Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.1997, Qupperneq 26

Heima er bezt - 01.01.1997, Qupperneq 26
að mestu kyrrt, því að ekki hafðist upp á Sölva. En snemma árs 1850 skýtur honum upp í Húnavatnssýslu og er hann þá handtekinn sem skjótast og sendur til Lárusar Thorarensen, sem kemur honum boðleið til Eggerts Briem og heldur sýslumaður nú lög- reglurétt í Skjaldarvík, 18. mars 1850. Ári eftir að farið er að hreyfa þessu máli, stendur Sölvi Helgason loksins frammi íyrir dómara sínum og yfir- valdi Eyjafjarðarsýslu. Þessi umrenn- ingur, einu sinni hýddur í Snæfells- nessýslu, hafði ungur misst foreldra sína og alist upp hjá vandalausum. Snemma hafði „heimurinn,, birst hon- um sem fjandsamlegt afl og embættis- mennimir í landinu, geistlegir og ver- aldlegir, vom fulltrúar þessa ijand- samlega afls. Frá því að Sölvi Helga- son komst á legg, hafði hann reynt að leika á þessa veröld og valdsmenn hennar, eins og hann hafði vitið til. Að sjálfsögðu var hann jafnan sá, sem var minni máttar í þessum leik og því hafði honum lærst að beita andstæð- ing sinn alls konar brögðum. En eink- um og sér í lagi hafði hann frá æsku brynjað sig yfirburðahroka, hervoð- um lítilmagnans. Því fór fjarri, að hann héti Sölvi, skagfirskur strákur úr Sléttuhlíðinni og alinn upp í sveit. Nei, Sólon hét hann Fílómates, og þegar mikils þótti við þurfa, bætti hann við nöfnum frægra heimspek- inga, Spinósa og Hegel hét hann einnig. Slíkur maður hræðist hvorki sýslu- mann né prest, og í fyrstu yfirheyrsl- unni í Skjaldarvík notar hann tæki- færið til að gera Daníel Jónsson á Kvíabekk að hlægilegu dusilmenni. Sölvi skýrir dómaranum frá því, að sumarið 1847 hafi hann verið um hálfs mánaðar tíma í kaupavinnu hjá séra Daníel og fengið í kaup 2 fjórð- unga af smjöri og eina spesíu. Hann kvaðst hafa orðið var við að prestur væri ákaflega tortrygginn og meðal annars hafi hann sagt sér að hann þyrði ekki a bjóða mönnum inn í bæ af ótta við að þeir tækju eitthvað frá honum. Þannig gerir flakkarinn í upphafi réttarhaldanna, séra Daníel að hjart- veikum og þjófóttum vesaling, sem sjái eftir hverjum smáhlut úr búi sínu. Sölvi segir dómaranum að vegna þjófhræðslu klerks hafi hann beðið hann að skoða í föggur sínar, áður en hann fór frá Kvíabekk, og hafi klerkur gert það í votta viður- vist. En hvað var að segja um buxurnar, sem voru upphaf þessa þjófnaðar- máls? Jú, Sölvi segir að prestur hafi lán- að sér stagbættar og næstum ónýtar buxur til að vera í við heybindingu í tvo daga, en þessar buxur hafi hann lagt á kvörn í bæjardyrunum og vís- að prestskonunni til þeirra. Hann þverneitar að hafa stolið buxunum og synjar með öllu fyrir stuld á bók- um og ræðum prests. Að vísu hafi hann átt þessar bækur, Árnapostillu og yfirsetufræðarann, en bækur þess- ar hafi hann keypt af Agli Jónssyni, bókbindara í Reykjavík. Báðar þess- ar bækur hafi hann síðar selt, postill- una Jóni bónda á Fögrubrekku í Hrútafirði. Bókin hafi verið bundin í alskinn, kjölurinn gylltur en dálítið snjáður, á saurblað hafi nafn hans verið skrifað smáu letri. Áður en hann seldi Árna postill- una, hafði hann haft hana í geymslu hjá nokkrum bændum, ásamt fleiri bókum og lesið á hana húslestur fyrir heimafólkið, þegar hann var þar á ferð. Þegar Sölvi hafði lokið framburði sínum um postilluna, sýndi dómarinn honum ræðu þá er séra Daníel hafði tekið úr belg hans í Fagraskógi. Sölvi kannaðist ekkert við ræðu þessa, seg- ir að hann eigi svo margar skrifaðar skruddur með ýmsum rithöndum, að hann þekki þær ekki allar, en hafi hún verið tekin þar úr belgnum, sem hann vill þó ekki kannast við, meðan það sé ósannað, þá hafi hann eignast hana einhvers staðar annars staðar en á Kvíabekk. Helst dettur honum í hug að hann hafi fengið ræðuna í skiptum fyrir guðsorðabók, sem hann man ekki lengur hver var, hjá Halli Halls- syni á Vatnsenda í Olafsfirði. Dómarinn, Eggert Briem, fær ekki hvikað Sölva frá framburði sínum. Það er bersýnilegt að honum þykir málið nauða ómerkilegt, lýsir yfir því í réttinum, að hann telji það ekki svo vaxið að setja þurfi hinn grunaða í varðhald. Briem sýslumaður er að horfa í kostnaðinn og segir Sölva að hverfa aftur til Skagaljarðar á meðan verið sé að leita frekari upplýsinga um málið. Það þarf að yfirheyra vitni á ljarlægum stöðum til að kanna framburð sakbomingsins og það kostar miklar bréfaskriftir og ferða- lög. Yfirheyrslum var því frestað til vorsins. Hinn 27. maí var málið tekið fyrir að nýju í Arnamesi. Bóndinn í Fagraskógi og vinnumaður hans, votta það að séra Daníel hafi tekið upp, í þeirra viðurvist, úr belg Sölva, skrifaða ræðu hljóðandi upp á allra- heilagramessu. Þegar Sölva er sagður framburður þeirra, játar hann að það geti vel ver- ið að ræða þessi hafi verið tekin úr belg sínum á nefndum stað í fyrra- vetur, en kveðst ekki viðurkenna það sem sannleika, nema vitnin staðfesti það með eiði sínurn. Dómarinn er ekki seinn á sér og lætur bæði vitnin sverja eið að framburði sínum í við- urvist Sölva. En allt kemur fyrir ekki. Sölvi neitar eftir sem áður, að hann viti hvernig ræða þessi hafi komist í föggur sínar. Það stoðar heldur ekki neitt, að Hallur Hallsson á Vatnsenda ber það, að hann hafi aldrei haft nein bókaskipti við Sölva, hvorki fyrr né síðar, svo að ekki get- ur allraheilagramessuræðan verið frá honum komin. Sölvi staðhæfir eftir sem áður að hafa skipst á bókum við Hall. Þá er staðhæfing gegn staðhæf- ingu og enn sem fyrr er það yfirskil- vitlegur leyndardómur, hvernig ræða prestsins á Kvíabekk hefur horfið ofan í belg Sölva Helgasonar í Fagraskógi. Þá koma buxur séra Daníels aftur til sögunnar. Prestur segir að engin 22 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.