Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1995, Blaðsíða 59

Heima er bezt - 01.07.1995, Blaðsíða 59
prýddir gulum lit. Hetta í gulum lit, fóðruð hvítu klæði, hékk niður með herðunum, og á ermi var ísaumað tákn reglu vonarinnar. Að baki þessum anda komu um 100 unglingar, allir klæddir hvítum eða bláum kuflum, og báru lárviðar- sveiga. Við salarendann var fagurt hásæti, skreytt hvítum blómum og gulu yfirtjaldi. Þegar hann hafði heilsað okkur öll- um, settist stórmeistarinn í hásætið, en unglingarnir skipuðu sér í hálf- hring bak við hann. Eftir stutta þakkarbæn til almáttugs Guðs sneri hann sér að okkur með eftirfarandi orðum: „Bræður mínir, þið sem hingað hafið komið til þess að bjóða vel- komna þessa vegfarendur, sem munu um stund njóta hvíldar, friðar og kærleika í þessu húsi vonarinnar, og þið vegfarandi bræður, sem við allir viðstaddir bjóðum velkomna og heiðrum vegna hinnar miklu baráttu við eigingirni og synd, yður heilsa ég sérstaklega og bið yður að veita mót- töku, sem félagar í hinni stóru reglu vorri, þessu tákni virðingar okkar og heiðurs þess, sem yður hlotnast nú og hafið verðskuldað. Vegna aukinnar hamingju yðar, vegna sigursællar baráttu, biðjum við yður að breiða út armana í bróður- kærleik til þeirra ástvina yðar, sem þið hafið yfirgefið á jörðinni og enn þreyta þar baráttu í dimmum skugga- dölum jarðarinnar. Þar sem þið munuð héðan í frá vinna stærri sigra, háleitari sigra, þá reynið að gefa öðrum stöðugt meira af hinum fullkomna kærleika bræðrafélags vors, en háleitustu og göfugustu meistarar þess eru á himn- um en auðmjúkir félagar þess heyja ennþá baráttu gegn synd hins dimma jarðsviðs. I langri, óslitinni keðju mun hið stóra bærðralag vort ná frá himnum til jarðar á meðan líf þróast þar. Sérhver yðar verður að hugleiða, að þér eruð hlekkir í þessari stóru keðju, samstarfsmenn engla og hinna þjáðu. Eg hvet yður að taka við og varðveita sem tákn þess heiðurs, sem yður hlotnast nú, sígræna lárviðar- sveigana, sem settir eru á höfuð sig- urvegara. I nafni Alheimsguðs, allra engla og bræðrafélags okkar krýni ég sér- hvern yðar og vígi til málefna ljóss- ins, vonar og sannleika.“ Við nýliðar gengum nú fram einn af öðrum, en sumir voru mjög hrærð- ir vegna þessara vingjarnlegu orða og heiðurs. Við knékrupum hinum mikla meistara, sem setti á höfuð okkar lár- viðarsveigana, sem unglingarnir réttu honum, en með því krýndi hann sérhvern okkar með eigin höndum. Þegar sá síðasti okkar hafði verið krýndur, brutust út áköf fagnaðarlæti og húrrahróp frá hinum bræðrunum, sem hófu því næst undurfagran fagn- aðarsöng með slíkum hljóðstefjum og skáldskap, að ég vildi óska, að ég gæti endurtekið hann fyrir ykkur. Að athöfninni lokinni vorum við allir leiddir til borðs af þjónandi bræðrum, og hátíðarmálsverður var fram reiddur. Það mun furða ykkur, hvernig slík veisla fer fram í andaheimi. Ef þið haldið að slíkar veislur, þar sem krásir eru fram bornar líkt og á jörð- inni, eigi ekki við í andaheimi, þar sem andi þurfi ekki næringu, þá skjöplast ykkur. Við þurfum næringu og við neyt- um fæðu, þó að hún sé ekki eins efn- iskennd og ykkar. Engin fæða úr dýraríkinu er fram reidd, ekki heldur neitt sem líkist henni - nema á lægri andasviðum, þar sem þeir geta ekki notið krásanna gegnum lifandi verur og þannig satt líkami sína jarðneskri fæðu. En á þessu sviði eru framborn- ir ljúffengir ávextir, næstum gegnsæ- ir, sem bráðna á tungunni, þegar þeirra er neytt. Einnig er framborið vín, eins og ódáinsveigar, óáfengar, sem eru svalandi og slökkva þorsta. Ekkert af þessari næringu mundi seðja hina matglöðu, en þarna voru einnig á borðum ljúffengar kökur og ljósleitt brauð. í þessari veislu voru slík föng framborin, að ég viðurkenni í eitt skipti fyrir öll, að ég hef aldrei notið bragðbetri næringar en þessara góm- sætu ávaxta, sem voru þeir fyrstu, sem ég hafði bragðað í andaheimi, og mér var sagt, að væru hinir raun- verulegu ávextir af eigin erfiði, en þeir höfðu vaxið og þroskast í anda- heimi í hlutfalli við tilraunir okkar til þess að hjálpa öðrum sálum. Að hátíðarverðinum loknum flutti stór þakkarkór aðra ræðu, en undir hana tókum við allir. Því næst skildumst við að, sumir til þess að heimsækja vini á jörðinni og reyna að gera þeim ljóst, að okkur hafði hlotnast mikil hamingja. Yftr mörgum okkar var því miður grátið eins og yfir glötuðum sálum, sem létust í synd, og það var okkur mikið áhyggju- og sorgarefni, að ekki var unnt að gera þessum jarðarbúum ljóst, hve mikla von við höfðum hlotið. Aðrir bræður hófu samræður við nýja andavini. Eg stefndi hins vegar beint til jarðar til þess að segja ást- vinu minni frá hinum góðu fréttum. Eg fann hana undirbúna undir að fara á fund, sem fékkst við líkamn- ingarannsóknir. Ég titraði af gleði og eftirvæntingu og fylgdi henni þang- að, því að nú vissi ég, að engin ástæða væri lengur til þess að sýna henni ekki andlit mitt. Hún hafði verið svo trygg og þol- inmóð í bið sinni eftir mér, og ekki mundi mynd mín framar valda henni hryggð og kvöl. Hvílík hamingjunótt. Ég stóð allan tímann við hlið henni. Ég snerti hana aftur og aftur. Ég stóð þarna ekki lengur sem hin dulda, dökka vera, sem þurfti að skýla andliti sínu fyrir allra augum. Nú var ég þarna í nýj- um klæðum með nýjar vonir, og upp- risinn lrkami minn og aska fortíðar- innar var nú ekki lengur til angurs og trega. Hvílík gleði beið mín þama á þess- um gleðinnar degi. Ég birtist undr- andi augum hennar, sem störðu inn í mín. Hún þekkti mig þó ekki strax. Heima er bezt 275
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.