Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1995, Side 57

Heima er bezt - 01.07.1995, Side 57
reika sæfari á timburfleka og reynir aftur að leita heim þrátt fyrir þoku og þykkni. Hjálpsamir leiðsögumenn frá andaheimi reyna að hjálpa og leið- beina þeim til hins dásamlega lands, svo að þeir geti snúið aftur barrna- fullir af von og birtu til að veita til hinna þreyttu, stríðandi sálna jarð- lífsins. 12. kafli. Líkamninga- eða holdtekjufundir voru haldnir á tveggja vikna fresti, og af tölu þeirra reiknaði ég út, að þrír mánuðir höfðu liðið, þegar Ahrinzimar sagði mér, að nú yrði ég að búast við stórbreytingum, sem ættu sér stað með sjálfum mér og í umhverfi mínu og myndu þýða fyrir mig flutning á æðra svið. Ymsir kennarar í andaheimi hafa skipt sviðunum á mismunandi hátt, og það er ekkert meginatriði, hvort þau eru metin á sama mælikvarða eða ekki, þar sem mjög lítill munur er á þeim, af því að takmörk þeirra eru óveruleg. Ekki er nauðsynlegt að ákveða takmörk þeirra nákvæmlega, þar eð breytingar frá einu sviði til annars og meðal anda, sem þar lifa, ákvarðast af sjónarmiði hvers og eins eftir þroska hans og þróun. Þannig munu ýmsir segja ykkur, að sjö svið séu til, og það sjöunda sé sá himinn, sem skrifað er um í heilagri ritningu. Aðrir staðhæfa, að sviðin séu tólf og enn aðrir að þau séu fleiri. Sérhvert svið er aftur á móti af- markað af hring, og venjulega eru tólf hringir í hveru sviði. Þó munu jafnvel ýmsir andar hér mæla þá misjafnlega stóra, alveg eins og út- mælingar ykkar jarðarbúa eru mis- munandi eftir löndum, en hluturinn, sem mældur er, mun þó í báðum til- fellum vera sá sami. Eg hef aftur á móti vanist því, að sjö svið séu ofan jarðar og sjö undir, en þá nota ég hugtakið yfir og undir til þess að tákna nálægð eða firð frá hinni miklu sól í sólkerfi okkar. Æðsta ósk okkar á meðan við dveljumst innan jarðsviðanna, er sem mest aðdráttarafl til hennar, en lægsta sviðið skoðum við sem það lægsta og aumlegasta. Allir tilheyra því einhverjum þessara tólf hringa, sem eru tengdir saman svo náið, að við flytjum frá einum til annars án þess að verða þess vör. Hingað til hafði ég dvalið á því sviði, sem kallað er jarðsviðið, en það umlykur jörðina eins og breitt belti og nær niður í andrúmsloft þess. Segja má, að þetta jarðsvið heyri til fyrsta sviði undir jörðinni og þar hafast einkum við andar, sem eru jarðbundnir á einhvern hátt, þar eð þeir geta ekki sokkið niður fyrir áhrif jarðarinnar eða losnað undan áhrif- um hennar. Mér var tjáð, að nú hefði ég losnað svo við aðlögunaráhrif jarðarinnar og sigrast á hvötum mín- um til jarðlífs, að nú stæði ég við þrep æðra sviðs. Flutningur frá lægra sviði til æðra gerist venjulega en þó ekki alltaf í djúpum svefni, eins konar dásvefni, eins og þegar sálin yfirgefur jarð- neskan líkama sinn. Því hærra, sem andinn kemst og verður loftkenndari, gerist þessi breyting oftast í mismun- andi djúpu meðvitundarleysi, þar til tilfærsla frá einu háu sviði til annars fer blátt áfram fram eins og skipt sé um flík, í aðra af fínni gerð, þar sem sálarhjúp er skipt fyrir annan, sem er loftkenndari. Þannig þróast sálin og verður minna efniskennd, þar til hún fer yfir takmörk jarðsviðanna og hverfur inn að sviði sólkerfanna. Þá gerðist það, þegar ég kom aftur úr einni heimsókn minni til jarðar- innar, að ég fann að ég yfirbugaðist af sérstæðum og óvenjulegum drunga, sem lfktist meira lömun en svefni. Ég skundaði til iitla herbergisins rníns í landi rökkursins og varpaði mér niður á svefnbeðinn. Ég sofnaði óðar og svaf löngum draumlausum svefni. í þessu meðvitundarleysi lá ég um það bil í tvær vikur miðað við jarðartíma, en á meðan breyttist sál mín frá vanskapaðri til nýfædds barns, klædd í ljósari, hreinni andleg klæði, en það voru laun baráttu minnar til þess að sigrast á því illa í eðli mínu. Ég fæddist þó ei sem nýfætt bam, heldur sem fullvaxta maður, þar eð reynsla sálar minnar og þekking til- heyrði þroskaðri sál. Þær dauðlegu verur eru til, sem hafa kynnst lífinu svo lítið og þróast þar eftir, að eðlið er svo einfalt og barnalegt, að þær fæðast til anda- heima sem börn, hversu mörg ár, sem þær lifðu á jörðinni. A meðan á þessu fullkomna með- vitundarleysi mínu stóð, höfðu anda- vinir flutt sál mína upp á næsta svið, en þar hvíldi ég í draumlausum svefni, þar til tími minn kom til þess að vakna á ný. Stjörnu (astral) hulstur það, sem ég lét eftir, sáu þjónandi andar um að leystist upp í frumefni jarðsviðsins með sama hætti og gerðist með jarð- neska líkamann eftir dauðann, sem sameinaðist aftur efnasamböndum moldarinnar, þaðan sem hann var upprunninn, en hin ódauðlega sál fluttist upp á við á æðra svið. Þannig þoldi ég á ný annan dauða minn og endurvaknaði til upprisu æðra lífs. 2. kapítuli. MORGUNROÐINN 13. kafli. Þegar ég nú vaknaði á ný í annað sinn úr dauðadái til nýrrar meðvit- undar í andaheimi, fann ég að um- hverfi mitt var mjög aðlaðandi. Loksins sá ég dagsbirtu, þó án sól- skins, en hvílík dásamleg breyting var það ekki frá hinu dapra húmi og dimmu nótt. Ég var í litlu, þægilegu herbergi, sem líktist jarðnesku herbergi, og ég lá í litlu rúmi á dúnbeði. Heima er bezt 273

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.