Heima er bezt - 02.10.1988, Page 9
ENLHJRMINMNGAR
INDRIÐI G. PORSTEINSSON:
ÁFRAM VEGINN
Sagan um Stefán Islandi.
Hér kemur fjöldi manns viö sögu, stíll Indriða
er leikandi léttur og frásögn Stefáns fjörug og
skemmtileg.
Bók 344 HEB-verð kr. 500,00
GUNNAR BJARNASON:
LÍKABÖNG HRINGIR
I þessari bók segir Gunnar Bjarnason frá ýms-
um afskiptum sínum af málefnum landbúnað-
arins. Fyrst og fremst er þetta þó sagan um
eins vetrar skólastjóradvöl hans á Hólum í
Hjaltadal, forsögu þess og eftirmála. Á meðan
Gunnar var skólastjóri Bændaskólans á Hól-
um voru geysilega mikil blaðaskrif um störf
hans þar, jafnvel svo jaðraði við rógsherferð.
Endaði það með því að hann var hrakinn frá
störfum af flokksbróður sínum, Ingólfi
Jónssyni frá Hellu, þáverandi landbúnaðar-
ráðherra. Fleiri háttsettir menn koma hér við
sögu og í þessari bók jafnar Gunnar reikning-
ana. Hafi einhver haldið að Gunnar ætlaði að
láta þessi mál liggja í þagnargildi, þá þekkir
sá hinn sami ekki Gunnar Bjarnason. í krafti
mælsku sinnar og samvisku svarar Gunnar fyr-
ir sig svo um munar.
Bók 421 HEB-verð kr. 400,00
GUÐLAUG BENEDIKTSDÓTTIR:
SKJÓLSTÆÐINGAR
Dulrænar frásagnir.
Enginn sem þekkir Guðlaugu Benediktsdóttur
efast um, að allt er rétt og sannleikanum
samkvæmt, sem hún segir frá, því að yfir varir
hennar kemur aldrei ósatt orð. Dulrænir hæfi-
leikar Guðlaugar eru furðulegir.
Bók 278 HEB-verð kr. 300,00
ÁRNI JAKOBSSON frá Víðaseli:
Á VÖLTUM FÓTUM
Sjálfsævisaga.
Þetta er sjálfsævisaga fatlaðs, fátæks alþýðu-
manns, hetjusaga, sögð af karlmennskuró og
yfirlætisleysi. Kjarkurinn bilaði aldrei.
Bók 186 HEB-verð kr. 300,00
BJÖRN HARALDSSON:
LÍFSFLETIR
Hér er saga glæsileika og gáfna, mótlætis og
hryggðar, baráttu og sigra. Þcssi bók færir
okkur svo sannarlega heim sanninn um það
að manneskjan getur orðið stærst og sterkust
í mótlæti. Bókin fjallar um Árna Björnsson
tónskáld og starf hans fyrir og eftir fólskulega
árás sem á hann var gerð árið 1952.
Bók 403 HEB-verð kr. 400,00
VILHJÁLMUR S. VILHJÁLMSSON:
HEIM TIL ÍSLANDS
Endurminningar hjónanna Elísabetar Helga-
dóttur og Thor J. Brand.
Þetta er síðasta bókin, sem Vilhjálmur S. Vil-
hjálmsson skrifaði, en hjónin Elísabet Helga-
dóttir og Thor J. Brand fluttust hingað frá
Vesturheimi og voru um skeið húsráðendur
á Þingvöllum. Frú Elísabet er fædd og uppalin
í Kanada en Thor ólst upp á Austfjörðum,
fluttist vestur um haf rúmlega tvítugur og
dvaldist þar í aldarfjórðung við margvísleg
störf, allt frá Klettafjöllum norður að Hudson-
flóa, en starfaði þó lengst í Winnipeg við bygg-
ingaframkvæmdir. Frásögnin í bók þessari er
einkar lipur og geðþekk. Prýdd mörgum
myndum.
Bók 390 HEB-verð kr. 250,00
GUÐMUNDUR JÓNSSON,
garðyrkjumaður:
HEYRT OG SÉÐ ERLENDIS
Höfundur stundaði garðyrkjustörf í Dan-
mörku um margra ára skeið, og segir frá
fjölmörgum atvikum, sem komu fyrir hann.
Hann er kunnur fyrir ritstörf á seinni árum.
132 bls.
Bók 27 HEB-verð kr. 150,00
STEINDÓR STEINDÓRSSON
frá Hlöðum:
HLAÐIR í HÖRGÁRDAL
Þetta er þjóðháttalýsing frá fyrstu áratugum
þessarar aldar. Höfundurinn, Steindór Stein-
dórsson fyrrverandi skólameistari, rekur þar
daglegt líf á norðlensku sveitaheimili, þar sem
mætast hættir og viðhorf tveggja alda. Bók
þessi hefur fengið mjög lofsamlega dóma
þeirra sem um hana hafa fjallað í fjölmiðlum
og hefur henni einna helst verið líkt við Þjóð-
hætti sr. Jónasar Jónassonar, enda skyld þeirri
bók um efnisval og efnismeðferð.
Bók 410 HEB-verð kr. 300,00
ERLINGUR DAVÍÐSSON, ritstjóri:
NÓI BÁTASMIÐUR
Kristján Nói Kristjánsson var í daglegu tali
nefndur Nói bátasmiður. Nói bátasmiður hef-
ur smíðað fleytur af mörgum stærðum og
gerðum, allt frá jullum og skektum, árabátum,
trillum og mótorbátum, upp í 140 tonna fiski-
skip. Þessir bátar og skip bera höfundi sínum
það vitni, að haíin sé dverghagur smiður, og
að honum sé sú gáfa gefin við smíði báta, sem
hvorki verður að fullu kennd né heldur lærð,
en listagyðjan ein gefur eftirlætisbörnum sín-
um í vöggugjöf. Erlingi Davíðssyni, ritstjóra,
hefur tekist einkar vel að skrá sögu þessa sér-
kennilega manns.
Bók 397 HEB-verð kr. 400,00
Bókaskrá 9