Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.1997, Side 28

Heima er bezt - 01.01.1997, Side 28
Ingvar Björnsson: Kobfearnir við feabyssuna stóðu r g hygg að flest okkar hafi verið með þeim ósköpum gerð, þá er við vorum ung að árum, að taka eitt- hvað fyrir, sem við ákváðum að snerta aldrei hendi við á hverju sem gengi. Hvað þetta eina var hefur auð- vitað verið einstaklingsbundið. Eg tók til dæmis all snemma, eða fyrir fermingu, í mig þá óáran að ákveða í eitt skipti fyrir öll, að ég taldi, að aldrei skildi ég koma nálægt matar- gerð af neinu tagi. Auðvitað átti þessi ákvörðun sér ákveðnar forsend- ur en þeirri skýringu kýs ég að sleppa hér. I stað matargerðar þótti ég vel lið- tækur við öll húsverk, t.d. hreint ágætur í innanhúss þrifum, iaginn við að þvo þvott á þvottabretti, eins og þá tíðkaðist, og er fram liðu stundir kunni ég utan að öll handtök við bleyjuskipti og þess háttar störf. Og eitt sinn, er konan mín gat ekki vegna vinnu sinnar, mætt í sauma- klúbb sinn, sem auðvitað þurfti endi- lega að vera á okkar heimili það kvöldið, hljóp ég í skarðið og tók á móti meðlimum hins virðulega klúbbs og það með svo miklum stæl að þá er samkomunni loksins lauk, kom fram sú spurning hvort ég væri ekki til í að gerast meðlimur í klúbbnum. Svona var nú það. Mér sýnist að mér hafi tekist í um það bil 33 ár að forða mér frá allri matargerð, eða frá árinu 1931, þegar ég vann þetta heit og allt til jóladags 1964, en þá líka brustu öll bönd og það reyndar svo skyndilega að líkja mætti því við jarðskjálfta eða ein- hverjar aðrar náttúruhamfarir. Það er einnig annað atriði, sem ég tel mig verða að gera hér skil, áður en ég get byrjað á hinni eiginlegu ffásögn, sem á að verða uppistaða þessarar „dagsönnu ritsmíðar,,, en það er sú vissa mín, að sá, sem einu sinni ánetjast sjómennsku, og þar á ég bæði við far- og fiskimennskuna, verður aldrei laus við á ánetjun aftur, í það minnsta ekki til fulls. Sjálfur átti ég í mörg ár, eftir að ég hætti til sjós, erfitt með að fara niður að höfn án þess að vera lengi á eftir, haldinn útþrá. Eg man líka eftir því að flestir hinna eldri skipsfélaga minna, sögðu ævinlega, um það bil sem hver sjó- ferð var hálfnuð, að nú ætluðu þeir sko að hætta þessu puði og að enginn skildi geta dregið þá um borð í skip framar. Auðvitað meintu þeir þetta þá stundina, sem það var sagt, en jafnframt vissum við að þessir sömu menn yrðu fyrstir til skips í næstu ferð, enda fór það venjulega svo. Þegar eftirfarandi frásögn hefst, standa málin svo að ég var hættur til sjós og kominn í fasta vinnu í landi. Hjá vini mínum, Magnúsi Kr. Jóns- syni, var sömu sögu að segja. Auð- vitað vorum við alls ekki enn orðnir sáttir við þessar breytingar en þar sem við töldum þær endanlegar reyndum við að láta það mál kyrrt liggja- Við vinimir áttum það báðir sam- eiginlegt að hafa unnið í vél þeirra skipa er við höfðum verið á. Ég hafði að mestu verið í farmennskunni, þ.e.a.s. verið á flutningaskipum en Magnús hafði haldið sig við fiski- skipin og þá að mestu leyti sem vél- stjóri á togurum. Við vorum sem sagt báðir hættir til sjós og hin bláu höf heyrðu minning- unni til. Tíminn leið og við gengum hvor sinn veg og hittumst aðeins af og til. Eitt sinn, er leið að jólum, bankar Magnús upp á hjá okkur hjónunum og kveðst eiga erindi við mig. „Það er nefnilega svoleiðis,,, segir hann, „að togarinn Narfi, sem ég var síðast skipa á, er að koma að landi eftir langa útivist og á nú að sigla með aflann til Grimsby, en brytinn ætlar að fá sér frí á meða skipið siglir og 24 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.