Heima er bezt - 01.01.1997, Page 9
GUÐMUNDUR GUNNARSSON:
Víðihlíð, íbúðarhús
Hólmfríðar og Sverris.
„Það var efefei
einu sinni rætt um hvað
barnið átti að heita“
Hólmfríður Pétursdóttir. húsfrevia I Víðihlíð í Mvvatnssveit. segir frá.
Efalaust mun flestum Islendingum, sem komnir eru til
vits og ára, kunnugt um tilveru höfuðbólsins Reykjahlíðar í
Mývatnssveit. Fjölmargir hafa átt þar leið um á ferð sinni
um hringveginn og þó nokkrir minnast þess að haft erfyrir
satt að hún sé stœrst íslenskra jarða að flatarmáli, ámóta
og Arnessýsla í heilu lagi.
Fyrir rúmum 100 árum, nánar tiltekið vorið 1895,fluttu
þangað frá Svartárkoti í Bárðardal, hjónin Einar Friðriks-
son og Guðrún Jónsdóttir og 9 börn þeirra. Stórjjölskylda
þessi hugði á meira svigrúm til athafna og betri afkomu-
möguleika með umskiptum þessum og tjaldaði þar heldur
ekki tii einnar nœtur. Enn þann dag í dag er jörðin setin af
afkomendum þeirra en miklu fleiri eru þeir nú er atvinnu
hafa af ferðaþjónustu hvers konar en hinir sem hefðbund-
inn búskap stunda.
Eftir þau Einar og Guðrúnu tóku við búi Jjögur börn
þeirra, systirin Guðrún Friðrika og bræðurnir Sigurður,
Illugi Arinbjörn og Jón Frímann sem var elstur þeirra
systkina, fœddur 1871, dáinn 1950. Elstur barna Jóns Frí-
manns og Hólmfríðar Jóhannesdóttur, konu hans, fædd
1868, dáin 1932, var Pétur, fæddur 1898, dáinn 1972.
Hann byggði nýbýlið Reynihlíð út úr heimajörðinni 1942
og varð landsþekktur maður sem bóndi þar, gestgjafi og
vegaverkstjóri og nánast þjóðsagnapersóna þegar í lif-
anda lífi. Kona hans var Kristín Þuríður Gísladóttir frá
Presthvammi í Aðaldal, fœdd 1895, dáin 1984 og eignuð-
ust þau fimm börn: Gísli, var fæddur 1922, dáinn 1950,
Jón Ármann, fæddur 1924, Hólmfríður, fœdd 1926, Snœ-
björn, fœddur 1928 og Helga Valborg, fædd 1936. Úr
þessum barnahópi er það dóttirin, Hólmfríður, sem segir
hér á eftir frá þáttum úr œvi sinni, einkum uppvaxtarárum
í Reykjahlíð og störfum að félagsmálum.
Heima er bezt 5