Heima er bezt - 01.09.1981, Blaðsíða 12

Heima er bezt - 01.09.1981, Blaðsíða 12
hefur verið í stjórn Hjálparstofnunar kirkjunnar frá upp- hafi og er núna formaður stjórnarinnar, þá er hann for- maður kirkjubyggingasjóðs Reykjavíkurborgar. Hann hef- ur verið safnaðarfulltrúi í Bústaðasókn í fjölda ára og var einnigformaðurkirkjubyggingarnefndarsömukirkju. Þrátt fyrir þessa upptalningu er margt ótalið og skal hér látið staðar numið í því efni. Það skal aðeins sagt, að með ólík- indum er hve víða spor Ottós liggja í félagsmálum. Ég spurði hann hvers vegna hann starfaði svo mikið fyrir kirkjuna. „A vegum kirkjunnar eru ótal verkefni, sem þarf að sinna. Á stærstu stundum lífs okkar viljum við geta verið í veglegum kirkjubyggingum svo að dæmi sé nefnt. Ein- hverjir verða að sjá um að koma þessum húsum upp. Þó svo að kirkjan okkar heiti þjóðkirkja verða einstaklingarnir að standa undir öllu starfi hennar, og því meira sem félags- starfið er innan kirkjunnar, þeim mun sterkari verður kirkjan meðal þjóðarinnar. Annars býst ég við, að kirkjan hafi svo mikil ítök í mér og ég tengsl við hana, vegna þess að ég er sannfærður um að siðgæðis- og kærleikskenning kristinnar trúar, sé besti grundvöllur, sem ein þjóð getur byggt á.“ Við Ottó hófum samtalið á því að spjalla um Sauðárkrók og því best að enda þar einnig. Hann hefur endurnýjað tengsl sín við æskustöðvarnar með því að kaupa sér hús á Sauðárkróki og þar ver hann öllum sínum sumarleyfum. Segist aldrei eyða þeim í sólarlandaferðir. Gyða kona hans er einnig frá Sauðárkróki þannig að bæði eiga þau rætur sínar í bænum og gamla vini. Um Skagafjörð farast Ottó svo orð: „Það er svo undar- legt að þó ég sé búinn að ferðast víða um heiminn þá hef ég aldrei nokkurs staðar orðið eins gagntekinn af fegurð eins Fjölskylda Ottós 1964: GyöaJóns- dóttir, Óttar, Helga, Kjartan og Geirlaug. og í Skagafirði. Ég hef aldrei getað slitið þær taugar sem ég á til Skagafjarðar og alltaf langar mig norður og alltaf fæ ég endurnæringu af því einu að koma og vera fyrir norðan og hitta þar alla mína tryggu vini, sem ég hef átt frá barnæsku. Manni er tekið fagnandi, já Skagfirðingar eru góðir menn og glaðir. Ég held að þeir kunni að lifa lífinu lifandi og betur heldur en ýmsir aðrir íslendingar. Það er sagt að Skagfirðingar séu ekki miklir búmenn, en þeir eru þó eins bjargálna og aðrir þegnar þjóðfélagsins og hafa það fram- yfir að njóta lífsins meira. Skagfirðingar hafa átt marga afburðamenn í listum. Leikfélagið er einnig frægt um allt land og þá ekki síður Sæluvikan. Allt þetta er í stöðugri breytingu og finnst sum- um af eldri kynslóðinni að allt sé í afturför, en lífið er nú einu sinni þannig að það sem var kemur aldrei aftur. Þegar þeir, sem nú eru ungir, hugsa seinna meir til þeirrar Sælu- j viku, sem þeir lifa í dag, þá verður hún sú eina og sanna. Það góða við Skagfirðinga er að þeir velta sér ekki upp úr j vandamálunum. Annað hvort leysa þeir þau eða lifa með þeim ókvartsárir.“ Það er dálítið skrítið að sitja í háhýsi í Reykjavík og ræða við Ottó um gamla Sauðárkrók. Það er hreint ótrúlegt hversu sterkar taugar hann ber til heimabyggðar sinnar, og j hve vandlega hann gætir þess að missa ekki tengslin við staðinn og fólkið. Þegar hann kemur norður er honum fagnað eins og heimamanni eftir langt ferðalag. Sauðárkrókur hefur notið þess ríkulega og með ýmsum hætti að eiga Ottó A. Michelsen að, strákinn sem byrjaði að veita athafnaþrá sinni útrás í því að smíða kassabíla og skíði í líkhúsinu á Sauðárkróki, þar sem myrkfælnin varð að láta undan at- hafnaþránni. 284 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.