Heima er bezt - 01.09.1981, Page 20

Heima er bezt - 01.09.1981, Page 20
Jón Bjamason, nýráðinn skólastjóri Bændaskólans á Hólum, í viðtali við Heima er bezt: „Við endurreisum aldrei fortíðina, hún verður að standa fyrir sínu. Við eigum að beina kröftum okkar að nútíðinni og búa okkur undir framtíð- ina. Við munum leggja allt kapp á að byggja upp þennan stað, þannig að hann megi þjóna hlut- verki sínu vel.“ Bændaskóli á Hólum Mynd og texti: GUÐBRANDUR MAGNÚSSON Næsta vetur mun Bændaskól- inn á Hólum í Hjaltadal taka til starfa á ný af fullum krafti eftir að reglulegt skólahald hefur legið þar niðri síðastliðin tvö ár. Ráðinn hefur verið nýr skólastjóri, Jón Bjarnason, áð- ur bóndi í Bjarnarhöfn á Snæ- fellsnesi. Hann er stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík, búfræðingur frá Hvanneyri og lauk kandidatsprófi frá land- búnaðarháskólanum í Ási í Noregi. Hann stundaði síðan kennslu við Bændaskólann á Hvanneyri þangað til hann hóf búskap í Bjarnarhöfn. „Það er þörf á öðrum landbúnaðar- skóla en skólanum á Hvanneyri. Bú- fræðinámið hefur verið lengt i tvö ár, sem hefur það i för með sér að út- skriftarmöguleikar skólanna minnka um helming. Ef við lítum á þarfir stéttarinnar, þá væri það of lítið ef einungis skólinn á Hvanneyri væri starfandi. Það er meginástæðan fyrir því að ákveðið var að hefja starf hér á Hólum að nýju,“ segir hinn nýi skólastjóri Bændaskólans á Hólum í samtali við blaðamann Heima er bezt. „Búið er að ráða kennara við skól- ann og lokið við að fara yfir náms- umsóknir og ákvarða hvaða nemend- ur verða í skólanum. Til að byrja með mun Hólaskóli útskrifa um 15 nem- endur á ári, en stefnt er að því að sú tala hækki nokkuð þegar aukið hefur verið við húsakost skólans og bætt það sem fyrir er.“ — Er einhver verkaskipting á milli skólanna á Hvanneyri og Hólum? „Skólarnir starfa báðir samkvæmt sömu lögum og reglugerð og í öllum meginatriðum starfa þeir á svipaðan hátt. Hinsvegar munum við reyna að skipta á miili okkar greinum, sem eru litlar umfangs, þannig að hægt verði að sinna þeim betur. Samkvæmt nýju reglugerðinni gefst nemendum kostur á að velja grein á síðustu önn og fái þannig að leggja áherslu á einhverja sérstaka búgrein. Þar mun verka- skipting skólanna fyrst og fremst koma til. Við stefnum að því hér að bjóða t.d. upp á fiskeldi, loðdýrarækt og hrossarækt. Nú, fleiri búgreinar geta orðið valgreinar, s.s. hænsna- og svínarækt. Einnig verðum við að búa fólk undir afleysingastörf í sveitum, sem nú eru komin inn í landslög og þarf því að sinna menntun þess fólks sem kemur til með að vinna þau störf. Hvaða valgreinar í boði verða kemur til með að ákvarðast af vilja nemenda í þeim efnum, en meiningin er að skólarnir reyni að auka fjölbreytni námsins. I þessu sambandi er mjög náið samstarf milli bændaskólanna.“ — Hver er ástæðan fyrir niðurkeg- ingu Hólaskóla tvö síðastliðin ár? „Þær geta verið margar og erfitt að benda á eina ástæðu. Á síðastliðnum árum hefur átt sér stað þjóðfélagsum- ræða, sem ekki er reglulega vingjarn- leg landbúnaðinum. Það hefur haft sín áhrif og á sjálfsagt enn eftir að hafa enn meiri áhrif til að draga kjark úr fólki. Það hefur einnig sín áhrif að menntunarmöguleikar fólks hafa al- mennt aukist og dregið þannig úr sókninni í landbúnaðarskólana.“ — Hverjir eru það helst sem sœkja í bœndaskólana? — Það eru fyrst og fremst börn bænda, bæði piltar og stúlkur, stúlkur verða hér um þriðjungur nemenda. Ásókn stúlkna í bændaskólana hefur vaxið þó nokkuð á síðastliðnum árum 292 Heimuerbezl

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.