Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1990, Page 18

Heima er bezt - 01.09.1990, Page 18
SÖGULEG LJÓSMYND XXXII ANING A SKEMMTIFÖR Guðrún E. Jónsdóttir frá Reykjahlíð sendi HEB þessa skemmtilegu ljósmynd, sem tekin var í ágúst árið 1916. Sýnir hún vel húsakynni á bernskuheimili hcnnar í Reykjahlíð við Mývatn á öðrum áratug þessarar aldar. Myndin er af heima- fólki og gestum, með hús og blómagarð í baksýn. í>á fylgir hér einnig nafnalisti, sem Guðrún tók saman, en hún kvaðst ekki muna nöfn tveggja manna á myndinni, en telur að þeir gætu verið synir Gudjohnsens verslunarstjóra á Húsavík. B.G. 1. Stefanía Þorgrímsdóttir, vinnukona, síðar húsfreyja í Garði. 2. Kristín Guðmundsdóttir, kaupakona. 3. Þorsteinn Jónsson, bóndi, Reykjahlíð. 4. Sigurður Einarsson, bóndi, Reykjahlíð. 5. Jón Pétursson, Reykjahlíð, faðir nr. 3. 6. Hannes Jónsson, Reykjahlíð. 7. Jón Einarsson, bóndi, Reykjahlíð. 8. Hólmfríður Jóhannesdóttir, húsfr., Reykjahlíð, kona nr. 7. 9. Pétur Jónsson, Reykjahlíð. 10. Aðalheiður Jónsdóttir, kaupakona. 11. Kristjana Jóhannesd., vinnukona, síðar húsfr. í Alftagerði. 12. Jónas Einarsson, síðar bóndi í Alftagerði. 13. Stefán Stefánsson, bóndi Ytri-Neslöndum. 14. Jónasína Þorsteinsdóttir, Reykjahlíð. 15. María Einarsdóttir, Reykjahlíð. 16. Sigríður Einarsdóttir, Reykjahlíð. 17. Guðný Helgadóttir, Húsavík. 18. Sigurður Bjarklind, Húsavík. 19. ?-, Húsavík. 20. Olafur Sigurðsson, fóstursonur nr. 25. 21. Jón Pétur Þorsteinsson, Reykjahlíð. 22. Bjarni Benediktsson, Húsavík. 23. Regína Benediktsdóttir, Thoroddsen, Húsavík. 24. Guðrún Einarsdóttir, húsfreyja Reykjahlíð, kona nr. 3. 25. Illugi Einarsson, Reykjahlíð. 26. Oskar Illugason, Reykjahlíð. 27. Þuríður Sigurðardóttir, Reykjahlíð. 28. Þórdt's Asgeirsdóttir, Húsavík. 29. Laufey Sigurðardóttir, Reykjahlíð. 30. Einar Friðriksson, bóndi Reykjahlíð. 31. Guðrún Jónsdóttir, Húsfreyja, Reykjahlíð. 32. Svava Sigurðardóttir, Reykjahlíð. 33. Einar Þorsteinsson, Reykjahlíð. 34. Illugi Jónsson, Reykjahlíð. 35. Kristjana Hallgrímsdóttir, húsfreyja, Reykjahlíð, kona nr. 25. 36. Valgeir Illugason, Reykjahlíð. 37. Snæbjörn Jónsson, Reykjahlíð. 38. Guðrún Jónsdóttir, Reykjahlíð. 39. Unnur Benediktsdóttir Bjarklind (Hulda), Húsavík. 40. Elísabet Gudjohnsen, Húsavík. 41. Theodóra Thoroddsen. 42. Lúðvík ?, verslunarmaður, Húsavík. 43. ?-,Húsavík. Lengst til hægri sést aðeins á hendi Guðmundar Thoroddsen, sem var einn af gestunum og var þá læknir á Húsavík. Það vantar á myndina eina húsfreyju í Reykjahlíð, Jónasínu Jóns- dóttur, eiginkonu nr. 4. Myndina tóku Sigríður Ingvarsdóttir og Þórarinn Stefánsson. Sigríður var lengi myndasmiður á Húsavík og Þórarinn bóksali. Ég held að ég muni það rétt að þetta var eiginlega þeirra brúðkaupsferð, þar sem margir góðir Húsvíkingar fylgdu þeim. Á föstudegi var farið um Reykjaheiði í Ásbyrgi og Hljóðakletta og gist í hlöðu á Svínadal um nóttina. Á laugardag lá leiðin um Hólmatungur, Dettifoss og Mývatnsöræfi að Reykjahlíð. Eftir morgunmat og myndatöku á sunnudag var farið til Skútustaða þar sem séra Hermann gaf þau saman Sigríði og Þórarinn. Síðan var haldið til Grenjaðarstaðar og gist þar síðustu nóttina. Guðrún E. Jónsdóttir frá Reykjahlíð. 286 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.