef eitthvað blási á móti, hún verði komin til Reykjavíkur. En hún finnur, að það er blandið eigingirni að vilja ekki lofa Siggu að fara í skólann, enda er hún orðin það þroskuð, þótt ung sé, að hún treystir henni til að sjá um sig. Hún gengur til Siggu, tekur hana í faðm sér og segir: „Ég bæði gleðst og hryggist yfir þessum fréttum, og oft mun ég hugsa til þín, Sigga mín, og biðja guð að gæta þín. Ég veit þú hugsar líka til mömmu þinnar.“ Sigga sér tár ghtra í augum móður sinnar, og hún vefur hana örmum með allri þeirri blíðu og innileik, sem hún á til. „Ég mun ætíð minnast þín, mamma mín, og þinna góðu ráða. Þau skulu fylgja mér og leiðbeina mér.“ Guðrún gleðst af orðum dóttur sinnar. Hún er svo hrein, saklaus og einlæg í öllu, en jafnframt gætir nokkurs kvíða yfir því, að hún sjái ekki við þeim hættum, sem munu mæta henni, þegar hún kemur í margmennið. En um það tjáir ekki að tala. hún verður að fara í skólann, úr því að henni býðst það. Sigríður og systkinin eru nú komin til Reykjavíkur. Sigga er strax tekin í kór kvennaskólans og vekur strax athygli fyrir áhuga og söngkunnáttu. Hún þjálfar skóla- systur sínar í kórnum og tekst fljótt að hleypa í hann lífi og fjöri. Hún virðist vera meiri kennari heldur en sjálf kennslukonan, sem er ekki laginn söngkennari, en lítur þó stórt á sig. Hún þolir það illa, að Sigríður dragi að sér nemendahópinn í kórnum. Hún reynir því að setja út á hana eins og hún frekast getur. En svo vill það óhapp til, að söngkennarinn veikist. Þá fara stúlkurnar fram á, að Sigga haldi áfram kennslunni, og er það samþykkt af skólastjóra frú Þóru. Sigga færist undan þessu, nema á meðan sé verið að útvega annan kennara, og þetta er samþykkt. Skólastjórinn hafði lítil persónuleg kynni haft af Siggu, en fór nú að veita henni meiri athygli. Hún fær því æfðan söngstjóra til að vera viðstaddan söngæfingu, án þess að stúlkurnar viti nokkuð um. Að æfingu lokinni fer hann að spyrja um þessa stúlku, hvaðan hún sé og hverra manna. En hann fær að- eins þær upplýsingar, að hún hafi komið með systkinun- um á Hofi, börnum séra Hjálmars og Rósu. Frú Rósa hafi kennt henni og gefið henni mjög góð meðmæli, segir skólastjóri. Sér lítist mjög vel á þessa stúlku, hún sé eitt- hvað svo tilkomumikil og myndarleg. „Ég held hún yrði ágætis kennari. Hún náði strax áhuga hjá stúlkunum við sönginn. Hún hefur líka mjög fallega söngrödd." Þau hafa nú rætt um þetta um stund, söngstjórinn og frú Þóra, og ganga nú fram á ganginn til þess að fara. Þá heyra þau kvenmannsrödd og orgeltóna hljóma inni í kennslustofu. Þau veita því strax athygli, að það er angur- blítt saknaðarljóð, sem sungið er með engilblíðri röddu. Þau hlusta þar til lagið er á enda. Þá spyr söngstjórinn: „Hver er það, sem syngur svona? Við skulum athuga það.“ Þau ganga inn í stofuna. Sigga lítur við og stendur upp. Hún ætlar að ganga burt, en skólastjórinn stöðvar hana og kynnir hana fyrir söngstjóranum. „Við vorum á gangi hérna og heyrðum, að þú varst að syngja svo fallegt lag. Viltu ekki syngja eitt lag fyrir okkur?“ Sigríður roðnar við þessari óvæntu beiðni, en segir eftir nokkra þögn: „Ég er nú ekki vön að syngja fyrir ókunnuga nema þá í kór, en fyrst skólastjóri óskar eftir, að ég syngi eitt lag, skal ég reyna það.“ Hún sest nú aftur við orgelið og fer að blaða í nótna- heftinu. Á meðan setjast gestirnir. Svo hljómar tónlistin hægt og rólega, en með vaxandi lífi og fjöri. Rödd hennar skær og hrein blandast orgeltónunum. Frú Þóra lítur brosandi á sessunaut sinn. Hún er hrifin af því, hvað Sig- ríði tekst vel. Hún sér, að hún er ekki byrjandi í spili og söng, en hlýtur að hafa búið yfir mikilli fyrri æfingu. Þegar lagið er á enda, lokar Sigga bókinni, eins og þetta sé búið. En þá segir gesturinn: „Ætlar þú ekki að gefa okkur annað lag?“ Sigga opnar bókina aftur, og nú kemur ættjarðarlag. Því fylgir ekki eins mikið fjör og í fyrra laginu. Nú er það tign og hátíðleiki, sem einkenna bæði tóna og rödd. Henni hefur tekist vel. En nú stendur söngstjórinn upp og geng- ur til Siggu. Hann tekur í hönd hennar og þakkar henni fyrir. Hann segir: „En fallegast þótti mér lagið, sem þú söngst, þegar við komum inn. Til hverra söngstu það, Sigríður?“ „Til mömmu,“ segir Sigga og lítur einkennilega á þau. Andlit hennar verður alvarlegt og milt. „Viltu syngja það fyrir okkur aftur?“ Sigga þegir um stund og horfir niður fyrir sig. Loks segir hún lágmælt: „Ekki núna, en kannski seinna.“ „Já, þú lofar mér að heyra það seinna,“ segir skólastjór- inn. í því kemur Helga Hjálmarsdóttir inn og er að leita að Siggu. Þær fara út, en skólastjórinn og söngstjórinn ræðast við um söngkennsluna, meðan kennarinn sé veikur. „Láttu þessa stúlku halda áfram með það, sem hún er byrjuð á. Mér líst vel á hana, og hún virðist hafa mikla sönghæfileika. Ég hefði gaman af að fylgjast með henni í þessu.“ Það er fljótt að berast um skólann, að Sigga eigi að kenna sönginn, meðan söngkennarinn sé veikur. Hún hafi bara farið til skólastjórans og boðist til að kenna. Það eru þær Stína læknis og Guðný frá Stóra-Felli, sem bera þetta út um skólann, en báðum er þeim í nöp við Siggu, því að alls staðar þarf hún að vera þeim fremri. Þær hugsa sér nú að gera henni smábrellu, þegar hún fari að æfa kórinn. Þær mæta ekki á æfingum eins og þeim ber og eru oft falskar í röddum af ásetningi. Þetta skapar Siggu talsverða erfiðleika, og hún vandar um þetta við þær. En þær svara því bara til, að þær mæti, þegar þeim sýnist. Það komi henni ekkert við, hún sé enginn kennari hér í skólanum. Sigga segir þeim, að annaðhvort verði þær að mæta á æfingum eða hætta. Stína verður fyrir svörum og segir: „Það er svo sem ekkert, þú bara rekur okkur úr kórn- um. Það er naumast, að þú þykist vera eitthvað. Þú ert þó bara óskilgetin og montin sveitastelpa.“ Heima er bezt 143

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.