Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.1997, Qupperneq 11

Heima er bezt - 01.01.1997, Qupperneq 11
Ur ættfræðinni Jón Einarsson Hólmfríður Jóhannesdóttir Reykjahlíð Gísli Sigurbjarnason Helga Sigurveig Helgadóttir Presthvammi, Aðaldal t T Pétur Jónsson Reynihlíð Kristín Þuríður Gísladóttir ♦ Gísli, Jón Ármann, Hólmfríður, Snæbjörn, Helga Valborg íKasthvammi 1927 við hús sem Pétur Jónsson byggðiþar. Frá hægri: Pétur Jónsson, Þuríður Gísladóttir, heldur á Hólmfríði, dóttur þeirra, María Magnúsdóttir frá Höfða í Þverárhlíð, Hannes Jónsson, bróðir Péturs og mágur Maríu, Bergsteinn Gunnarsson, Kasthvammi. Eitt af því, sem var hér við gamla bæinn, var stór kálgarður og var ná- kvæmlega sama skipting í honum og öllu öðru, til helminga og svo einn sjötti og tveir sjöttu. Þar voru rækt- aðar rófur og eitthvað fleira. Hér kom garðyrkjukona, Svava Skapta- dóttir á árunum milli 1930 og 1940 og leiðbeindi um ræktun matjurta en í því efni var mamma mín mjög dug- leg og áhugasöm. Faðir minn hlóð grjótgarð kringum hitaholu, skammt frá Stórugjá, og þar voru ræktaðar gulrætur í fleiri ár. Fyrst þegar ég man eftir þá voru ræktaðar kartöflur við Helgavog þar sem nú er dælustöð Kisiliðjunnar. Þar var hiti í jörðu og þær spruttu vel en líka arfi og það var ekkert voðalega gaman að reyta arfa þar. Síðar var farið að rækta kartöflur í Bjamarflagi og þá var gulrótaræktunin flutt þangað. Mér finnst vanta eitthvað ef ekki er til heimaræktað grænmeti og svo trúir maður því náttúrlega að það sé miklu betra. Það er allt annað að borða rófú beint utan úr garði heldur en þá sem keypt er í búð. Þama var einnig rabarbari og í blómagarðinum voru rifsrunnar í kring og af þeim þó nokkur uppskera af berj- um til sultugerðar. Um sjálfsþurftarbúskap fyrri ára Mikill er sá munur sem orðinn er á lífi og tilveru fólks nú og því, sem búið var við á mínum uppvaxtarárum. Nú tala menn um sjálfsþurftarbúskap og þetta var það. Sjálf- sagt þótti að nýta allt sem hægt var að nýta. Hér voru tínd fjallgrös og notuð í mat, silungsveiði var stunduð og reynt að geyma af aflanum til þess tíma er ekkert veiddist. Eggjatakan var veruleg búbót því það var heilmikið magn af andareggjum sem hér náðist en ekki kann ég að nefna þar neinar tölur. Ýmsar aðferðir voru notaðar til að geyma þau. Þau voru soðin niður sem kallað var, sett í sjóðandi vatn í ca. 10 sekúndur og vafinn síðan inn í pappír og geymd á köldum stað. Þannig gátu þau varðveist allt fram yfir jól. Einnig voru þau geymd í einhverskonar kalkupp- lausn og fleira var prófað. Þessar aðferðir áttu við glæný egg en þau sem ekki voru alveg ný, þau voru gerð úldin. Þá voru þau lögð í ösku, urðu kæst og þannig eru þau hreint lostæti. Oft var kvöldmatur á sunnudögum heima- bakað, gott rúgbrauð og úldin egg eins og þau nefndust, Heima er bezt 7

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.