Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1990, Síða 23

Heima er bezt - 01.09.1990, Síða 23
svift“ á Hamri í Kaldrananeshreppi (nefndur Kaldaðar- neshreppur í prentun manntalsins). Tæpri öld síðar var aðeins ein Steinríður á landinu. Þorgeirsdóttir. 27 ára. á Gullberastöðum í Lundarrevkjadal. Með henni hverfur mér þetta svipreista nafn. Stígur er fornt norrænt nafn, miklu algengara og eldra í Danmörku heldur en í Noregi, segir Lind. enda mun það austurnorrænt að upphafi og barst síðan til Noregs og ís- lands. Hingað á það að hafa verið komið um 1300. og voru 16 á landinu öllu 1703. Á 19. öld voru fáir. alltaf innan við 10. Einn var í Strandasýslu 1801. Stígur Jónsson. 12 ára. í Hvítuhlíð í Óspakseyrarsókn. Nafnið lifir dágóðu lífi og kenrur fyrir í mörgum ár- göngum um okkar daga. Þeir segja að það hafi merkt göngumaður. En því ekki sá senr reistur er og myndarlegur? Sunnefa, áður Sunnifa, er komið úr gamalli ensku. Fvrri hlutinn er sun = sól. en hinn síðari sama og gift, þ.e. gjöf. Sunnefa er .,só!argjöf“. og ekki bót að því að skrifa það með vaffi. Líklega eru það áhrif frá nafninu Eva, og sennilega einnig að e er komið fyrir /. Nafnið var miklu algengara í Noregi en á íslandi. „sent ock sállsynt pá Island“. segir Lind. Heilög Sunnifa var í Noregi urn 1000, talin þangað flúin af írlandi kristin kon- ungsdóttir. Árið 1703 báru 15 íslenskar konur nafnið Sunnefa (Sunnifa), en hefur síðan heldur fækkað. Árið 1845 voru tíu. þar af ein í Strandasýslu. Sunnefa Jónsdóttir. 53 ára. Norðurfirði í Árneshreppi. Nú sýnist mér nafnið í sókn hérlendis allra síðustu áratugi, skírðar svo fimm 1985. Sörin eða Sören barst til íslands á 19. öld. og voru hér fjórir 1801. Nú erseinni gerðin oftast höfð. Þetta nafn hefur ummvndast úr latínu Severinus, en severus merkir alvarleg- ur. Severinus var dýrlingur. kenndur við Köln. messudagur 23. okóber. Árið 1845 báru sex íslendingar nafn þetta, þar af einn Strandamaður. niðursetningur af erlendunr upp- runa. en fæddur á íslandi. Nafnið lifir bærilegu lífi hér á landi þann dag í dag. Teitur er fornt norrænt nafn og merkir glaður, skylt fornháþýsku zeiz = viðmótsþýður. Upphaflegri merking er þó taíin bjartur. og rótskylt er þetta tír = frægð, goðs- heitinu Tvr og lýsingarorðinu tcer. Teitur var rnikið nafn í ætt Haukdæla. Nafn þetta var nokkuð algengt hér á öldum áður. alls 67 árið 1703. en fór um hríð nokkuð fækkandi. einkum hlut- fallslega. Sjö menn báru þetta nafn í Strandasýslu 1703. en þar týndist það um hríð á 18. öldinni. Nafnið er í sókn í stuttnefnabylgju síðustu áratuga. sjö skírðir Teitur 1985 til dæmis. Valgeir er að líkindum ung samsetning. Engin gömul dæmi finnast um það. hvað þá forn. Árið 1845 var einn maður með þessu nafni, Valgeir Magnússon. átta ára. í Arnkötludal í Tröllatungusókn í Strandasýslu. Hann átti enn engan nafna 1855. En svo sáu menn hvað þetta var gott nafn = „hinn ágæti geir“, og 1910 heitir 51 íslenskur karl nafninu, og hefur fjölgað jafnt og þétt síðan. Nafnið er í talsverðri náð síðustu áratugi. Venedía Jóhannesardóttir, 34 ára, er skráð á Melum í Árneshreppi í Strandasýslu 1845. Ekki finn ég nöfnu hennar hér, hvorki fyrr né síðar, né heldur veit ég hvernig svo framandi nafni hefur skolað á land svo langt í norðri, en margt hétu skúturnar. Nú má vera að nafnið þýði ekki annað en „sú frá Fen- eyjum“, en Danir kalla þann stað Venedig. En fleira kemur til. I enskum bókum er Venelia sagt vera latínun á velska nafninu Gwvneth. Kona að nafni Venetia var fræg í Eng- landi af fegurð sinni. Þórðhjörn hét einn Strandamaður 1801. Hann var ófeðraður, en Guðrúnarson. Sú Guðrún var Eggertsdóttir. og engar vísbendingar um tilkomu nafnsins sem á sér enga hliðstæðu. Þórðbjörn Guðrúnarson átti heima á Þorpi í Fellssókn, fæddur 1799. Niðurstöður 1) Nöfn Strandamanna 1703-1845 voru að miklum hluta af germönskum uppruna, flest norræn og höfðu fylgt þjóðinni frá»öndverðu. Þó lækkaði hlutfall germanskra nafna á tímabilinu, úr 84.5% í 70% meðal kvenna og úr 87.8% í 70.6% meðal karla. 2) Allan tímann voru Guðrún og Jón langalgengust nöfn og héldu vel velli. Sigríður efldist á kostnað Ingibjargar, og Guðmundur skákaði Bjarna. 3) Strandamenn voru sjálfstæðir gagnvart nágrönnum sínum. Miklu minna var þar um skrautleg og skrýtileg nöfn en meðal Isfirðinga, og nöfn af framandi toga, sem voru afar vinsæl orðin með Húnvetningum 1845, voru þá enn ekki í hávegum höfð á Ströndum. Dæmi af því tagi eru Anna, Jóhanna, Lilja, María, Rósa, Jóhann, Jóhannes. Jónas, Kristján og Stefán. 4) Fátt var um ættarnöfn, og um fleirnefni voru Stranda- menn undir landsmeðaltali um miðja 19. öld. 5) Á Ströndum varðveittust betur en víða annarstaðar nokkur gömul nöfn og gild. svo sem Áskell, Hafur, Hallkell, Hreggviður, Kolþerna, Oddhildur og Steinríður. 6) Fátt var meðal Strandamanna um framandi nöfn sem okkur kunna að þvkja skrýtin. Þó koma fyrir Asarías. Lalíla, Pantaleon og Venedía. 7) Nýjar nafngiftir Strandamanna voru í betra lagi en margur sá óskapnaður sem upp skaut á landi hér á 19. öld. Mér sýnist að Strandamenn hafi búið til nöfnin Magndís, Magnlaug, Rósmundur, Sigurbjört, Valgeir og Þórðbjörn. 8) Að öllu samanlögðu voru Strandamenn nafnsparir og nafnvandir 1703-Í845. Heima er bezt 291

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.