Heima er bezt - 01.09.1981, Qupperneq 16
r"
„Þetta örstutta orðtak, þessi þrjú orð, heim
að Hólum, lýsa betur en löng ræða hvers
konar sess staðurinn skipaði í huga og hjarta
fólksins.“
Grein og myndir:
GUÐBRANDUR MAGNÚSSON
Sunnudaginn 16. ágúst var haldin
svokölluð Hólahátíð að Hólum í
Hjaltadal. Slík hátíð hefur verið
haldin undanfarna áratugi, en upphaf
þessara hátíðahalda má rekja til þess
er verið var að safna fé til byggingar
tumsins, sem setur svo einkennandi
svip á Hólastað og byggður var til
minningar um Jón Arason biskup.
Hólahátíðir þær sem nú eru haldnar
eru fyrir forgöngu Hólafélagsins, en
það var stofnað árið 1964. Verkefni
félagsins er annars að vinna að eflingu
Hólastaðar á bæði kirkjulega og ver-
aldlega vísu. Höfuðáherslan hefur
verið lögð á baráttuna fyrir endur-
reisn biskupsstóls á staðnum, en þar
sat síðast biskup árið 1798.
Hólafélagið hefur alla tíð barist
fyrir því að stofnaður verði skóli á
Hólum með kristilegu ívafi og var
fyrst í stað rætt um stofnun lýðhá-
skóla. Guðrún Þ. Björnsdóttir frá
Veðramóti stofnaði sjóð í því skyni
árið 1969, að reistur verði skóli á
Hólum sem hafi það að aðalmarkmiði
að efla þjóðrækni, íslensk fræði,
félagsþroska og kristilegt uppeldi.
Ekki munu allir sammála um nauðsyn
slíks skóla á Hólum og telja ýmsir
prestar að kirkjan hafi nóg með að
reka lýðháskólann í Skálholti. Þó svo
ekki hafi enn verið stofnaður sérstak-
ur skóli á Hólum á vegum kirkjunnar,
þá hefur Hólafélagið starfrækt þar á
sumrin leikmannaskóla fyrir ýmsa
starfsmenn kirkjunnar í námskeiðs-
formi.
Merkilegt skólastarf hefur verið
unnið á Hólum í nær heila öld, en
sýslunefnd Skagafjarðarsýslu keypti
Hóla og stofnaði þar bændaskóla árið
1882. Þessi skóli dafnaði eftir því sem
árin liðu og varð brátt skóli Norð-
lendinga allra og upp úr aldamótum
tók landssjóður að sér rekstur skólans.
Síðan hefur skólinn starfað af fullum
krafti, nema tvö síðastliðin ár að lægð
var og reglulegt skólahald lá niðri. Nú
í vetur mun hins vegar skólahaldið
upp tekið, er það vel og ætti því að
vera hægt að halda upp á aldarafmæli
skólans á næsta ári með sæmd.
Ýmsum kirkjunnar mönnum hefur
löngum sviðið hve Hólar í Hjaltadal
skipa lágan sess í starfsemi kirkjunnar
í dag. Minnast menn þá þess tíma
þegar allir þræðir lágu heim að Hól-
um og þar var miðstöð andlegs og
veraldlegs valds í landinu.
Fyrsti biskup á Hólum var Jón ög-
mundsson og stofnaði hann skóla á
staðnum. Fékk hann til skólans mjög
hæfa kennara, m.a. fékk hann erlenda
kennara sér til liðveislu og var skólinn
mjög rómaður. Vekur það sérstaka
288 Heima er bezt