Heima er bezt - 01.09.1981, Síða 25

Heima er bezt - 01.09.1981, Síða 25
sem kalla mætti kirtilbirki, af kirtlum sem eru á árssprotunum. Það er bæði lágvaxið og jarðlægt. er vaxtarlag þess mjög líkt fjalldrapanum hér heima, en það sem mest skilur á milli af ytri einkennum eru kirtlarnir og blaðlög- unin, sem þó er oft furðu lík, svo að hægt er að villast á þessum tegundum við fljótlega skoðun. Fyrst var farið inn í fjarðarbotninn og um Qordlortoqdal, en næsta ferð var yfir til Tasiussaq við Sermilik fjörð. Yfir hálsana þar á milli verður farið með dráttarvél og vagn. Þarna gengur inn krókóttur fjörður eða stór vogur frá Sermilikfirðinum og er hann að mestu lokaður út til fjarðar- ins. Heita slíkir hálfluktir firðir eða vogar Tasiussak á grænlensku, og eru þau örnefni allvíða í Eystri byggð og sjálfsagt víðar. Heldur þótti mér hrjóstrugt þar við Tasiussaq enda stendur kuldi utan af firðinum, sem nær alltaf er hálffyltur af ísi frá jökl- inum, en auk þess má sjá þess merki. að landið er spillt af of mikilli beit. en þarna við voginn hafa risið upp þrjú myndarleg býli eru þar allstór tún og sumt af þeim að minnsta kosti ræktuð upp af fornaldartúni, en rústir eru þar af fornbýlum, og hefir verið þar þétt- býlt fyrrum. Við bjuggum þarna í sumarhúsi. sem einn bóndinn hefir reist til að hýsa ferðamenn. sem fara gönguferðir um fjöll og dali. Eru slík hús allvíða við byggðirnar. Þar eru rúmstæði með dýnum. og jafnvel teppum sums staðar og eldunar- og mataráhöld. Losar þetta ferðamenn mjög við að bera með sér farangur á göngu og veiðiferðum, en margir fara um þessi héröð til silungsveiða í vötnum. í ársprænu. sem fellur niður með túninu sáum við poll fullan af silungi. Eftir forsögn Lassa gripu strákarnir þar nokkra silunga með höndunum. til að hafa í kvöldmatinn. Þótti okkur næsta furðulegt hve gæfur fiskurinn var. En síðar kom upp úr kafinu. að þetta var einskonar fisk- eldispollur bónda. Báðum við hann afsökunar á framferði okkar. en hann tók því ljúflega og bauð okkur inn upp á kaffi. Var þar myndarheimili sem aðrir sveitabæir. Þegar lokið var vinnu við Brattahlíð var haldið til Upernaviarssuk og lokið kortagerð þar umhverfis, fór ég nú fyrsta sinn um fjöllin eða öllu heldur hálsana þar norður af. Er þar víða vel gróið, en næst stöðinni eru áhrif vetr- arbeitarinnar sýnileg í minni grósku en annars staðar. Er þar bending um hversu fara muni, ef ekki er höfð full gát á. En eitt er þar, sem okkur hér heima þætti harla gott, og það er að uppblásturshætta er engin. Til þess er jarðvegurinn of þunnur og þungur. Þegar lokið var störfum þar, var haldið suður á firði. Fyrst varð fyrir ytri hluti skagans milli Einarsfjarðar og Lichtenaufjarðar, og síðan var far- ið inn með Lichtenaufirði. Hann heitir á grænlensku Agdluitsoq en Hrafnsfjörður til forna. Fóru strákar þar upp um öll fjöll, en ég varð að gera mér að góðu að skoða mig um umhverfis lendingarstaðina, sem voru allmargir, og um neðan verðar hlíðar. Þarna er mikill fjöldi eyja og oft varð að fara um þröng sund. Við vorum í tveimur bátum. Stýrði Kaj öðrum en Grænlendingurinn Hans Jakob hin- um. glaður maður og ókvalráður. Nú komumst við í fyrsta sinn í kast við Stórísinn, sem lá þétt upp að nesjun- um og fyllti víða í eyjasundin. Stórís- inn er rekís frá austurströnd Græn- lands. berst hann með straumum suður fyrir Grænlandsodda, Hvarf, og síðan norður með vesturströndinni allt norður fyrir Narssaq. Kemur hann að ströndinni seint á útmánuð- um og stundum jafnvel ekki fyrr en í maí og liggur fram í júlí-ágúst, og truflar mjög siglingar þar milli hafna. Mestur hluti hans er flatís, en með honum berast stórkostlegar ísborgir, heil fjöll, sem komin eru frá skrið- jöklum Austur-Grænlands, eru borg- arísjakarnir á Eiríksfirði og Sermilik eins og leikföng hjá þessum ísfjöllum, sem rísa ef til vill 100 metra upp úr sjó, en þó er það ekki nema níundi eða tíundi hluti þeirra, sem upp úr stend- ur. Rekísinn leggst einkum þétt upp í hin þröngu eyjasund, en sjaldan gengur hann að ráði inn í firðina. Lentum við þarna í nokkrum erfið- leikum, að þræða vakirnar milli ís- fiekanna, og stundum var eina vökin, sem farið var eftir með landinu, svo nærri, að oft stukkum víð í land og gengum spölkorn samferða bátunum. Oft varð að ýta jökum frá með krók- stjökum. Þeir Kaj og Hans Jakob voru hvort tveggja í senn djarfir og dug- legir, enda vanir slíkum ferðalögum, svo að áfram mjakaðist. Þeim var þetta daglegur viðburður á ferðalög- um, en mér fannst það hálfglæfralegt, en sá þó, að lífshætta var ekki á ferð- um. því að við vorum uppi undir landi, og ísinn svo þéttur. að auðið væri að komast í land eftir honum, ef llilleq. Helnui er he:i 297

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.