Heima er bezt - 01.05.1995, Blaðsíða 5
Hátt stefna
Sigurður Bogi Sævarsson ræðir við
Jóhannes Sigmundsson
í Syðra-Langholti
í Hrunamanna-
hreppi.
Þegar litið er yfir víðáttur Suðurlands og mannlíf þar,
má fullyrða að Hrunamannahreppur hafi allnokkra sér-
stöðu. Óvíða er búsældarlegra en einmitt þar, og mann-
líf þar er einnig nokkuð sérstakt. Framfarahugur
Hrunamanna er meiri en gengur og gerist
víðast hvar annars staðar á Suður-
landi, og eru um það óræk
merki, hvort heldur það er
í landbúnaði, iðnaði eða
ferðaþjónustu, en hið
síðastnefnda er orðið
snar þáttur í atvinnulífi
sveitarinnar. Þar hefur
Jóhannes Sigmunds-
son í Syðra-Langholti
haft nokkra forystu,
en síðustu árin hefur
hann ásamt fjöl-
skyldu sinni staðið að
uppbyggingu ferða-
þjónustu og hesta-
leigu í Syðra-Lang-
holti. Jóhannes er
viðmælandi Heima
er bezt í forsíðu-
viðtalinu að þessu
sinni.
Heimaerbezt 149