Heima er bezt - 01.09.1981, Blaðsíða 28

Heima er bezt - 01.09.1981, Blaðsíða 28
Hún hefur aldrei annað séð en opinn himinninn af því hafa augu hennar undrafagurt skyn, mennirnir brugga meinleg ráð í myrkrinu. litli vin. Þar á litla ióðan hreiður, lynginu græna í. og á háum hamrastalli hrafninn ber við ský. Örn og valur yfir sveima, ekki er lömbum þá tryggt að hlaupa mömmu sinni frá. Urðar kött og refinn rauða rekast stundum á. Nú eru kýrnar komnar út og kálfar taka á sprett, ærnar eru upp á heiði eða suður víð rétt, inn á mýri hrossahópur hleypur upp með leik, brúnieit hryssa og gamli Gráni, þau eru bara spræk. aftast röltir einhver klár með annarlegum kæk. Bóndinn hvassan brýnir ljá og byrjar svo að slá, húsmóðirin hleypur út því hún á mikla ljá. Röskar stúlkur rembast við að rifja stóran flekk, telpuhnokki trítlar um og tekur rök í sekk. allir vinna virkum höndum. völpur lófinn fékk. Ertu búinn, litli vinur, litiil fótur sár. Við höfum gengíð lengi, lengi, líklega fleiri ár. Við skulum stöðva og staldra við, nú komið er kveld, bráðum sjáum við bæjarþilin blika í sólareld, þar er alltaf opið hús og skortir ekki mat, fram i búri á borði stendur brauð, smjör og fat, mjóik í könnu, skyr í skál, hér skortir ekki neitt. Við skulum borða barnið mitt, því við erum orðin þreytt. Amma laugar lítinn dreng og leggur hann í sæng, signir hann og syngur um sói og englavæng. Náttdögg reifar bióm á bala. blikar stjarna í geim. Við þurfum ekki að fara lengra. við erum komin heim. Helgi Valíýsson rithöfundur þýddi söngijóð kórrétt og hafa mörg þeirra birst á þessum síðum, því skömmu fyrir andlát sitt sendi hann mér syrpu og leyfi til birtingar. Ekki veit ég um tildrög þeirrar þýðingar hans sem hér fer á eftir, en grun hef ég um það að hún sé eitthvað á vegum Karlakórsins Geysis, því neðanmáls er ritað: „Þýtt fyrir Ingimund Árnason og konsul Inbjör (lagsins vegna).“ Og hafi Geysismenn einhverntíma sungið þennan texta nafa þeir áreiðanlega ekki þurft að berja hann að laginu. KVEÐJA Þótt myrkur feli þín fyrstu spor, þú framandi ieitar þá skjóis til vor, og ver þú oss góður gestur. Þeim vildum vér rétta vinarhönd, er veginn kannar um óþekkt lönd, en birtuna og ljósið brestur. Senn dvínar nóttin og dimman flýr, og dagur ijómar í austri nýr, svo bjart er um brautir allar. Greindu þá markið sem gnæfir hæst, og gakk þann veginn sem liggur næst til sannleikans háu hallar. Að lokum kemur svo þýðing eftir Steingrím Thor- steinsson á litiu söngljóði úr dönsku. Stafsetning skáldsins er látin halda sér, en hann byrjaði ávailt hendingu á stór- um staf. NÚ SÆL KOMIÐ SMÁBLÓM Á VENGI Nú sæl komið smáblóm á vengi, Sólvakin, rauð, gul og blá, Hve sárt yðar saknaði’ eg lengi, Er snjórinn hvíldi yður á. Nú ljómið með litaskraut vænt, Þar gras breiðir grænt Sitt indæla skrúð yfir engi, Eja, Eja, Eja, Nú sæl komið smáblóm á vengi. Fleiri ljóð birtast þá ekki að sinni. — Kær kveðja. Svífur að hausti... Framhaldaf bls. 274. andi orku í jarðvarma og fallvötnum. Hún er óumdeildur þjóðarauður, sem hagnýta þarf. En til hvers er að beisla orkuna, ef engin verkefni eru fyrir hana, En þau verkefni verða ekki fengin nema með stóriðju. Þetta eru staðreyndir, sem vér verðum að horf- ast í augu við, ef vér ætlum að halda áfram að lifa mannsæmandi lífi í landi voru. Enginn neitar því að mörg eru ljónin á veginum. Stóriðjan skap- ar vanda í umhverfismálum, hún krefst þess einnig að vér hljótum að fá erlent fjármagn til landsins, auk margs annars. Af þeim sökum megum vér ekki hrapa að neinu og undirbúa allar framkvæmdir vandlega. En eng- ir þessir erfiðleikar eru svo stórkost- legir, að ekki megi sigrast á þeim. En oss dugar engin rómantík í þeim mál- um, engar úrtölur né ótti við hið ókomna. Hér stöndum vér gagnvart ísköldum veruleikanum, þetta verð- um vér að fá og að þessu skal stefnt og unnið. En til þess að sigrast á örðug- ieikunum þarf allt í senn: þekkingu, kjark, vilja og vit. Ef vér beitum því öllu af fullum skilningi og drengskap, óttast ég ekki um úrslitin, né það, að sú bylting, sem framundan er, verði ekki jafnfarsælleg og veiðibylting sjávarútvegsins og ræktunarbylting landbúnaðarins hefir orðið á liðnum áratugum. En munum einnig að hika er sama og tapa. St. Std 300 Heimaerhe:I

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.