Heima er bezt - 01.04.1978, Blaðsíða 5

Heima er bezt - 01.04.1978, Blaðsíða 5
þjóðfélagshættir og hagfræðin hafi velt bóndanum úr fornum veldisstóli og gert hann að tölum í hag- skrám. En hvað sem öllum talnaþrautum hagfræðinnar líður, kemur þessi samjöfnuður bóndans við kóngs- rikið oft upp í hugann þegar ég sé velsetna bújörð, eins og t.d. Torfalæk á Ásum í Austur-Húnavatns- sýslu. Það var á sólbjörtum júlídegi í fyrra að ég stóð við malborna heimreiðina á Torfalæk og hugðist taka hús á Torfa bónda Jónssyni til þess að fræðast örlítið um lífshlaup hans og skoðanir, einkum á stöðu bændastéttarinnar í þjóðfélaginu, sem þá var mjög til umræðu og oft með undarlegri framsetningu. Á Torfalæk þótti mér staðarlegt um að litast í þess orðs fornri merkingu. Og svei mér ef það gladdi mig ekki svolítið að grasið hérna virtist kæra sig kollótt um alla hagfræði og hélt áfram að vaxa. Öll um- gengni var með miklum ágætum. íbúðarhús, gripa- hús, geymslur, véla- og verkfærahús voru máluð og hvergi neitt rusl að sjá, ekki einu sinni þessi fljúgandi áburðarpoki sem víða má sjá á lendum bænda til lítillar prýði. Einu sinni var mér innrætt sú kenning að snyrtimennska í starfi bæri vott um þá virðingu sem fyrir því væri borin, og fannst mér það sannast hér. Á Torfalæk er nú tvíbýli, jafnvel þríbýli, þó land- inu sé ekki skipt. Frá því verður síðar skýrt hvemig þessu er háttað. Torfalækur á Ásum er gamalt og gróið býli og er búið að vera í eign sömu ættarinnar frá árinu 1861, er Sigríður Jónsdóttir, ekkja Jóns hreppstjóra Sveinssonar á Sauðanesi, keypti hluta jarðarinnar og fluttist þangað með Sigurlaugu dóttur sinni sem þótti gáfuð og mikilsmetin kona (d. 1922). Síðar komust þær mæðgur yfir alla jörðina. Sigurlaug Jónsdóttir bjó svo um 40 ár á Torfalæk með sam- býlismanni sínum Guðmundi Guðmundssyni. Jón sonur þeirra bjó þar önnur 40 ár, fyrst í sambýli við foreldra sína, en síðar með konu sinni, Ingibjörgu Björnsdóttur frá Marðarnúpi sem var dótturdóttir Helga Vigfússonar í Gröf og var nafnkenndur mað- ur á sínum tíma og átti fjölda barna sem mikil ætt er komin frá. Jón og Ingibjörg á Torfalæk eignuðust sjö syni. Elstur var Guðmundur, lengi skólastjóri búnaðar- skólans á Hvanneyri. Svo voru tvíburabræðurnir Björn, fyrrum veðurfræðingur, nú yfirlæknir í Hveragerði, og Jóhann, bóndi á Torfalæk, nú ráðs- maður á Jaðri við Reykjavík. Þá var Jónas B„ fyrrum fræðslustjóri Reykjavíkurborgar. Síðan Ingimundur (vangefinn), og lengi var til heimilis á Torfalæk en Ingibjörg Björnsdóttir, Torfalœk. Jón Guðmundsson, Torfalœk. Heima er bezt 113

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.