Heima er bezt - 01.09.1981, Side 29

Heima er bezt - 01.09.1981, Side 29
KRISTMUNDUR BJARNASON BJÓ TIL PRENTUNAR Jón Eyjólfsson var háseti hjá pabba. Við vorum fjórir. Sá fjórði var Jón Bjarnason frá Suddu í Flókadal. Vorum við Jón í litlum metum. Kom fyrir. þegar báturinn leið mjúk- lega yfir bárufaldana. vel hlaðinn. og landsýn var góð. að Jón stóð upp og hrópaði með írafári: ..Stöðvið þið bátinn. Hann fer aftur á bak!“ Þessarar áttavitaskekkju gætti sérstaklega, þegar siglt var framhjá Flösinni og hann farinn að fá viðunandi land- kenningu. Þegar farkosturinn nálgaðist Flösina úr langræði. ann- aðhvort úr fiskiróðrum eða sunnan úr Reykjavík. var oft kveðið: Hestur Ægis hefur skrið. hleypur dæilega. Eykst ánægja og indælið af því Skaginn blasir við. Svoddan lagar sálina. sorgarþras mun skána: Drekka Skagaskálina skal við Flasartána. En vísan. sem Jón orti um nafna sinn. varreyndarenginn lofsöngur: Sonur Bjarna Suddu frá. sem er gjarna á kreiki. neistatjarna njótursá nú er þarna á kreiki. Og vísum hans um mig gat brugðið til beggja vona. Ég var alltaf mjög sjóveikur, ældi grænu gori og kúgaðist svo, að talið var, að blóðvottur eða blóðsviti kæmi í eyru mér. Mun þjáning móður minnar vegna þessa, hafa valdið mikiu um. að foreldrar mínir fluttust til Reykjavíkur og reynt var að berja mig til bókar. Jón Eyjólfsson lýsti sjómennsku minni meðal annars á þessa leið: Hann Jónmundur sækir sjó sízt með geði linu. Hausinn stöðugt hefur þó hann á keipsnefinu. Ein var sú ástríða. sem gagntók Akurnesinga á þessum árum: sögulestur. Fólk var viðþolslaust, ef ekki voru kveðnar rímur eða lesnar sögur á kvöldvökunum. Þetta leiddi til þess, að við Jón urðum samvinnumenn. Hann orti rímur. en ég skrifaði upp fyrir hann. Var Jón þekkt rímna- skáld. kvað t.d. rímur af Héðni og Hlöðvi. Gætir mikið sjóferða í sumum mansöngum hans: Þessir allir helzt í hag hafa fallegt áralag. Ægir karl þótt auki jag ég sit varla í landi í dag. Heima er bezt 301

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.