Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.1997, Síða 24

Heima er bezt - 01.01.1997, Síða 24
 F MERKU FOLKI Sigurður Gunnarsson, frv. sfeólastjóri: Ágrip úr ævi lausamanns Hinn 19. febrúar árið 1783, mœtti vera minnisstœður dagur í sögu íslenskrar al- þýðu. A þeim degi var hún svipt gömlum frelsisrétti, sent hún hafði notið ífjórar aldir, að vísu með mörgum skilyrðum og hömlum, réttindum til lausamennsku. Þessi réttur var íþvífólginn að menn af alþýðu- stétt, er ekki áttu jarð- nœði, þurftu ekki að vista sig hjá bólföstum bœndum, en máttu vera lausamenn, voru sem sagt ekki bundnir til ársvistar, en gátu ráðið sig hjá öðrum svo lengi sent þá lysti og ferðast unt landið að vild í atvinnuleit. ndir lokin voru skil- yrðin orðin svo ströng fyrir lausamennsku, að stappaði nærri banni. Mönnum var skylt að eiga tíu hundruð í tíund- arbærri eign, en það svaraði tíu kýr- verðum, ef þeir máttu að lögum njóta fríðinda lausamennskunnar. En nú var lausamönnum engin náð sýnd lengur. Þeir skyldu einfaldlega afnumdir úr þjóðfélaginu. Hin konugnlega tilskipun frá febrúar 1783 mælti svo fyrir, að upp frá þessu yrðu allir íslendingar af bændastétt, sem ekki áttu jarðnæði, skyldir til að vista sig hjá búandi bændum. Sýslumönnum og hrepp- stjórum var falið að hafa nákvæmt eftirlit með mönnum, senr ætluðu að smeygja sér undan lagaákvæðum um lausamennskuna, útvega þeim jarð- næði eða koma þeim í vist. Þeir, sem ekki vildu þekkjast þetta, skyldu sæta nokkurra mánaða tukthúsvist. Og nú hófst eltingarleikurinn við lausamennina. Sá eltingarleikur stóð í marga áratugi, misjafnlega harður eftir því hvernig valdsmönnum landsins stóð hugur til þessara frjálsu fugla íslenskra vinnustétta, sem flögruðu úr verstöð í kaupavinnu, stunduðu prang þegar svo bar undir, eða þegar verst gekk, gerðust at- vinnuflakkarar. Þegar líða tók á fyrri helming 19. aldar, virðist hafa slaknað nokkuð á eftirliti með lausamönnum, það kom í ljós að þeir voru i raun og veru nauðsynlegt vinnuafl í mörgum hér- uðum landsins og sumir sjávarút- vegsbændur héldu hlífiskildi yfir þeim. Sú refsing, sem lausamenn sættu, er vildu ekki fara í vist, hýð- ingin, var einnig orðin öndverð rétt- arvitund íslensks almennings. Þó kom það fyrir að lausamenn voru hýddir um miðja öldina, en þá höfðu þeir venjuleg eitthvað fleira til saka unnið. Svo var um fægasta flakkara íslands á 19. öld, Sölva Helgason. Sennilega er íslenski flakkarinn jafngamall íslensku þjóðfélagi. Hann hefur flakkað um Islandssöguna í þúsund ár, hinn síðasti í stéttinni mun hafa dáið á þriðja tug þessarar aldar. I hinum Qölmenna og fjöl- breytta flokki íslenskra flakkara hafa verið einkennilegir og sérstæðir ein- staklingar, margir þeirra gæddir lista- mannseðli, sem fékk ekki notið sín í íslensku fásinni, og því urðu þeir ut- anveltu í þjóðfélagi, sem þekkti ekki aðrar stéttir en bólfasta bændur og vistráðin hjú. Þeir, sem ekki gátu fest rætur í annarri hvorri þessara stétta, urðu umrenningar, flakkarar. Þeir fóru um landið þvert og endilangt, þekktu Island í öllum veðrum þess, á sumri og vetri, unað hins íslenska vors, aftök gadds og hríðar. Þeir voru fátækustu menn þessarar fátæku þjóðar, en þó fluttu þeir auð ævintýr- 20 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.