Heima er bezt - 01.09.1990, Qupperneq 16
Oft hefur verið að því vikið við ritstjóra Heima er bezt, að
það geti varla talist þjóðlegt heimilisrit meðan ekki sé í því
að finna fastan vísnaþátt. Mér er fullljóst, að þessi gagnrýni
er rétt og sanngjörn, því að enn yrkja margir sér til hugar-
hægðar og öðrum til skemmtunar eða áminningar.
Það að yrkja er þjóðargaman.
Þetta er önnur hendingin.
Vísu þessa setti ég saman;
svona verður endingin.
Þegar ég afréð að hefja vísnaþátt hér í ritinu, varð mér
hugsað til þessarar stöku eftir Jakob Pétursson frá Hrana-
stöðum. Jakob var um árabil ritstjóri vikublaðsins íslend-
ings á Akureyri, þjóðkunnur hagyrðingur og minnilega
málhagur. Hann orti löngum undir nafninu Peli. Þessi sér-
stæða vísa lýsir vel kímnigáfu Jakobs og er ábending um
það, að þjóðargamanið getur verið misjafnlega innihalds-
ríkt. En mikilsverð sannindi felast í fyrsta vísuorðinu eða
braglínunni. að „það að yrkja er þjóðargaman“, og því
kaus ég það vísuorð Jakobs að vfirskrift þáttar, sem von-
andi festist hér í sessi.
Ýmis skáld hafa leikið sér á líkan hátt og Jakob í fyrr-
greindri vísu. m.a. þjóðskáldið. Tómas Guðmundsson. sem
orti:
Hárin mér á höfði rísa,
er hugsa ég um kærleik þinn.
Þetta er annars ágæt vísa,
einkum seinni parturinn.
Alkunn er sú íþrótt að yrkja vísnagátur og hafa ýmsir náð
langt í þeirri list. Tveir menn koma mér þegar í huga, séra
Sveinn Víkingur og Kristján Benediktsson á Akureyri.
Hafa vísnagátur þeirra verið gefnar út og orðið mörgum
skemmtileg dægrastytting.
Fyrir nokkru hitti ég séra Erlend Sigmundsson fyrrum
prest og prófast á Seyðisfirði og síðar biskupsritara. Fund-
um okkar bar saman á Löngumýri í Skagafirði, en séra
Erlendur er Skagfirðingur og fæddur í Gröf á Höfðaströnd.
Mér var kunnugt um að Erlendur er skáld gott og hafa ljóð
hans birst í blöðum og tímaritum. Hitt vissi ég ekki. að
hann er snjall hagyrðingur og leika honum ýmsir hættir á
tungu. Meðal annars yrkir hann sléttubandavísur af mikilli
íþrótt.
Að þessu sinni birstast hér nokkrar vísnagátur úr miklu
safni séra Erlendar. Trúði hann mér fyrir því, að hann ætti
a.m.k. hundrað vísur af því tagi í handriti, sem að líkindum
verða gefnar út, áður en langt um líður. En hér á eftir fara
þær gátur hans, sem hann heimilaði birtingu á í HEB:
1. Hann skal byrgja í tæka tíð.
Trú og náð þar gefast þótti.
Æðstur goða ár og síð
andans visku til hans sótti.
2. Af því tíðum teygað var.
Tóna stríða frá sér gefur.
Yxni prýðir ef það bar.
Óvin síðu í það hefur.
3. Syngur við eyra sónn þess hár.
Sálmur byrjar á því.
Æ það girnist klerkur klár.
Komast engir hjá því.
4. Þetta er orð sem þýðir val.
Þrástagað er kjósa skal.
Bág eru þau ef brestur allt
og bankans lán með nauðung falt.
5. Afurð sauða er það góð.
Ofur válegt samt er flestu.
Minnir þig á fjöru og flóð.
Ferleg nemans óhöpp mestu.
284 Heima er bezt