Heima er bezt - 01.09.1981, Blaðsíða 10

Heima er bezt - 01.09.1981, Blaðsíða 10
— Til hvaða verkefna voru fyrstu skýrsluvélarnar keyptar? „Sameinuðu þjóðirnar ákváðu að nota ísland til töl- fræðilegra rannsókna á berklaveiki, sem hægt yrði síðan að leggja til grundvallar hliðstæðum rannsóknum annars staðar í heiminum. Hér voru öll skilyrði fyrir hendi, mjög gott manntal, góð læknisþjónusta og lítið einangrað þjóð- félag. Fyrstu skýrsluvélarnar voru keyptar með þetta verkefni í huga, en þegar öllum undirbúningsathugunum lauk, kom í ljós, að íslendingar höfðu sigrast á berklaveikinni. Verk- efnið sem slíkt var þá nánast úr sögunni, en skýrsluvélarnar voru komnar til landsins og byrjað að vinna við þær. Þar var um að ræða ýmis verkefni, sem sýndu að þörf var fyrir slíkan tækjabúnað hér á landi, svo að vélarnar fóru ekki úr landi, en kostnaðurinn við kaup á þeim hafði skipst til helminga á milli Sameinuðu þjóðanna og Islendinga. Meðal þeirra fyrirtækja, sem notfærðu sér þessa tækni í upphafi voru Rafmagnsveita Reykjavíkur og Samvinnu- tryggingar- I samanburði við þær tölvur, sem nú eru í notkun, voru þessar skýrsluvélar ekki mikils megnugar. Tækninni á þessu sviði hefur skilað svo áfram að með ólíkindum er og það er ekki að ósekju talað um byltingu í því sambandi.“ — En þú lagðir grundvöllinn að þínum rekstri með stofnun Skrifstofuvéla h.f., var það ekki? „Jú, það er rétt. Ég stofnaði það fyrirtæki, þegar ég kom heim eftir dvölina í Þýskalandi og Danmörku, sem ég sagði frá áðan, annaðist sölu skrifstofuvéla og viðgerðir á þeim. Skrifstofuvélar höfðu meðal annars umboð fyrir skrif- stofutækjabúnað frá stórfyrirtækinu IBM, International Business Machines, og sáu um alla þjónustu í sambandi við IBM-vélar hér á landi. Það var svo árið 1967 að IBM-fyrirtækið keypti þá deild í Skrifstofuvélum h.f., sem hafði annast sölu og viðhald skýrsluvéla þeirra hér á landi. Þá var útibú þessa alþjóða- fyrirtækis, IBM á Islandi, stofnað og ég ráðinn forstjóri þess. Þegar þetta gerðist voru starfsmenn Skrifstofuvéla h.f. 32. Helmingur þeirra eða 16 urðu eftir í fyrirtækinu, en hinir 16 urðu starfsmenn IBM á íslandi. Nú eru starfsmenn Skrif- stofuvéla milli 40 og 50, en hjá IBM á Islandi vinna milli 60 og 70 manns. Þess má geta, að Skrifstofuvélar h.f. hafa enn Verkstæðismynd frá Laugavegi 11, en þar vorit Skrifstofuvélar til húsa frá 1950. þar til að þar brann átrið 1963 i mai. Ottó bjó þá í herbergi inn af verkstœðinu. 282 Heima er he:i

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.