Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.1997, Side 13

Heima er bezt - 01.01.1997, Side 13
Foreldrar Hólmfríðar, Þuríður Gísladóttir og Pétur Jónsson. Myndin tekin 1921. 1 sextugsafmæli Péturs Jónssonar 1958. Hann og Þuríður með börnum, tengdabörnum og barnabörnum. Aftasta röð, talið frá vinstri: Sverrir Tryggvason, Jón Armann Pétursson, Snœbjörn Pétursson, Arnþór Björnsson. Önnur röð: Hólmfríður Pétursdóttir, Guðný Halldórsdóttir, eiginkona Snæ- bjarnar, Heiga Valborg Pétursdóttir. Börnin fremst á myndinni: Auður Armannsdóttir, Sigrún Sverrisdóttir, Héðinn Sverrisson, Anna Sigríður Arnþórsdóttir, Þórunn Snæbjörnsdóttir og Þuríður Snæbjörnsdóttir. Vildi ekki láta leiða mig Ferming mín er mér ekki sérstaklega eftirminnileg. Eg hygg að fermst hafi 12 börn í allt hér í sveitinni, þar af vorum við 5 í Reykjahlíðarkirkju, fjórar telpur og einn piltur. Til er mynd af okkur tekin í blómagarðinum og þætti víst ekki merkileg hvað myndgæði snertir en gaman hefi ég af að skoða hana núna. Maður var náttúrlega orðinn mjög merkilegur og stór þegar eftir fermingu því að þá mátti ganga í ungmennafélagið og gerði ég það þegar í stað, það var sjálfsagður hlutur. Þegar ég fór á einn fyrsta fund minn þá fór ég á skautum suður yfir vatn. Þá kom frændi minn, Jón Pétur Þorsteinsson, sem mér fannst vera karl, þá kominn fáein ár yfir þrítugt, og bauðst til að leiða mig. Ég var nú ekkert á því, sagði ég mundi aldrei vilja láta leiða mig, mér þætti miklu betra að skauta bara sjálf. Þá sagði hann: „Þú átt einhverntíma eftir að verða fegin að láta einhvern leiða þig.“ En ég komst aldrei upp á það á skautum að láta leiða mig. Þá var mjög líflegt starf í ungmennafélaginu. Fundir voru haldnir, þrír eða tjórir á vetri og starfað að ýmsu öðru. Upp úr 1940 fór félagið að fá íþróttakennara í stuttan tíma í einu. Kennd var leikfimi, glíma, handbolti og fótbolti að ógleymdri skíðaíþróttinni. Hér kom Björgvin Júníusson frá Akureyri til að kenna svig, en þá átti enginn svigskíði hér. Það var leyst með því að negla stóran nagla aftarlega á skíðin, síðan var klipptur hringur úr bílslöngu sem settur var á naglann og fram fyrir fótinn. Þetta var býsna gott. Hitt var verra að svo mikil hláka kom að allur snjórinn fór, en þá var drifið í því að srníða kylfur og farið á skauta á vatninu og Björgvin kenndi íshokkí. Leiklist var ekki á döfinni hjá félaginu þessi ár, áður en ég fór að heiman, öðruvísi en að smá stykki voru færð upp á félagsfundum. Skólalok í skugga Heklugoss Þegar ég var 17 ára fór ég að heiman í skóla. A þessum árum var Handíða- og myndlistarskólinn stofnaður í Reykjavík og ég hafði mikinn áhuga á að komast í mynd- listamám. Vinkona mín fór þangað í nám og ýtti mjög undir mig í þessu efni. En þetta var á stríðsárunum og þeim leist nú ekkert á það foreldrum mínum að sleppa mér einni suður í Reykjavík. Reyndar var upphaf frekari skólagöngu að ég var á unglingaskóla á Skútustöðum lík- leg, í þrjá mánuði og var það skemmtilegur tími. Þar var kennari Þorgerður Benediktsdóttir, nú húsfreyja á Græna- vatni. Síðan lá leiðin í Laugaskóla þar sem ég var einn vetur, 1943 - 44 í yngri deild. Skólinn var þá í tvo vetur, Heima er bezt 9

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.