Heima er bezt


Heima er bezt - 02.10.1988, Blaðsíða 26

Heima er bezt - 02.10.1988, Blaðsíða 26
BARNA OG UNGLEVGABÆKUR MAGNEA FRÁ KLEIFUM: HANNA MARÍA OG PABBI Hér kemur þriðja bókin um hana Hönnu Maríu, ekki síður skemmtileg en hinar tvær fyrri. Bók 310 HEB-verð kr. 300,00 MAGNEA FRÁ KLEIFUM: HANNA MARÍA OG VIKTOR VERÐA VINIR Tvíburasystkinin Viktoría og Viktor úr Reykjavík dvelja ennþá sumarlangt í Koti og allir krakkarnir lenda í ýmsum ævintýrum og jafnvel mannraunum. Og nú skeður það skrýtna, að Hanna María og Viktor verða perluvinir, en það hefði ekki þótt trúlegt þegar þau hittust fyrst. En allt er gott sem endar vel. Bók 336 HEB-verð kr. 300,00 MAGNEA FRÁ KLEIFUM: HANNA MARÍA OG LEYNDARMÁLIÐ Petta erfimmta bókin um ærslabelginn Hönnu Maríu, sem ennþá er heima í Koti hjá afa sín- um og ömmu, enda þótt hún sé nú óðum að stækka og fari sjálfsagt að fljúga burt úr hreiðrinu áður en varir. En nú koma nýjar persónur til sögunnar, þau systkinin Björk og Baddi, sem Hanna María hefur boðið til sum- ardvalar hjá afa og ömmu. Þeir Baddi og Sverrir verða strax vinir og svo koma þau Viktor og Viktoría í heimsókn. En Hanna María á leyndarmál sem upplýsist íbókarlok. Bók 400 HEB-verð kr. 300,00 INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR: JÓA GUNNA Ævintýri litlu, brúnu bjöllunnar. Skemmtileg saga fyrir krakka upp að tíu ára aldri. 86 bls. Bók 219 HEB-verð kr. 250,00 ÓMAR BERG: PRINSINN OG RÓSIN Gullfalleg ævintýrabók í stóru broti með mörgum óviðjafnanlegum vatnslitamyndum eftirlistakonuna Barböru Árnason. -23 bls. Bók 195 HEB-verð kr. 250,00 ESTRID OTT: SISKÓ Á FLÆKINGI Þetta er áreiðanlega sú besta af barna- og ung- lingabókunum, sem Estrid Ott hefur skrifað, og þá er ekki lítið sagt. 205 bls. Bók 261 HEB-verð kr. 300,00 LEIF HALSE: STRÁKARNIR í STÓRADAL Mjög skemmtileg, litprentuð myndasaga í stóru broti með sex litprentuðum teikningum á hverri blaðsíðu. ívar Pettersen teiknaði myndirnar. Sigurður Gunnarsson íslenskaði textann. - 16 bls. Falleg bók fyrir yngstu les- endurna. Bók 249 (ób.) HEB-verð kr. 60,00 INGEBRIGT DAVIK: ÆVINTÝRI í MARARÞARARBORG Inn í þessa fjörugu barnasögu eru fléttaðir margir skemmtilegir söngvar, sem allir krakk- ar hafa gaman af. Og það er enginn annar en Kristján frá Djúpalæk sem hefur þýtt sögu- na og Ijóðin af sinni alkunnu smekkvísi. - Út er komin SG-stereo hljómplata (SG-079) og á henni eru allir söngvarnir fluttir. Flytjandi er Helgi Skúlason en hljómsveitarstjóri er Jón Sigurðsson. Teikning á kápu er eftir Hilmar Helgason teiknara. Bók 337 HEB-verð kr. 250,00 RAGNAR ÞORSTEINSSON: FLÖSKUSKEYTIÐ ,, . . . Þessi saga er mjög skemmtilega rituð. Félagarnir lenda í ýmsum ævintýrum, sumum næsta furðulegum, þó ekki svo, að með ólík- indum verði að teljast . . . siglinga- og sjávar- lýsingar Ragnars eiga ekki marga sína líka á íslensku máli.“ - Guðmundur Gíslason Hagalín. Bók 369 HEB-verð kr. 300,00 GESTUR HANSON: STRÁKUR Á KÚSKINNSSKÓM Afbragðsgóð og skemmtileg barnabók. Bók 41 HEB-verð kr. 300,00 GESTUR HANSON: IMBÚLIMBIMM Mjög skemmtileg barnabók 122 bls. Jafnt fyrir stelpur og stráka. Bók 191 HEB-verð kr. 200,00 H RIDER HAGGARD: NÁMUR SALÓMONS KONUNGS Þessi heimsfræga saga um leitina að auðæfum Salómons konungs, sem falin voru í landi Kukuananna langt inni í Mið-Afríku. Mynd- skreytt. 229 bls. Bók 217 HEB-verð kr. 300,00 HJÖRTUR GÍSLASON: BARDAGINN VIÐ BREKKU-BLEIK Glóblesi og Hrímfaxi eru ungir stóðhestar. I sumardýrð á öræfunum leikur lífið við þá. Að vísu heyja þeir bardaga, því að báðir vildu vera höfðingjar stóðsins, og Hrímfaxi hverfur burt, yfirunninn. - Teikningar eftir Halldór Pétursson. Bók 193 HEB-verð kr. 250,00 HJÖRTUR GÍSLASON: SALÓMON SVARTI 4. útgáfa. Halldór Pétursson teiknaði myndirnar. Bókaforlagið gefur nú þessa óhemjuvinsælu barnabók út í 4. prentun, en fyrst kom hún út árið 1960. Salómon svarti vann strax hug og hjörtu allra, enda er svarti, hornótti lamb- hrúturinn ekki einungis ráðagóður og röskur, heldur með skemmtilegri einstaklingum. 117 bls. Bók 82 HEB-verð kr. 300,00 HJÖRTUR GÍSLASON: SALÓMON SVARTI OG BJARTUR 3. útgáfa. Halldór Pétursson teiknaði myndirnar. Þetta er önnur bókin um lambhrútinn Saló- mon svarta og kom fyrst út 1961, en hefur síðan glatt hugi og hjörtu lesenda víða. Saló- mon svarti lendir nú í enn fleiri ævintýrum og óborganlegum uppákomum. Sögurnar um Salómon svarta hafa nú birst á 5 tungumálum og alls staðar verið aufúsugestir, því þær eru ekki aðeins rammílenskar, heldur um leið al- þjóðlegar barnabókmenntir af bestu gerð. Bók 88 HEB-verð kr. 300,00 FOSLIE og SLAATTO: BÖRNí ARGENTÍNU Besta leiðin til að kynnast þessari þjóð er e.t.v. að skoða hlutina með augum barnsins. Við lærum að þekkja landafræði, náttúrufræði og fleira tengt Argentínu í fylgd barna. Auð- velt og létt leshefti fyrir unglinga. Bók 298 (ób.) HEB-verð kr. 50,00 INGER og KJELD FRANKLID: BÖRN í ÍSRAEL Þetta er létt og fróðlegt leshefti, þar sem sagt er frá leik og störfum barna í ísrael. Bókin skýrir að nokkru frá baráttu þessarar hetju- legu þjóðar fyrir tilverurétti sínum. Bók 251 (ób.) HEB-verð kr. 50,00 26 Bókaskrá

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.