Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.1997, Síða 22

Heima er bezt - 01.01.1997, Síða 22
að gefa einkunn fyrir hana. En ég tók afrit af minni ritgerð, og á það enn. - Og svo hefur þú verið útskrifaður með pomp og pragt? - Það var heilmikil veisla, þegar prófin voru búin, með hamingjuósk- um og tilheyrandi. Skólastjóri ein- hvers heymleysingjaskóla norður í landi var prófdómari. Hann hélt ræðu og bauð okkur velkomin í stétt heym- leysingjakennara. Enn fremur talaði hann um kennaraskortinn og sagðist geta tekið okkur öll að sínum skóla. En þá rak hann allt í einu augun í Is- lendinginn, ræskti sig, sló botninn í ræðuna i snatri og fór svo að fá sér meira kaffi og tertu. - Varst þú ekki orðinn magnaður norskumaður, eftir svona strangt nám, sem allt fór ffam á því máli? - Það var komið ffam á sumar og ég búinn að vera þama allan veturinn. Þá var það einhvem dag, að ég sat inni í borðstofu og var að spjalla við gamla konu, sem var þar gestkomandi. Hún átti heima einhvers staðar norður í landi. Við töluðum lengi saman. Þá stendur sú gamla upp og segir: „Jæja, það var nú gaman að hitta Is- lending. Ég hef lesið um þetta allt saman. Veit allt þetta. En það, sem mér finnst einkennilegast af öllu, er hvað málið hefur lítið breyst, allar þessar aldir sem liðnar em síðan Norðmennimir tóku sér búsetu á Is- landi. Ég skildi bara töluvert af því sem þú varst að segja.“ (Okkar á milli sagt, þá var ég að tala norskuna mína!) Svona reynsla hefur ákaflega holl áhrif á menn, ef það hefur komist loft í þá. Menn verða liprari í umgengni fyrir vikið. Þegar hér var komið spjalli okkar Guðmundar Einarssonar forðum, tók við langur og ítarlegur kafli um kennslu heymleysingja á Islandi og námsaðstöðu þeirra. Sá hluti þáttarins verður nú felldur niður, og ber eink- um þrennt til þess. í fyrsta lagi má búast við að það efni höfði til tiltölulega fárra lesenda. I öðm lagi er næsta líklegt að margt, sem þar er sagt, sé nú úrelt orðið, áratugum síðar. Og í þriðja og síðasta lagi, þá var greinin þegar orðin fyllilega eins löng og ætlast er til að þessir þættir mínir í Heima er bezt séu. Því fellum við nú talið, þar sem Guðmundur hefur sett fram sína bráð- snjöllu kenningu um lækningu við monti, þótt undirritaður telji reyndar rangt af honum að heimfæra hana upp á sjálfan sig, því að hógværari mann í viðræðu þykist ég sjaldan hafa fyrir hitt. Hlaðvarpinn framhald af bls. 4 færði þeim heim sanninn um það, var hið hátæknivædda Flóastríð. En það er í þessu eins og öðm, að fátt víkur af velli nema annað þróaðra komi í staðinn. Og það hemaðartól, sem nú virðist vera að taka við af skriðdrekanum, em geysiöflugar og vel útbúnar þyrlur, svo kallaðar árásarþyrlur. Þær em ótrúlega fullkomin hemaðartæki, sem að margra áliti, ollu talsverðum straumhvörfum i Flóastríðinu. Landher íraka og skrið- drekar, vom nánast berskjaldaðir gagn- vart þeim. Þær geta „hangið“ í loftinu á bak við hávaxin tré eða hæðir, flogið eft- ir gilskomingum og dalverpum, síðan birst mjög skyndilega, eins og „skrattinn úr sauðarleggnum,“ í orðsins fyllstu merkingu, og skotið hámákvæmum tölvu- og leysigeislastýrðum sprengjum og flugskeytum á hvaða skotmark sem er, úr örguggri fjarlægð og fylgsni. Flug- eiginleikar þeirra em með eindæmum miklir. Hverri þyrlu stýra tveir menn, annar sér um að fljúga en hinn að skjóta. Það er því nokkuð ljóst að tækniþró- unin er komin nokkuð áleiðis frá vopna- búnaði Sturlungaaldarinnar, en spum- ingin er hvort þróun mannsandans hafí farið fram í sama mæli. Það leyfí ég mér að efast um og hygg að, ef grannt er skoðað, þá séu innviðir mannsins býsna mikið enn við sama heygarðshomið. Það, sem hefur breyst, er umhverfið og áhöldin til þess að drepa með. Sýnilegar ástæður herleiðangra stórveldanna líka. Flóastríðið snerist einna helst um olíu, og ömgglega munu ný tilefni reka á fjörur manna fyrr en varir. Hreint vatn t.d., nálgast það óðfluga að verða gulls ígildi og telja sumir að baráttan um það verði síst minni en olíuna áður. Hafa menn nefnt ána Níl, sem dæmi um eina fyrstu hugsanlegu uppsprettu alvarlegra átaka vegna vatnsyfirráða. Hún rennur í gegnum a.m.k. þrjú ríki, sem byggja framfæri sitt gríðarlega mikið á nýtingu vatns úr henni. Eins og annars staðar, fer fólki hratt fjölgandi í þessum lönd- um, mengun eykst og um leið vatnsþörf þeirra. Þau lönd, sem liggja nær upptök- um árinnar, em auðvitað í betri aðstöðu en þau sem fjær em. Aukin nýting þjóð- anna nær upptökum árinnar geta því hafl ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir þær sem fjær em. Það þarf ekki mikla skarpsýni til þess að sjá að þama gæti verið í hleðslu púðurtunna, sem ekki er að vita hvenær springur. Og það er víðar í heiminum sem hreint vatn er síður en svo orðið sjálf- sagt mál. Það er því kannski tómt mál að tala um að það eigi nokkum tíma fýr- ir innbyggjurum þessarar jarðar að liggja að sitja á sátts höfði. Þannig er a.m.k. útlitð í dag. En þó er ekki víst að öll von sé úti. Þrátt fyrir að styrjaldir hafi jafnan verið einn mesti hörmungavaldurinn í sögu mannkynsins, þá verður því ekki neitað að þær hafa jafnframt orðið til þess að tækniþróun og uppfmningar mannsins hafa tekið stökk fram á við. Og hemað- amppfinningar leiða stundum til fram- fara í umhverfi og aðstöðu alþýðunnar eftir á. Hver veit nema að með aukinni þekkingu og tækni verði komist á það stig að jafna megi afkomumöguleika þjóða, óháð stað og aðstæðum. Það er ef til vill bjartsýni að ætla það, en er ekki ágætt að enda á þeim nótum eftir alla þessa styrjaldarrýningu. Með bestu kveðjum, Guöjón Baldvinsson. 18 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.