Heima er bezt - 01.09.1981, Síða 17

Heima er bezt - 01.09.1981, Síða 17
Prestar Hólastiftis hinsforna ganga í prósessíu til kirkju. athygli að konur sóttu skólann ásamt körlum. Gaman er til þess að vita að nú löngu seinna, eða næsta vor, verða á ný útskrifaðir stúdentar í Skagafirði, frá Fjölbrautarskólanum á Sauðár- króki. Talið er að á dögum Jóns Ög- mundssonar hafi orðið til orðtækið „heim að Hólum“ og gilti þá einu hvaðan gest bar að garði, allir komu heim að Hólum. Gísli Magnússon heitinn í Eyhildarholti, baráttumaður fyrir endurreisn Hóla, sagði eitt sinn í ræðu sem hann hélt í dómkirkjunni á Hólum: „Þetta örstutta orðtak, þessi þrjú orð, heim að Hólum, lýsa betur en löng ræða hvers konar sess staðurinn skipaði í huga og hjarta fólksins. Miðað við núverandi ástand felst raunar í orðtakinu nöturlegt háð.“ Þó svo ýmsir telji veg Hólastaðar lítinn í dag, þá var hann enn minni fyrst eftir að biskupsstóll var þar af- lagður, staðurinn var bókstaflega rú- inn öllu nema sjálfri dómkirkjunni, sem gerð var að útkirkju, annexíu. Prentsmiðjan sem Jón Arason hafði flutt með sér og haldið hafði nafni staðarins á lofti lengi, fyrst og fremst fyrir að þar var íslensk biblía gefin út í fyrsta sinn af Guðbrandi Þorlákssyni biskupi, flutt á brott. Þá var niður- læging staðarins fullkomnuð. Skagfirðingum og raunar Norð- lendingum öllum sveið hvernig fyrir þessu forna höfuðbóli var komið og hófust handa um endurreisn staðarins með því að sýslunefnd Skagafjarðar- sýslu keypti jörðina og stofnaði þar bændaskólann, Hólafélagið berst fyrir því að bisk- upssetur verði að Hólum á nýjan leik og má segja að árangur af þeirri bar- áttu sé nokkur. Tillaga kom fram á Alþingi upp úr aldamótum um að endurvekja gömlu biskupsdæmin, en ekki naut sú tillaga meirihlutafylgis á Alþingi. Þó voru upp úr þvi skipaðir vígslubiskupar sem kenndir eru við gömlu biskupsdæmin. Þetta var á þeim tíma hugsað sem bráðabirgða- lausn, en hefur haldist síðan. Vígslu- biskuparnir sitja þó ekki á hinum fornu biskupssetrum, heldur á Sel- fossi og Akureyri. Þeim sem barist hafa fyrir endurreisn biskupsstóls á Hólum hefur ekki mikið þótt til þess- arar málamiðlunar koma, enda ekki von, Hólar verða ekki færðir úr stað og Hólabiskup mun aldrei geta setið annars staðar en á Hólum með réttu. Um þetta sagði Gísli Magnússon: „Ég óttast að þarna gæti orðið til varanlegs tjóns sú tískubundna trú, sú ónáttúra sumra manna, leikra og lærðra, að svokallaðir æðri embættismenn verði að eiga heima og hafa embættisbústað sinn í sem mestu fjölmenni, það sé eigi samboðið stöðu þeirra og virðingu að sitja í sveit.“ Á hinn bóginn hlýtur það að vera ljóst að Hólar sem voru koma ekki aftur, við endurtökum ekki liðna sögu, þó svo við getum haft hana að leiðarljósi í nútímanum. Sá timi er einfaldlega liðinn þegar Hólar voru miðstöð andlegs og veraldlegs valds í landinu. Þrátt fyrir það er ekkert sem mælir á móti því að biskup gæti setið að Hólum, það yrði örugglega til þess að starfsemi kirkjunnar á staðnum myndi aukast og þeir þræðir sem þangað leiða myndu styrkjast. Eins og áður sagði þá hefur Hóla- hátíð verið haldin í nokkra áratugi og Heimaerbezt 289

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.