Heima er bezt - 01.09.1981, Side 24

Heima er bezt - 01.09.1981, Side 24
Brattahlíð, séð frá bœ Eiríks rauða. þar einnig smáfannir. Ekki var hægt að kanna þessa hlíð með öðru móti en sigla með landinu og ganga á land, þar sem vænlegast var til uppgöngu. Príluðu strákarnir við kortagerðina þar upp í eggjar, og þegar ein slík þversneið hafði verið skoðuð, færði báturinn sig um set, og önnur þver- sneið var tekin, auk þess sem við skoðuðum hlíðina með sjónaukum frá bátnum. Ég varð að láta mér nægja að skoða neðstu stallana, því að ekki hætti ég mínum stirðu löppum í fjallaklifur. En fallegt var að sigla þar inn fjörðinn. Allmikill ís er á Sermilikfirði allt sumarið, kemur hann úr skriðjökli miklum, sem geng- ur fram í fjarðarbotninn og ef til vill berst eitthvað af stórísnum að sunnan inn í fjarðarmynnið, enda hét fjörð- urinn ísafjörður til forna. Berst ísinn fyrir skagann og eru lengstum jakar framan við höfnina í Narssaq. Fjörð- urinn er allbreiður, og virtust mér hlíðarnar norðan hans enn gróður- minni en þar sem við fórum, og eru þær þó naumast eins brattar, en und- irlendi gat ekki kallast þar. Þar sá ég í fyrsta sinni rauðan sjó, stafar liturinn líklega fremur af smávöxnum rauð- þörungum en dýrasvifi. Voru dumb- rauð belti yfir fjörðinn, en eðlilegur sjávarlitur milli þeirra. Alloft varð að hægja ferðina til að smjúga milli ís- jaka, og þótti mér þó Lassi minn, sem stýrði bátnum furðu djarfur í sigling- unni. Lokaþáttur ferðarinnar 1977 var sigling frá Narssaq inn undir botn Eiríksfjarðar alllangt inn fyrir Narss- arssuaq, og lentum við þar. Veður var eitt hið fegursta sem verður á þessum slóðum, og er þá mikið sagt, því að margir voru góðviðrisdagarnir. Hlíðin inn frá Narssarssuaq er víða vaxin kjarri, og eins er nokkurt kjarr í fjarð- arbotninum, en þar fellur allvatns mikil á til sjávar, og eru leirur fram af ósi hennar, og er hún þó ekki jökulá. Við lentum nálægt stað, sem gerð var tilraun með ræktun barrtrjáa fyrir síðastliðin aldamót. Heitir þar Ros- envinges Plantage, og er kennd við danska grasafræðinginn Kolderup Rosenvinge, sem valdi staðinn. en hann var gamall kennari minn. Svo sem góðan húsaveg frá gróðurreitnum eru miklar rústir af fornaldarbæ. Mun það vera Stokkanes það, sem getur um í Fóstbræðra sögu. Erum vér þá komin á slóðir Þormóðs Kolbrúnar- skálds, en hann dvaldist þar í skjóli Stokkanesbænda. Komu þeir honum til vistar á kotbæ inni í fjarðarbotni, „inni undir jökli“ segir sagan og var hann þar í skjóli Finnu hinnar fjöl- kunnugu, svo að Brattahlíðarbóndi fékk ekki fundið hann. Vel mega þessar frásagnir vera sannsögulegar, þótt skortur á staðþekkingu og hjátrú kunni eitthvað að hafa fært þær úr lagi. Bæjarrústir í Eiríksfjarðarbotni gætu vel verið af bæ Grímu kerlingar, enda þótt langt sé til jökuls, og nú sé alllöng sjávargatan þaðan sem skip- um yrði lent, því að mjög hefir fjörð- urinn fyllst af framburði árinnar. Skammt fyrir ofan gróðurreitinn, sem getið var, er merkileg rúst. Veggir standa þar meira en mannhæðarháir hlaðnir úr stórum steinum. Er húsið gert með fram klettabelti, svo að kletturinn er annar langveggurinn. Ekki verður greiðlega í það ráðið, hverskonar mannvirki þetta hefir verið, það er of lítið að flatarmáli til þess að vera fjárrétt og einnig of vandað að veggjum. Birgðaskemma væri trúlegri, en þó hefði hún verið reist fullfjarri bæ. En gæti það ekki hafa verið varnarvirki? Bratt er upp að því og erfitt aðsóknar, og ekki er það lengra frá bænum en svo að vel hefði mátt flýja í það skjól, ef vart hefði orðið ófriðarskipa utan fjörðinn. Barrviðirnir í Rosenvinges Plantage eru lítils vaxtar en allmörg tré tóra þar þó. Paul Bjerge hefir gróðursett þar dálítið af barrtrjám á síðustu árum, og dafna sum þeirra sæmilega, en allt um það hefi ég ekki trú á skógrækt í Grænlandi, jafnvel þó að Grænlend- ingar eignuðust sinn Hákon. Annað sumarið Næsta sumar 1978 hófst kortagerðin við Brattahlíð, og var nú mestallur skaginn út að Narssaq kortlagður. Frá botni Eiríksfjarðar liggur dalur Qor- dlortoq yfir til Sermilikfjarðar. Undirlendi er ekki mikið þar, en ná- lægt vatnaskilum. sem eru nálægt miðjum dal milli fjarðanna eru nokk- ur mýrasund, en annars er dalurinn einkum vaxinn víðikjarri, og gras brekkur eru þar nokkrar. Næst Ser- milik er mikið af grænlenska birkinu. 296 Heima er bezl

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.