Heima er bezt - 01.09.1981, Síða 8

Heima er bezt - 01.09.1981, Síða 8
uldsstöðum. Jón var á þessum árum náinn vinur minn og ég varð fyrir gífurlegum uppeldislegum áhrifum frá hon- um, ekki síst í gegnum samræður okkar um heima og geima. hann talaði við mig eins og fullorðinn mann og glæddi meðal annars með mér kennd til náttúrunnar, lífs- ins og sögunnar. Ég hef hitt í lífinu marga alþýðumenn sem hafa bætt mér upp litla skólagöngu. Þarna í vegavinnunni kynntist ég líka Brodda Jóhannessyni, síðar skólastjóra Kennaraskólans, en þá var hann í sumarvinnu, en var annars í námi úti í Þýskalandi. Meðal íslensku þjóðarinnar er mikið af elskulegu og fjölfróðu fólki, sem lætur sér fátt óviðkomandi. Mér finnst að fólk úti á landsbyggðinni sé nær landinu og hafi dýpri skilning á því heldur en við getum nokkurn tíma haft hér í önninni syðra. Það byggir meira á fortíðinni og hugsar meira um framtíðina.“ — Margar æskuminningar áttu. Getur þú sagt mér frá fleirum? „Það var eitt sinn 1. maí að ég var að setja niður kartöfl- ur, sem var óvenjulega snemmt, og það gekk kröfuganga framhjá. Ég hef sennilega verið tólf ára. Þá strengdi ég þess ► Ottó sunnan undir húsi foreldra sinna í september 1938, áður en hann fór til Þýskalands. heit að ég skyldi fyrst og fremst gera kröfur til sjálfs mín, fremur en að gera kröfur til annarra. Ég vona að ég hafi staðið við þetta, þó með þeim undantekningum að ég er húsbóndi margra manna og ég dreg enga dul á það, að ég geri miklar kröfur til iðni og starfshæfni. Ég er raunar viss um að það er öllum fyrir bestu, því það kemur ekkert af sjálfu sér, það verður að vinna fyrir öllu.“ — Telurðu að menn eigi að njóta vinnunnar? „Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar, að í vinnunni ætti að felast gleði, en þessa afstöðu finnst mér verið að rífa niður hin síðari ár. Ég tel, það mestu dásemd, sem hægt er að hugsa sér, að vera frískur og geta unnið, — lagt eitthvað að mörkum til þjóðarbúsins. Nú er rekinn mikill áróður fyrir þvi, að menn eigi að vinna sem minnst. Slíkur áróður minnir mig helst á ástr- alska tækið búmerang, sem kastast sjálfkrafa til baka aftur, þegar því er hent. Sama verður með þennan áróður, hann mun hitta okkur aftur. Kúgunin, sem áður var við lýði, þekkist ekki lengur. Aftur á móti vantar nú jafnvægi á vinnumarkaðinn, það þarf að skapa meiri samstöðu launþega og atvinnurekenda. Og svo er nauðsynlegt að vinna ötullega gegn þeim áróðri, að vinnan geti ekki verið gleðigjafi, því að slíkar fullyrð- ingar eru alrangar.“ — Hvað olli því, að þú fórst til Þýskalands til náms? „Það var tilviljun eins og svo margt annað. Ég fór árið 1938 til að læra viðgerðir á skrifstofuvélum. Eitthvað þurfti ég að leggja fyrir mig; ég var búinn að líta í kring um mig varðandi einhverja iðngrein, en allt var lokað á þessum árum, ekki síst fyrir pilt norðan úr landi. Vinur minn Har- aldur Júliusson hitti heildsala í Reykjavík, Egil Guttorms- son, sem vantaði nema til að fara til Þýskalands til að læra viðgerðir á skrifstofuvélum. Þá var ekki nema einn maður í landinu sem annaðist þetta og komst ekki yfir það. Har- aldur sagðist vita um efnilegan mann í þetta og hugsaði þá til mín. Þetta komst á og ég fór.“ — Var það ekki erfið ákvörðun að fara til Þýskalands? „Nei ekki get ég sagt það, því áhuginn var svo mikill að læra eitthvað að hann var öllu öðru yfirsterkari. Ég var auðvitað mállaus með öllu, kunni ekkert í þýsku, nema hvað ég hafði verið i átta tímum hjá Ole Bang, lyfsala á Sauðárkróki, og ágætum vini mínum. Þegar ég fór út var ég með 38 mörk i vasanum og svolítið af frímerkjum. Þegar ég var búinn að kaupa farmiðana frá Hamborg til þess staðar sem ég átti að fara, sem var langt inn í landi (tilheyrir Austur-Þýskalandi núna), átti ég eftir eitt mark. Þá stóð ég með þrjá miða á brautarstöðinni. Þá hafði Björn Kristjánsson, annar Skagfirðingur, útbúið fyrir mig. Á þeim fyrsta stóð: „Gjörið svo vel að setja mig upp í lest sem á að fara til...“. Ég afhenti þennan miða á lest- arstöðinni og komst upp í rétta lest. Á næsta miða stóð: „Gjörið svo vel að segja mér hvenær ég á að skipta um lest“. Og loks stóð á þriðja miðanum: „Gjörið svo vel að segja mér hvar ég á að fara úr lestinni“. Ég komst á leiðar- enda og þá vildi mér það til happs, að lestarþjónninn fór einnig úr lestinni á sömu stöð og fylgdi mér til hótels. Ég sýndi hótelstjóranum þetta eina mark sem ég átti og reyndi 280 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.