Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1995, Blaðsíða 14

Heima er bezt - 01.07.1995, Blaðsíða 14
Kór Laugar- vatnsskólans 1944-45. Stjórnandi Þórður Kristleifsson. Guðmundur lengst til vinstri. 1974 og um hana gilda sérstök lagaákvæði sem falla bráðum úr gildi. I fyrsta lagi átti og á fræðsluskrifstofan að sjá um ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu eftir því sem hún hefur tök á. í annan stað annast hún eftirlit með starf- semi grunnskólanna, sér m.a. um áætlanagerð og úthlut- un stunda til kennslu. Hún hefur séð um allar vinnskýrsl- ur kennara o.m.fl. Þá ber fræðslustjóra að kveða upp úr- skurði í alls konar málum sem upp kunna að koma í skól- um. Við reynum eftir föngum að vera með náms- og kennsluráðgjöf og greiða fyrir fólki, sem þarf á sérstakri þjónustu að halda fyrir börn sín. Stundum þarf að leita í aðra landshluta í því sambandi. Það hefur verið erfitt að fá sérfræðinga til búsetu hér og við höfum því oft þurft að kaupa þessa þjónustu að. A Hornafirði höfum við ver- ið með svolítið útibú frá fræðsluskrifstofunni. Þar er Ragnhildur Jónsdóttir sérkennsluráðgjafi og svo höfum við keypt sálfræðiþjónustu frá Reykjavík í samvinnu við aðrar stofnanir, svo sem Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra, leikskóla, Hornafjarðarbæ og heilsugæsluna. Þessir aðilar hafa unnið saman að því að fá sálfræðing til Hafnar á vissum tímum og hann hefur þjónað þessum stofnunum eftir því sem hann hefur getað. Með nýjum lögum breytist þetta allt. Þá verður sveitarfélögum ætlað að sjá um þetta þannig að það kemur til þeirra kasta að skipuleggja allt upp á nýtt. Sveitarfélög verða þá að gera það á sínum eigin fjárhagslegu forsendum. Fræðsluskrif- stofan getur þess vegna starfað áfram í svipaðri mynd ef menn vilja. Það eru hins vegar engin ákvæði um hana sem stofnun í nýjum grunnskólalögum. Þar er aðeins tek- ið fram að sveitarstjórnum sé skylt að veita þá þjónustu sem fræðsluskrifstofumar hafa verið með og efla hana eftir föngum. Flutningur grunnskólans til sveitarfélaga Ég veit svo sem ekki hvernig það leggst í mig. Það er hægt að færa rök fyrir þessum sjónarmiðum báðum, bæði að það sé á sinn hátt skynsamlegt að heimamenn hafi sem mest um sín mál að segja en á hinn bóginn eru mörg sveitarfélög mjög smá og hafa því eðlilega áhyggjur af framkvæmd mála, einkum er varðar fjármálin. Þá telja margir æskilegt að hafa einn aðila sem getur komið inn í mál þegar vanda ber að höndum. Stofnun eins og fræðslu- skrifstofa er þá kannski betur í stakk búin til að sinna slíku. Eins og þetta er hugsað í nýju lögunum eiga skóla- nefndir og skólastjórar að axla enn meiri ábyrgð en áður. Skólanefndir fá aukið hlutverk, aukna ábyrgð og gert er ráð fyrir þriggja manna foreldraráði við hvem skóla. Þetta er hugsað sem innra eftirlit, heimaeftirlit með starfinu, og á að skapa metnað hjá sveitarstjórnum að gera sem best við sinn skóla. Við skulum vona að svo verði. Kennari, skólastjóri og fræðslustjóri Þetta er allt dálítið líkt, skylt skeggið hökunni. Mér fannst gaman að kenna, ekki síst þegar allt gekk upp, vera í kennslustund með duglegum krökkum þegar allt 230 Heima er bezt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.