Heima er bezt - 01.09.1981, Side 35
Myndirnar á þessari
síðu eru teknar í
Innbænum á Akureyri.
Síðastliðin ár hefur það fœrst i
vöxt aðgömul hús séu gerð upp
og endurnýjuð. Sú tíð er von-
andi liðin, þegar gömul hús
voru rifin niður þegar þau fóru
að láta á sjá. Svo virðist sem
hugsunarháltur manna sé að
breytast gagnvart þessum
gömlu húsum og nú sé meira
gert af því að fœra þau til upp-
runalegs horfs um leið og þau
eru endurnýjuð. í stað þess að
t.d. „augnstinga" þau með því
að taka gluggapóstana úr og
setja heilar rúður í staðinn, er
nú hugað meira að heildarsvip
húsanna. Stórar rúður, eins og
i steinsteypukössum nútímans,
eiga einfaldlega ekki við þegar
um gömul hús er að rœða.
Fyrir nokkrum árum þótti
hálfgerð skömm að því að eiga
heima í gömlu húsi, enginn var
maður með mönnum ef hann
ekki gat byggt nýtl hús yfir sig
og sína, helst stórt og voldugt.
Þeir sem b/uggu i gömlu hús-
unum voru taldir hálfgerðir
aumingjar. Það g/eðilega við
hinn nýja hugsunarhátt er, að
það er unga fólkið sem vill búa
i gömlu húsunum, það er orðið
þreytt á steinsteypukössunum
og á vissan hátt vill það endur-
nýja tengslin við liðna tið.
Ef við gefum okkur tíma til
að skoða gömul hús, þá sjáum
við fljótt hve vel og fallega þau
eru yfirleitt byggð. Þau eru
bvggð af mönnum sem lögðu
sál sína i verkið og töldu ekki
eftir tíma sinn, aðalatriðið var
að gera hlutina vel. Og þó mörg
þessara húsa séu nú hálf hrör-
leg, þá kemur yfirleitt i l/ós,
þegar þau eru endurnýjuð, að
máttarviðirþeirra eru ófúnir og
í fullu gildi.
Gömul hús geta bœði gefið
bœjum fallegt yfirbragð og
Ijótt. Sé þeim vel við haldið eru
þau bœjarprýði, en séu þau
látin grotna niður eru þau öll-
um til vanvirðu. — G.M.
fíF.TNT T
Tengslin við liðna tíð endurnýjuð
MARK!
Heima er bezt 307