Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1990, Síða 6

Heima er bezt - 01.09.1990, Síða 6
Messað um borð í Skagfirðingi á sjómannadaginn 1990, f. v.: Björn Jónasson, skipstjóri á Drangey, Kristján Helgason, sr. Hjálmar Jónsson. honum hreinum en því húsnæði sem tilheyrir nútímanum. Annað sem sneri að búskapnum var að hætti nútímans. Mér finnst dýrmætt að hafa kynnst sveitalífinu. Um tíma var ég að hugsa um að fara í bændaskóla og búa síðan í sveit. Þó var eins og sjórinn væri alltaf að toga í mig. Það er erfitt að lýsa því. Leikirnir í bænum áttu sér stað í fjörunni, maður dorgaði á bryggjunum og sniglaðist kringum kallana sem voru að dútla við bátana sína. Byrjaði sjómennskuna á varðskipi Ég var f5 ára gamall þegar ég fór á sjóinn. Ég byrjaði á varðskipinu Ægi. fO. júní 1970 sigldum við úr höfn. Skipherrann var sá mikilhæfi foringi Guðmundur Kjærne- sted. Hann hafði mikil áhrif á mann. Menn báru virðingu fyrir frábærum hæfileikum hans, kaldri rósemi og rök- hyggju, hvernig sem á stóð. Hann var svo öruggur sem stjórnandi. Þjóðin veit það svo ég fer ekkert út í það frekar. Við lentum heldurekki í neinum sérstökum mann- raunum þessi tvö ár, sem ég var um borð. Stundum kom hjálparbeiðni og þá var haldið til björgunarstarfa. Hluti af starfanum var þjónusta við landsmenn í útkjálkasveit- um og víðar, enda er Gæslan fyrst og fremst þjónusta og hagsmunagæsla fyrir þjóðina. Eitt af því sem mér fannst til fyrirmyndar var það að nýliðar um borð og í sjómennsku fóru fyrst á tíu daga námskeið í splæsningu, hnýtingum og ýmsum undirstöðuatriðum sjómennskunn- ar, þ.e.a.s. þeim sem hægt er að læra fyrirfram. En hvort ég hafi lent í einhverju spennandi við gæslu- störfin. Það má kannski nefna það að þegar 50 mílna stríðið stóð sem hæst fór ég jólatúr á varðskipi með Þresti Sigtryggssyni. Hann var með klippurnar til taks en vand- inn var sá að komast nógu nærri áður en Bretarnir sæu og næðu að hífa. Einhverju sinni vorum við að lóna fyrir austan og leituðum færis þegar fragtskip átti leið hjá. Þröstur samdi við skipstjórann að sigla yfir þar sem flotinn var að veiðum. Þegar þeir sáu hann koma inn á radarinn á fullri ferð hífðu þeir upp. En flutningaskipið sigldi sína leið ósköp sakleysislega þarna í náttmyrkrinu. Nú, þetta var þá fragtari, hugsuðu þeir, og létu trollið fara á nýjan leik í okkar nýju landhelgi. Þá sigldum við af stað sömu leiðina. Bretarnir sáu siglingaljósin og hugs- uðu með sér að þarna væri annað fragtskip enda bentu siglingaljósin til þess. Þannig náðum við að komast að flotanum og klippa. Þröstur segir frá þessu í bókinni „Spaugsami spörfuglinn.“ En í þessari aðgerð stóð ég aftur á og hélt á Ijósi. Við breyttum nefnilega siglingaljós- unum, - höfðum þau eins og á friðsömum fragtskipum. Þetta var ágætis ferð og skipherrann eldklár, skemmti- legur og útsjónarsamur. Fiskveiðar vítt um höf Eftir þetta tók við sjómennska á fiskibátum. Ég var í Norðursjónum á síðustu árunum sem Islendingar voru við síldveiðar þar. Það var skorpuvinna eins og sjómennskan er oft, stundum rólegt og langdregið, stundum mikið að gera. Aðspurður um skemmtileg atvik segir Kristján frá því að þeir hafi, eftir langa útivist, komið til Færeyja. Hann heldur áfram: Við höfðum keypt okkur tvo bjórkassa á svörtum markaði, alveg fokdýra. Um það var ekki mikið hugsað. Þar kom að okkur langaði að kíkja á bæjarlífið, þótt hábjartur dagur væri. Ilát undir bjórflöskurnar var ekki handbært svo við settum þær í sængurver og héldum með þennan jólasveinapoka inn í miðbæ höfuðstaðar Fær- eyinga. Sjálfsagt var einhver sláttur á okkur. A.m.k. man ég eftir komu okkar í hljóðfæraverslun. Einhver úr hópn- um tók til við að reyna hljóðfærin. Það vakti ekki mikla lukku hjá stúlkunni sem afgreiddi í búðinni. Innan tíðar var lögreglan komin, vekjandi óskipta athygli með Ijósa- gangi og sírenuvæli. Menn tóku til fótanna og ég með pokann góða, sem ég vildi ekki skilja við mig baráttu- laust. Uti stukku allir yfir garðhlið og tóku strikið til skips. Ég var þungfærari með pokaskrattann, rak tærnar í girðinguna og kútveltist, þannig að þeir náðu mér og 35 tonn í einu hali. Bærilegt það! 274 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.