Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1995, Blaðsíða 54

Heima er bezt - 01.07.1995, Blaðsíða 54
Hann var elstur og athugull og taldi sig sjálfkjörinn foringja í hópn- um. „Jú, ég held það sé bara stór spýta,“ sagði Bangsi og var ekkert að velta málinu sérstaklega fyrir sér. „Mig grunar að þetta sé eitthvað skrítið,“ sagði ég íbygginn, tók tafar- laust á sprett og ætlaði að verða fyrstur til að athuga fyrirbærið. En það er erfitt að hlaupa langan sprett í sandi, því að til þess þarf mikið þrek. Auðvitað gátu strákarnir ekki hugsað sér að ég, sem var yngstur, yrði fyrstur til að upplýsa leyndarmálið. Þeir hlupu því strax á eftir mér og Daddi, sem var elstur og þolnastur, varð að sjálfsögðu fyrstur að þessu flykki. Við hinir komum lafmóðir rétt á eftir. Það er skemmst frá því að segja, að við urðum allir orðlausir um stund, góndum aðeins hver á annan, því að undrun okkar var svo mikil. Við stóðum þarna frammi fyrir stóru dýri, sem við höfðum aldrei heyrt talað um né séð, dýri sem hlaut þó að vera hvalur, af því að það var svo stórt og með sporð og bægsli. En það, sem okkur fannst furðulegast af öllu, var heljarstór og snúin tönn, sem stóð út úr efra skolti dýrsins. Við höfðum aldrei heyrt talað um að nokkur venjulegur hvalur hefði slíka tönn. Þetta hlaut að vera eitthvert hvalskrímsli, sem enginn hafði nokkru sinni séð fyrr. Við urðum strax sammála um, að nú skipti öllu máli að flýta sér heim og segja hin miklu tíðindi, að við hefðum fundið á rekanum sæskrímsli eitt mikið, sem líktist helst hval, en væri með ógurlega langa tönn úr efra skolti. Það voru móðir strákar og rjóðir, sem komu brátt heim, miklu fyrr en búist hafði verið við. Þeir höfðu hlaupið nær stanslaust alla leiðina. Þegar mesta mæðin var liðin hjá, var ekki dregið að segja fréttirnar. Mun- um við allir hafa lýst dýrinu nokkuð, ef ég man rétt, og borið allvel saman. Móðir mín, sem var ein af þeim, sem á okkur hlýddi, glögg kona og víðlesin, áttaði sig fljótt á lýsingu okkar og kvað þetta vera mundu ná- hval, sérkennilega tegund í flokki tannhvala, sem eingöngu lifði í Norður-Ishafinu. Innan skamms fór svo faðir minn ásamt tveimur vinnumönnum með hest og kerru út á reka til að rann- saka dýrið, og fengum við strákarnir að fara með þeim. Kom þá brátt í ljós, að tilgáta móð- ur minnar var rétt. Þetta var náhval- ur, sem hafði legið lengi dauður í sjó og var því orðinn úldinn og kjöt og spik óætt með öllu. Tönnin var það eina, sem hægt var að hirða. Hún var nokkru síðar send til Reykjavíkur og seld þar fyrir hátt verð. Hef ég fyrir satt, að bein úr náhvals- tönn sé metið til jafns við fílabein. Náhvalur þessi hafði hlotið bana- mein sitt af því, að brotnað hafði fram- an af tönn hans, en það þolir dýrið ekki, þar sem tönnin er hol að innan. Skal ég nú ljúka frásögn minni með því að lýsa þessari sérkennilegu hvala- tegund fyrir ykkur með nokkrum orðum. Náhvalurinn er fremur lítill tann- hvalur, eins og fyrr segir, getur í mesta lagi orðið sex metra langur. Hann er ljós á litinn en flestir hvalir eru annaðhvort alsvartir eða aðeins ljósir að neðan. En það, sem gerir hann sérstæðast- an meðal allra hvala, er stór tönn, sem vex út úr efra skolti karldýrsins og stendur bein fram. A fullvöxnum hval verður tönn þessi tveir til tveir og hálfur metri, eða nálega helming- ur dýrsins á lengd, auk 30 sentímetra langrar rótar, sem stendur í skolt- beininu. Tönnin er gildust við rótina, smágrennist svo fram og endar í mjóum oddi. Að utan eru á henni hryggir og skorur, þannig að hún lík- ist linsnúnum streng. Hún er hol langt fram og rótopin, eins og til dæmis í músum og rottum. Náhvalurinn lifir eingöngu í Norð- ur-íshafinu og heldur sig við ísinn og innan um jaka, meðan nokkur vök er opin. Hann lifir á ýmsum tegundum fiska. Menn héldu fyrr, að náhvalurinn notaði tönnina til að stinga fisk eða sem stjaka til að ýta frá sér ísjökum, en nú munu vísindamenn almennt telja, að karldýrið hafi hana til prýði og þó einkum sem vopn í baráttu sinni um kvendýrin. Þannig ljúkum við þætti okkar í þetta sinn. 270 Heimaerbezt Brynjar Páll Rögnvaldsson: Hún amma mín það sagði mér Sagan afhonum Togga Högnasyni Hann Toggi átti heima á bæ á Suð- urlandi. Toggi var blágrár högni eða fressköttur, eins