Heima er bezt - 01.04.1978, Page 19

Heima er bezt - 01.04.1978, Page 19
brennivíni og öðrum vínum sem hann innbyrðir. Og fínn hefur hann þurft að vera. „Silketörklæde til Mohr“, „Veste til Mohr“, „Sæbe til Mohr“ og „Rede- kam til Mohr“ má víða sjá í úttekta- bókinni. Þá er það ekki svo lítið af peningum sem hann hefur tekið út og vafalítið notað til kaupa á vörum í öðrum verslunum Akureyrar sem ekki fengust þá stundina í viðskipta- verslun maddömunnar. Þá er vert að geta allra smíða- áhaldanna og trjáviðarins sem hann kaupir og bendir til þess að reynt hafi verið að halda honum að nytsamlegri vinnu, a.m.k. fyrst í stað. En þessir dýrðardagar tóku enda svo sem lesendum er þegar kunnugt. Það væri að sjálfsögðu fullmikið sagt að „forsorgun“ Jóhanns Mohr hafi verið stærsta vandamál nýju bæjarstjórnarinnar á Akureyri. Þó má af ýmsu sjá að framfærsla hans var ótrúlega viðamikið mál og alls ekki laust við að skilja megi ýmislegt sem svo að hún hafi beinlínis staðið ýms- um verklegum framkvæmdum fyrir þrifum. Þá virðist atvik benda til þess að Jóhann Jacob Mohr hafi þrátt fyrir allt talið sig í höfðingjahópi bæjarfé- lagsins og fyrirfólkið sjálft látið það gott heita. A.m.k. er nafn hans að finna á gjafalista yfir samskot betri bænda og fyrirfóíks til ekkjufrúar Margrétar Narfadóttur eftir hið svip- lega fráfalls manns hennar, séra Sveinbjarnar Hallgrímssonar, fyrsta Þjóðólfsritstjóra. En hann naut virð- ingar sem kennimaður eftir að hann gerðist prestur í Eyjafirði. Jóhann Jacob Mohr lét þarna af hendi 8 skildinga, eftir því sem Norðanfari Björns Jónssonar segir. Annars gegnir furðu hvað þessi ó- lánssami maður hefur til þess að gera haft rúm auraráð, t.d. til brennivíns- kaupa, því áreiðanlega hefur verið séð um að ómagapeningurinn rynni ekki í gegnum greipar hans. Á þessu getur ekki verið önnur skýring en sú að fyrst í stað hafi hann eitthvað unnið sér inn, t.d. við smíðar eða beyksstörf, og fengið að halda þeim skildingum, og svo hafi hann lifað á slætti, eins og lesendur munu síðar kynnast. Eftir að þeim Geirþrúði hafði verið stíað í sundur, virðist allt hafa farið úr skorðum hjá honum. Drykkjuskapur hans og óregla færðist svo í aukana að fyrirfólkið afsagði að hafa hann í sín- um húsum. Kom þá til kasta bæjar- stjórnar að ráða fram úr málefnum hans. Hún brá á það ráð að jafna honum niður á bæjarbúa vissa daga- tölu eftir efnahag hvers og eins En ekki þótti þessi aðferð gefast vel. í fundargerð bæjarstjómar 23. janúar 1865 stendur: „Viðvíkjandi J. Mohr þótti það leiða til óreglu að jafna honum þannig niður á bæjarbúa, að hann væri vissa dagatölu hjá hverjum þeirra fyrir sig, og eins að það mundi verða dýrara, þar sem þá sérstaklega hefði orðið að kaupa handa honum húsnæði, þjón- ustu og fatnað, var þess því leitað enn á ný hvort enginn vildi taka hann til allrar umönnunar, eins og verið hafði að undanförnu og með sömu meðgjöf. Lofaði þá verslunarfulltrúi E. E. Möller að taka hann til allrar um- önnunar, þó með því skilyrði að hann mætti skila bæjarstjóminni honum aftur, ef hann ekki gæti tjónkað við hann eða haldið honum til reglu- semi.“ Edvard Eilert Möller verslunar- stjóri gat hvorki tjónkað við Jóhann Jacob Mohr né haldið honum til reglusemi, og bæjarstjórnin varð von bráðar að taka við honum aftur. 21. október 1865 ræðir hún um það að koma J. Mohr fyrir úti í Hrísey, á Ystabæ hjá Jóni Brandssyni, móti sanngjarnri meðgjöf. En þangað til það væri útkljáð var B. A. Steincke faktor beðinn um að selja honum fæði. En Jón Brandsson í Hrísey hefur af einhverjum ástæðum ekki treyst sér að taka við J. Mohr svo þar með var sá draumur úr sögunni. Ómögulegt er að segja um hver framvindan hefði orðið í framfærslu- máli Jóhanns Mohr ef örlögin sjálf hefðu ekki gripið inn í, öllum sjálfsagt til mikils léttis, þótt ekki sé fallegt að hafa það á orði. Þegar akureyringar vöknuðu til daglegra starfa sinna á drungalegum desembermorgni (þ. 14.) árið 1865 fundu þeir Jóhann Jacob Mohr drukknaðan í Búðarlæknum. Klem- ens Jónsson segir það eina slysið sem vitað sé um að lækur þessi hafi valdið. En bæta hefði mátt við að brennivínið og lækurinn hafi lagst á eitt að verða þessari ólánssömu niðursetu að fjör- tjóni. Vitað var að hann hafði setið að sumbli kvöldið áður og var orðinn kófdrukkinn þegar menn sáu hann síðast. Ætla hefði mátt að raunum bæjar- stjórnar út af Jóhanni Jacob Mohr væri þar með lokið. Svo var þó ekki eins og nú skal greint frá, en mála- stapp það hafði reyndar byrjað á meðan hann enn var á lífi. Eins og fyrr hefur verið greint frá andaðist móðir hans, Valgerður Mohr, útí Danmörku árið 1864 og eftir hana tæmdist honum dálaglegur skildingur í arf, 354 rbd. og 40 sk. Peningar þessir höfðu verið sendir sýslumanni til varðveislu. Hann og bæjarstjóm töldu þessa peninga rétt- mæta eign bæjarfélagsins, upp í framfærsluskuldina, og var ætlunin að láta þá renna í fátækrasjóð bæjar- ins og hefðu vitanlega komið arfþega að notum hefði hann lifað lengur. En þessi áform gengu ekki hljóða- laust fyrir sig. Erfingjar maddömu Geirþrúðar Thorarensen lögðu fram skuldabréf útgefnu af J. Mohr, þar sem hann viðurkennir skuld við erf- ingjana að upphæð 263 rbd. og 10 skildinga. Meirihluti bæjarstjórnar gat ekki fellt sig við þetta, og aldrei þessu vant stóð sýslumaður ekki einhuga með frændum sínum í þessu máli og vill leita samkomulags. Út af þessu máli var svo haldinn fundur í bæjarstjóminni með erfingj- um G. Thorarensen, og var séra Daníel á Hrafnagili mættur fyrir þeirra hönd og „bauð þessvegna að gefa upp af skuld Mohr rentur og renturentur og það sem skuldin næmi meiru en 250 rbd„ en því boði hafnaði meirihluti bæjarstjómarinnar. Ekki heldur vildi meirihlutinn gjöra þá miðlun af erfingjarnir fengju helming arfsins móts við hana, og kaus hún helst að dómstólarnir skæru úr því hvort skuldabréf Mohrs væri gilt eða ekki.“ — Þessi samþykkt var gerð 4 október 1865 þegar Mohr var enn á lífi. Heimaerbezi 127

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.