Heima er bezt - 01.09.1981, Side 31

Heima er bezt - 01.09.1981, Side 31
drumbur. Hún kallaði hann Krúsa. en mér fannst hann kunna því illa og vildi láta Guddu vera innilegri við sig. Hún var fremur orðhvöt og lét stundum fjúka óþvegið. Oft voru þau saman í bandi og samdi ekki sem bezt. Krúsa hætti til að flækja reipin, þegar hann lagði niður. Hrifsaði hun þau þá stundum af honum. Og alltaf brýndi hún hann á. að hann væri ógurlegur silakeppur að draga í hagldirnar. kvaðst því eiga hjá honum óteljandi kaffibolla. brenni- vínsstaup, sykur og brauð og meira að segja peninga sökum seinlætis hans. Þau bundu hverja sátu saman. Hann herti. en hún lá á. Þegar hann hafði troðið sátuna og tíðlega oltið af henni. stundum fyrir milligöngu Guddu. settist hann, er hann tók að reyra. spyrnti í, hnykkti á og rembdist. ..Mikill þó bölvaður erkisens sóði geturðu verið. Krúsi!" hvein í Guddu. ..Dembirðu ekki sitjandanum á þér á kaf ofan í forarpollinn. Þarftu endilega að hlassast á helvízkan rassinn. þótt þú sisist við að toga í töglin? Hana-nú.“ hélt hún áfram. „veltum sátunni við. Ég er búin að gera að. Fáðu mér taglið. hertu afgjörðina!" Oft var það, þegar búið var að taka utan af sátunni og hún lá þarna í beinum sáturöðunum. svo að ekki þurfti annað en teyma lestina á milli. að Gudda sparn við henni og mælti með fyrirlitningu: „Hún er eins og hnúðurböllur hjá þér. þessi. Krúsi minn. Mikill afdæmingur er það með þig svona gamlan mann að geta aldrei hnuðlað saman þolanlegri sátu.“ „Ósköp og skelfing er að heyra orðbragðið í fraukunni." sagði Markús. „Og ekki get ég talið mig gamlan mann.“ En þetta var hótfyndni í Guddu. Markús batt prýðilega og sátur hans fóru vel á klakk, sila- og hagldahlutföll eins og bezt mátti verða. Þetta kom sér vel fyrir mig. bæði þegar ég var að láta upp og komast heim með átta hesta lest eða stærri á misjöfnum vegi. En nú voru þau Markús og Gudda ekki að binda. Pilt- arnir slógu. en stúlkurnar rökuðu forblauta Ijána. Ég bar ofan af. Énn rigndi eins og helt væri úr fötu. Það var ekki orðin sjón að sjá nýju strigafötin mín, sem ég hafði verið svo hreykinn af í vor. Þau voru orðin slitin. blökk, bætt og þvættulin eins og hrátt steinbítsroð, og vall vatnið og seytlaði inn og út um þau. Fangaklessurnar bar ég á hrífuskaftsbroti. krapakaldar og leirbornar. Alltaf kvað við: „Mundi, Mundi. hérna er fang. Hertu þig nú!“ Ég þrammaði með föngin. stiklaði á þúfnakollunum. Það var þá. sem ósköpin dundu yfir. Gudda var mesti áflogagepill. átti alltaf í bríaríi. svona síkát og glettin. Við höfðum oft tekizt á og gekk á ýmsu. Hún var harðleikin og sást ekki fvrir. þegar sá gállinn var á henni. og stundum fékk hún hinar stúlkurnar til liðs við sig. Þar sem hún stóð þarna holdvot. fannst henni. að hún þyrfti endilega að gera eitthvað til að hressa sig og aðra. — og það varð þá að bitna á Markúsi. „Krúsi!“ kallaði hún. „Hvað viltu?“ anzaði Markús. sem ævinlega lét það eftir henni að svara. þótt hún nefndi hann Krúsa. „Ég ætla að veðja við þig.“ sagði Gudda og setti stút á munninn. „Það er lítill tími til veðmála núna.“ kvað Krúsi. „Um hvað og hverju ætlarðu að veðja?“ „Ég skal veðja um, að þú færð ekki koss hjá mér í dag,“ sagði Gudda og gerðist ærið tillát til augnanna. „Ég þykist fara nærri um það.“ „Ég skal veðja, að þú getur ekki borið eins stór föng og hann Mundi,“ sagði Gudda ögrandi. „Svei skít. Auðvitað yrði mér það leikur einn. en ég yrði þá eins og hundur af sundi dreginn.“ „Þú ert meiri skræfan. Ekki vorkennirðu blessuðu barn- inu. Krúsi.“ Nú stóðst Krúsi ekki mátið og lagði frá sér orfið, gekk til mín og sagði stuttaralega: „Lánaðu mér prikið þitt. Mundi!“ „Þú verður þá að lána mér orfið þitt.“ En ekki var við það komandi, svo að ég neitaði honum því um prikið. Krúsi gekk til Guddu og skipaði henni að saxa fang. Hann skyldi sýna. að hann gæti borið stærðarföng priklaus. Hann var lengi að draga upp fangið og fór sér að engu óðslega. Svo rogaðist hann af stað. Þegar hann kom að pytti einum: rak hann fótinn í þúfnakoll og valt af honum og niður í pyttinn. Orðbragð hans er ekki eftir hafandi, þegar hann brölti upp úr, en mikið var Guddu skemmt. Ekki skil ég enn þann dag I dag, hvernig við fórum að því að sofna fuglsblundinn eftir miðdegismatinn í slíku for- aðsveðri. 10. Afturgangan Enn sú úrhellisrigning dag eftir dag. Allt flaut í vatni. allir lækir. allar sprænur byltust áfram. kolmórauðar. Fjöllin fóru á kaf upp í skýjaþykknið og þokubólstrana. það sá vart á tærnar á þeim. Ég var löngu hættur að sitja hjá ánum. Nú smalaði ég eldsnemma á hverjum morgni. mokaði fjósið. drakk mjólkina úr flöskum mínum kvölds og morgna og var orð- inn talsvert góður ræðumaður. Ég vann svo með fólkinu allan daginn á engjunum, bar ofan af. rakaði og fór á milli með votaband. Smalaði á kvöldin. rak svo ærnar út fyrir beitarhús og kom ekki heim. fyrr en skuggsýnt var orðið. Ég hafði hálfgerðan beyg af beitarhúsunum. Þetta voru þrjú. löng og stæðileg hús. Þar höfðu bændurnir hátt á annað hundrað sauði á vetrum. Heygarður. axlarhár. var meðfram göflum eða að baki allra húsanna. og var þangað reitt heyið handa sauðunum. Framhald. Heimaerbezt 303

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.