Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1990, Blaðsíða 19

Heima er bezt - 01.09.1990, Blaðsíða 19
Guðrún E. Jónsdóttir frá Reykjahlíð Hrognin sótt Mig langar til að minnast framtaks afa míns, sem talinn er vera fyrstur manna á íslandi sem stundaði sil- ungsrækt. Afi minn. Einar Frlðriksson, bjó í Svartárkoti í Bárðardal á árunum 1871-1895. Hann ólst upp í Hrapps- staðaseli í Bárðardal og stundaði veiði í Kálfborgarárvatni og veiddi oft vel. Eftir að hann giftist heimasætunni í Baldursheinti. Guðrúnu Jónsdóttur. 1868 hóf hann búskap í Syðri-Nes- löndum í Mývatnssveit sem var þá í eigu föðursystur hennar. Það var góð veiðijörð og Mývatnssilungurinn er annálaður af gæðum. Árið 1871 flytur hann í Svartárkot 1 Bárðardal. Þegar hann fer að stunda veiði 1 Svartárvatni er silungurinn þar bæði lítill og léleg- ur. Honum hugkvæmdist þá að reyna að fá frjóvguð hrogn úr Mývatnssil- ungi og flytja í Svartárvatn. í Garði við Mývatn var mikil rið- silungsveiði á haustin. Talaðist svo til að bóndinn þar, Árni Jónsson, útveg- aði honum frjóvguð hrogn sem hann mundi svo sækja og setja í Svartár- vatn. Mörgum fannst þetta fjarstæða en hann stóð fast á sínu og sendi son sinn ungan út í sveit til að sækja hrognin og læt ég hann segja frá þeirri ferð: „Það var 1 nóvember 1883 að faðir minn sendi mig út í Mývatnssveit að sækja hrogn sem Árni 1 Garði ætlaði að útvega. Ég var þá á tólfta ári. Út í sveit var mér samferða Anna Jóns- dóttir. Hún var ljósmóðir og var ljósa sex systkina minna. Hún var að fara í kynnisför út 1 Gautlönd en þar hafði hún áður verið vinnukona í ungdæmi sínu. Ég gisti fyrstu nóttina í Baldurs- heimi. Þaðan fór ég daginn eftir út í Garð. Árni lagði net um kvöldið og morguninn eftir fór ég með honum að vitja um netin og taka á móti ef að hrogn kvnnu að fást til frjóvgunar en það fékkst ekkert. Þetta var á sunnu- dag og Árni bjóst ekki við að draga og sendi mig út í Geiteyjarströnd, hélt að þeir mvndu draga á mánudag. í Garði var þá staddur Halldór Stefánsson, mágur Árna. Hann var á líkum aldri og ég og urðunt við brátt góðir kunn- ingjar. Hann átti þá heima á Geiteyj- arströnd og var að fara heim til sín og urðum við samferða. Þar gisti ég um nóttina. Ekki ætluðu þeir að draga daginn eftir, svo ég fór strax um morguninn til baka fram í Garð. Þeg- ar ég kom þangað var Árni búinn að draga, veiða og frjóvga það af hrogn- unum sem mundu nægja í ílátið sem ég hafði, en það var tveggja potta kútur sem annar botninn var sleginn úr. Fórum við nú að búa um hrognin og stoppa í hann með blautum mosa. Síðan lagði ég af stað og stefndi á Gautlönd. Þar ætlaði ég að gista um nóttina, en þekkti þar engan nema Jón Jónsson Gauta. Ég hafði veturinn áður verið í skóla hjá honum tvær vikur í Víðikeri. Ég kom við á Sveins- strönd. hitti þar mann úti. Hann sagðist heita Sigfús. Ég bað hann að vísa mér til vegar 1 Gautlönd sem hann gerði mjög greiðlega. Þar gisti ég um nóttina og er mér minnisstætt hvað Jón tók mér vel. Morguninn eftir var hríðarveður. Ég ætlaði að fara sem leið liggur í Stórás og Engidal og var sú leið vel vörðuð. Þegar ég ætlaði að fara af stað man ég það vel að fram í bæjardyr- unum fór Anna að tala um það við Jón Sigurðsson hvort það væri óhætt að sleppa mér á heiðina í svona hríð- arveðri og hélt hann það. „Mér sýnist á honum að hann muni ekki vera neinn rati,“ sagði hann. Lagði ég nú af stað með vörðunum, og hafði gam- an af að fara með þeim, sá oftast tvær- þrjár í einu. Ég komst í Víðiker um kvöldið og daginn eftir heim með kútholuna. Hrognin voru nú sem skjótast sett í vatnið austur við Höfð- ann í grjótbyrgi sem til þess var gert. Það sást strax um veturinn að hrognin höfðu frjóvgast. fyrst sáust augu og síðan lifandi seiði með kviðpoka.“ Flest árin sem faðir minn dvaldi í Svartárkoti eftir þetta. voru flutt frjóvguð hrogn úr Mývatnssilungi í Svartárvatn. Það kom fljótt í ljós að erfitt var að verja þau fyrir fugli við Höfðann. Það var því búið til nokk- urskonar klakhús við botninn á Myllulæknum og þar voru hrognin látin klekjast út. Þessi drengur sem fyrstur manna bar hrogn á milli vatna á íslandi varð síðar bóndi í Reykjahlíð við Mývatn og var faðir minn, Jón Frímann Ein- arsson, og á ég þessa frásögn ritaða af honum sjálfum. Þetta framtak afa míns gerði Svartárvatn að góðu veiði- vatni og þegar hann flutti í Reykjahlíð 1895 var þar fremur lítil veiði og saknaði hann þá mest góðu veiðinnar úr Svartárvatni. Afi minn var mjög natinn veiði- maður enda átti hann alltaf heima við veiðivötn og hafði öll möguleg ráð til að veiða bæði sumar og vetur, hvort sem var undir ís eða á auðu vatni, og þegar ég hafði aldur til og hann var kominn á efri ár, var ég oft með hon- um við veiðiskapinn. Við fórum vítt og breitt um allan Ytriflóann og áttum þar mörg góð mið, sem ég man vel enn. Frá þessum veiðiferðum okkar afa á ég margar ógleymanlegar minningar. Skrifað í mars 1990. Heimaerbezt 287

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.