og sagt er þar í sveit. Það voru fleiri kettir á bænum, en þeir koma ekki við sögu. Einu sinni að vori voru stúlkurnar á bænum og móðir þeirra að þvo ull við stöðuvatn. Þetta var á þeim tíma vors, þegar fuglar voru flestir búnir að verpa. Á leið frá bænum að vatninu var gengið um móa, þar sem grátittlingur hafði gert sér hreiður í þúfu, og nú voru ungar komnir úr eggjunum og gaman var að skoða þá. Stúlkumar töfðu um stund hjá hreiðrinu, og gáfu ungunum soðin hrísgrjón, sem þeir átu með góðri lyst, opnuðu goggana hver sem betur gat. Með í ferðinni var kötturinn Toggi, og dáðist hann sýnilega að ungunum, eins og vel siðaður rosk- inn köttur átti að gera. Svo var hon- um sagt með nokkrum vel völdum orðum, að þessir þúfnabúar væru ekki ætlaðir í kattarmaga, og virtist hann skilja þetta, eins og til var ætl- ast, og treystu stúlkurnar á heiðarleik kattarins. Svo var þá haldið til vinnunnar við ullarþvottinn, ullin þvegin, skoluð og breidd til þerris á þúfur, og Toggi fylgdist með þessu verki og undi vel félagsskap stúlknanna. Svo var það í kaffitímanum, að stúlkur gengu heim og þá var Toggi horfinn. Það var kallað á hann en ekki gaf hann sig í ljós. Þá var geng- ið framhjá hreiðrinu og gægst inn. Hreiðrið var tómt. Þá var að leita að sökudólgnum, sem var vitanlega Toggi. Fannst hann þar rétt hjá á milli þúfna liggj- andi á bakinu, steinsofandi, hrjótandi og belgurinn á honum eins og upp- blásin blaðra. Toggi vaknaði harkalega af værum draumi við skammir og flengingu eiganda síns, og var honum sagt að hypja sig heim og láta ekki sjá sig í nánd eða í félagsskap stúlknanna eft- ir þessar aðgerðir. Ekki varð vart við, að Toggi nærð- ist á smáfuglum eftir þetta, en önnur saga er af Togga á fuglaveiðum, og verður hún að fylgja þessari sögu. Forsagan er sú, að gæsir voru skotnar á bænum, og fékk Toggi þá að finna „smjörþefinn“ og vel það af gæsakjöti. Hann fylgdist vel með, þegar fiðrið var reitt af fuglunum, en það var notað í sængur og kodda. Svo var það einn daginn, að mikið garg heyrðist frá tjörn, sem var fyrir austan bæinn og jafnframt buslu- gangur mikill. Sef og annar gróður óx í tjöminni, svo að ekki var auð- velt að sjá, hvað olli þessum látum. Svo kom Toggi með stokkandarstegg í land, og blautur og slæptur dró hann stegginn á eftir sér, dröslaði honum upp brekku heim að bænum og heim stéttina og framhjá undrandi áhorfendum án þess að skeyta um þá og heim að eldhúsglugga. Þar mjálmaði hann upp í gluggann, líkt og hann vildi tala við húsmóðurina sjálfa, en hún var þá við gluggann. Þama mjálmaði Toggi, eins og hann vildi segja: „Viltu nú ekki matreiða þennan fugl fyrir mig, húsmóðir góð, úr því ég er nú búinn að hafa fyrir því að synda eftir honum og kála honum líka, alveg vopnlaus, og dragast svo með þetta líka litla stykki til þín? Gætirðu ekki gert þetta fyrir mig, því að mér finnst þeir betri steiktir, þess- ir fuglar, síðan ég komst á bragðið. Svo skulum við ekki minnast á smá- unga framvegis. Eg fékk nóg af svo- leiðis hrámeti, að ég nefni nú ekki refsinguna, sem ég fékk af því til- efni.“ Auðvitað var bráðin matreidd fyrir Togga, það er nú annað hvort. Sagan af Hjartadrottningu Hjartadrottningin var nú reyndar svört gimbur, sem enga átti móður- ina. Fljót var hún að læra, hvað hún gat leyft sér að gera og dyntótt var hún. Hún gegndi varla neinum á bænum, ef kaupamaðurinn var ná- lægur, enda mælti hann allt upp í henni. Það var hann, sem gaf henni nafnið, og ekki þurfti „kaupi“ að kalla oft á eftirlætið sitt, því að fljót var hún að gegna honum. Á bænum var talsvert stórt kúabú, og Hjartadrottningin var fljót að átta sig á, hvaðan mjólkin kom, því að mjólkað var á pela handa henni. Einhver mjaltastúlkan kom henni til að sjúga eina kúna, sem nefnd var Gæfa, en hún var lágvaxin og góð- lynd og tók því vel, að lambið væri að sjúga. Hjartadrottingin elti kúna á haga og fylgdi Gæfu eftir. Ókunnuguir horfðu í forundran á lambið elta kúa- hópinn og þá ekki síst, þegar þeir sáu lambið sjúga kúna, eins og hún væri móðir þessarar litlu svörtu, hrokkin- hærðu gimbrar. Ævisaga Hjartadrottningarinnar varð aðeins eitt sumar. Þó gleymdist hún ekki þeim, sem voru henni sam- tíða. Heima er bezt 271
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.