Heima er bezt - 01.09.1981, Qupperneq 11

Heima er bezt - 01.09.1981, Qupperneq 11
A myndinni eru ásamt Ottó f.v. Jón Óttar Ólafsson i stjórn Skrifstofuvéla frá fyrstu tíð, Lúðvík Andreasson, sölustjóri og Sigurður Gunnarsson, sem verið hefur forstjóri frá 1967. Vélin á myndinni er af fyrstu sjálfritandi ritvél sem flutt var til landsins. Ein af mörgum tilraunum Ottós til að bœta verkmenntun í landinu, en þessi tilraun er fyrst núna 10 árum síðar að byrja að bera ávöxt. umboð fyrir þær framleiðsluvörur IBM, sem snerta skrif- stofutækni svo sem ritvélar og því um líkt, en allt sem tengist skýrsluvélum og tölvum er að finna á starfsvettvangi IBM á íslandi." — Telurðu að með þessari skiptingu hafi verið stigið spor í rétta átt á sínum tíma? „Já, tvímælalaust. Það hefur komið í ljós, að slíkt fyrir- komulag er miklu heppilegra fyrir íslenska markaðinn, en gamla fyrirkomulagið. Það að IBM annast sjálft allan rekstur í sambandi við skýrsluvélarnar hér á landi hefur gert okkur kleift að fylgjast með tækninni mun betur en annars hefði verið mögulegt. íslenskt fyrirtæki hefði ekki haft bolmagn fjárhagslega til þess að nýta sér öra þróun í þessum efnum. En með þessu móti er kostnaðurinn við það greiddur úr sameiginlegum sjóðum IBM og dótturfyrirtæki á litlum markaði eins og þeim íslenska er ekki látið dragast afturúr tæknilega, þótt hlutfallslega sé miklu dýrara að láta okkur njóta nýrrar tækniþróunar en dótturfyrirtækin í stóru löndunum.“ — Þú ert sem sagt íslenskur forstjóri útlends fyrirtækis á íslandi? „Það má til sanns vegar færa, og ég kann því vel. í reynd finnst mér þetta vera mitt eigið fyrirræki og ég legg áherslu á að fyrirtækið geri íslensku þjóðinni gagn. Hér fæst ég við heillandi verkefni, og þótt álagið sé oft mikið vegur starfs- gleðin upp á móti því. Það er ánægjulegt að geta veitt öllum þessum starfsmönnum góða vinnu og taka þátt í daglegum viðfangsefnum þeirra og vera eins konar trúnaðarvinur þeirra.“ — Er þér sem forstjóra þröngur stakkur skorinn af hálfu aðalstjórnenda IBM? „Það má segja, að mér sé fyrst og fremst skorinn sá stakkur, sem ég kann við mig í. Það skal viðurkennt, að þær starfsreglur, sem húsbændur okkar setja eru strangar, en þær eru umfram allt heiðarlegar. Ég get því á hverju kvöldi farið heim fullviss um að við hjá IBM höfum gert allt rétt, allir starfsmenn hafi gert sitt besta og komið heiðarlega fram af hálfu fyrirtækisins gagnvart öllum viðskiptavinum okkar, hvort sem þeir eru smáir eða stórir. Öllum við- skiptavinum IBM er gert jafnhátt undir höfði og hjá fyrir- tækinu er ekki síður lögð áhersla á heiðarleika gagnvart keppinautunum.“ Ottó hefur sinnt félagsmálum mjög mikið og sérstaklega hefur kirkjan fengið að njóta krafta hans. Hann segist hafa mikinn áhuga á trúmálum, og sama er að segja um konu hans, Gyðu, dóttur Jóns Þ. Björnssonar skólastjóra á Sauðárkróki. Jón hefur verið talinn einhver dyggasti þjónn kirkjunnar í leikmannastétt, sem um getur, og því ekki óeðlilegt að dóttir hans hafi áhuga á þessum málum. Ottó Heimaerbezt 283

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.