Heima er bezt - 01.09.1981, Side 27

Heima er bezt - 01.09.1981, Side 27
DÆGUR Fyrir 10 árum (sept. 1971) birtist í þættinum ljóðið Kveðja eftir Benedikt Þorkelsson kennara sem kenndur var við Kvíabekk í Ólafsfirði þótt þingeyingur væri, fæddur 15. febr. 1850 á Belgsá í Fnjóskadal, dáinn 26. sept. 1931. Ljóð þetta orti Benedikt í orðastað Vesturfara sem nauðbeygður var að skiljast við unnustu og ættland. Vegna þessarar ljóðabirtingar bárust þættinum mörg bréf frá fólki sem þekkti Benedikt, Var augljóst að hann hefur verið sam- ferðafóki minnisstæður fyrir kveðskap sinn, t.d. ritaði Snorri Sigfússon, fyrrv. námsstjóri, um hann í Skólablaðið 1915 og segir frá öðru ljóði og atviki í ævisögunni Ferðinni frá Brekku. Nú hefur þættinum borist annað ljóð eftir Benedikt sem mér finnst sjálfsagt að birta. Þetta er ljóðabréf til vinar hans Guðmundar Stefánssonar bónda á Minnibrekku í Fljótum. Náfrænku minni, Jónu, dóttur Guðmundar, þakka ég sendinguna og vona að einhverjir hafi gaman af. LJÓÐABRÉF Virtum bundni, vinur minn, vitur og lundarglaður, þinn á fundinn flöktir minn fálkinn þundar hraður. Heilsan góða hann frá mér, horfin móði og trega, fram í ljóðum þylur þér, þýða og bróðurlega. Vantrú fyllir veraldarrann, voðann gyllir lengi, síst að hyllast sannleikann, svíkur og villir mengi. Trúin eyðist, þraut er þung, þverrar heiður granna, sorglega leiðist æskan ung út á skeið lastanna. Hótar skaða heims um bý, holds munaðar sýki, saurugu baðast öldin í ólifnaðar dýki. Kærleiks hlýja kólnar lind, klækir nýir fæðast, okur drýgist, safnast synd, svik og lýgi glæðast. Eigingirndin eðlisköld, elst í lyndi og glæðist, flesta blindar ýta öld, ýmsum myndum klæðist. öfund stríðust æsir geð, ást og blíðu deyðir, ýmsri níðings aðferð með, æru lýða meiðir. Flestir ljúga og hræsna hér, heims að búa lögum, manni að trúa óhætt er öngvum nú á dögum. Hvar mun næði að hitta og frið hér á svæði tára? Sjóli hæða legg oss lið, lina mæðu sára. Þá hefur Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir, Lundi, Skaga- strönd, sent þulu til þáttarins og spyr um höfund. Því miður get ég ekki leyst úr þeirri spurningu en kannske þekkja lesendur hann. Ég er sammála Jónu um það að þetta er falleg barnagæla, en hún gefur einnig sýn inn í veröld sem var og það er líka gagnlegt og gott. Ég þakka Jónu Guð- rúnu sendinguna. AMMA RAULAR VIÐ BARN Vilt þú ekkí, vinur litli, vera með i ferð meðan sólin signir láð og sefur fuglamergð. Við á bláum báruvængjum berumst út um lönd létt og hratt á litla bátnum, leggjum svo að strönd. Þar sem fjörugullið geymir gömul sögubrot og á Ijóði og ævintýrum aldrei verður þrot. Leiddu ömmu. litli vinur. löbbum svo af stað yfir mó og mosaþembur, mýrar og forarsvað. Við skulum finna lítinn bæ sem liggur móti sól, göngumóðum gott er þar að gista og finna skjól. Svanir fljúga sundum yfir, sóley gyllir hól, þar I túni er lltil lind og lækur nokkuð fjær, ekki finnst í öðrum sveitum önnur lind svo tær. Heima er bezi 299

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.