Heima er bezt - 01.09.1990, Síða 10
þegar við nú ljúkum því er framundan næsta ferð á miðin.
Kristján er ekkert bjartsýnn á að vel veiðist. Þó þykist
ég sjá á svipnum að hann hefur fullan hug á að fylla skipið
og það fljótt. Skipstjórar eru ekki margorðir áður en lagt
er úr höfn. A leiðinni út fjörðinn er kannski loks tekin
ákvörðun um hvert haldið skuli. Skipstjóri veit sem er
að velferð og afkoma margra byggist á því að vel takist
til. Hann þekkir ábyrgð sína, veit það full vel að ákveðnar
væntingar eru gerðar til hans. Skipstjórar verða þó að
halda rósemi sinni. Ekkert er verra til árangurs en æsingur
og vanstilling.
Á hafnarbakkanum veifa eiginkonur skipverja í
kveðjuskyni. Þær sjá um rekstur heimilisins, annast upp-
eldi barnanna og taka daglegar ákvarðanir mikið til einar,
enda þótt farsíminn hjálpi nokkuð upp á sakir hvað
samráð varðar. Sjómannsfjölskyldan þarf að aðlagast sín-
um sérstöku aðstæðum. Um annað er ekki að ræða. Siglt
er út með vissum söknuði, en fljótlega víkur sú tilfinning
fyrir verkefninu, sem bíður og svo tilhlökkun eftir því
að sigla inn aftur, - eftir vel heppnaða og giftusama ferð.
Kristján hugsar um fjölskyldulífið og segir: Eðlilega
verða fjarvistir leiðinlegar á köflum. Svo er aftur hátíð
í bæ þegar heim er komið. Við hjónin höfum líklega verið
meira samvistum en gengur og gerist í stéttinni. Dóra
hefur verið kokkur um borð á sumrin og eins hefur hún
farið með mér í siglingar. Störf hennar hafa líka hjálpað
okkur til þess að taka lengri frí í landi saman. Eg lít með
ánægju yfir farinn veg. Áfallalaus sjómennska og slysa-
laus er mikils virði. Ég er þakklátur fyrir það. Þótt heima
sé best er ég ánægður með samfélagið og starfsfélaga mína
um borð. Ég tel mig hafa verið mjög heppinn með skip
og skipshöfn.
Við kveðjum Kristján skipstjóra og óskum honum og
skipshöfninni velfarnaðar í veiðiferðinni sem nú hefst.
sjálfum þeim og byggðarlaginu til hagsbóta.
Skagfirðingur SK 4 á siglingu.
1. og 2. stýrimaður fylgjast með lóðningum á fisksjá af sýnilegri
velþóknun, f.v.: Gunnar Steingrímsson (2. stýrimaður) og Gísli
Eymarsson (1. stýrimaður).
Dóra leysir kokkinn afí sumarleyfi.
verður maður auðvitað að treysta á sjálfan sig. Þótt upp-
lýsingar séu góðar verður skipstjórinn að vera sjálfstæður
og öruggur í ákvörðunum fyrir sig og sína. Maður kynnist
mörgum og á orðið ágæta félaga á öðrum skipum flotans.
Gegnum talstöðina og símann þekkjast menn vel, þótt
þeir hafi kannski aldrei sést. Það getur svo verið skondið
að hitta þessa sömu menn, t.d. á árshátíðum eða fundum
tengdum starfinu. Menn hafa kannski gert sér fyrirfram
hugmyndir um útlit manna eftir röddinni að dæma. Svo
verða menn steinhissa þegar þeir hittast.
Til veiða á ný
Það er komið að lokum þessa spjalls okkar Kristjáns,
skipstjóra á Skagfirðingi. Þegar það hófst var hann ný-
kominn inn úr veiðiferð. Við gerðum hlé á rabbinu og
278 Heima er bezt