Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.1997, Blaðsíða 30

Heima er bezt - 01.01.1997, Blaðsíða 30
málið síðan til umræðu og það var langt liðið á nóttina milli fyrsta og annars jóladags, er við höfðum kom- ist að einhverri niðurstöðu. Við sam- þykktum þarna þá sjálfsögðu vinnu- skiptingu að Magnús réði og stjórn- aði allri matargerð en ég sæi um eld- un hafragrautsins, sem var fastur morgunliður, syði eggin og þvæði upp öll ílát, sem óhreinkuðust og snerist í kringum yfirkokkinn, svo sem tími leyfði. Til áréttingar þessari samþykkt þá mun ég hér eftir í þessari frásögn, al- farið nefna yfirkokkinn „meistara,, Magnús. Það sakar svo sem ekkert að geta þess hér að vinnutími okkar meistara Magnúsar, í þessum túr, var nánast allir þeir sólarhringar sem þessi eftir- minnilega sjóferð stóð yfir. Þrátt fyrir allt annríkið höfðum við samt oftast tíma fyrir snjallar hugs- anir og hugmyndir. Til dæmis, er við sátum með bækur okkar í fanginu upp í koju fyrsta kvöldið, datt mér snjallræði í hug, er ég laumaði að meistara Magnúsi með eftirfarandi orðum: „Nú hafa skipverjar kastað stríðs- hönskum sínum að okkur, meðal annars með því að hunsa kaffið okk- ar. Væri þá ekki eðlilegt að við sýnd- um klærnar, eða kannski öllu hldur kænsku. Við gætum til dæmis tekið upp það nýmæli að ég, sem háttvirtur annar kokkur, staðsetti mig inn í borðsal við hverja máltíð og tæki all- an matinn, sem þú lætur í lúguna á milli eldhúss og borðsalar og bæri hann fyrir hvern og einn.„ Til skýringar verð ég að geta þess að fram að þessu höfðu skipverjar alltaf orðið að sækja matinn í nefnda lúgu en aldrei fengið hann réttan upp í hendurnar. „Þessi aðferð,,, sagði ég, „mun hafa tvær góðar hliðar. Hin fyrri er sú, að þetta sýnir einstaka virðingu okkar íyrir áhöfninni en hin síðari að þar sem ég verð alltaf á stjákli meðal mannanna, verður erfitt fyrir þá að mynda heildrænt samsæri gegn okk- ur.„ Þessa brellu leist meistara Magnúsi vel á og bætti því líka við að þó við hefðum þurft að gefa fiskum hafsins fyrsta kaffið okkar, skyldum við sjá til þess að alltaf væri nóg á könunni, því eins og við vissum báðir, þá væri kaffi flestum sjómönnum ómissandi. Hvað við fundum út úr matseðli næsta dags er nú fallið í gleymsk- unnar djúp, hins vegar man ég vel að þetta tiltæki okkar kom öllum mjög á óvart, ásamt því að matargerð okkar mun hafa tekist furðu vel. Eftir kvöldverð annars dags jóla gekk sjálfur skipstjórinn að skipverjum ásjáandi, inn í eldhúsið til okkar, þakkaði fyrir góðan mat og spurði síðan hvort ekki væri eitthvað á könnunni. Fékk hann sér góðan sopa og rabbaði nokkra stund við okkur. Strax næsta morgun fóru menn svo að laumast í kaffisopa hjá okkur og þar með má segja að ísinn hafi verið brotinn á milli okkar og áhafnar. Því miður tel ég mig verða að geta þess hér að einn áhafnarmeðlimur, sem átti við erfitt skap að stríða, mun öðrum fremur hafa ýtt undir andófið gegn okkur. Við slógum hins vegar vopnin úr höndum hans með „rólegu og æðrulausu fasi okkar.,, Afram var haldið, dagamir komu og fóm án þess að skilja eftir sig minnis- stæð atriði, svona að mestu. Þó eru nokkur sem eftir sitja og ætla ég nú að reyna að tylla þeim hér á blað. Þar sem svo margir helgiírídagar voru í þessari sjóferð, þá fór ekki hjá því að við meistari Magnús, þyrftum alltaf að áliðnum degi, að velta vand- lega fyrir okkur máltíðum næsta dags, því auðvitað varð alltaf að breyta sem mest til frá dögunum áður. Það lá í hlutarins eðli að í hverja máltíð elduðum við svo mikið að ekki kæmi til þess að einhver teg- undin gengi alveg upp. Þetta leiddi svo til þess að fyrr en varði vorum við komnir með heilmiklar birgðir afganga af besta mat og auðvitað vissum við ekki hvað gera skildi við þessar krásir. Að henda matnum kom ekki til greina og að geyma hann til lengdar í frystinum var heldur ekki gott. Það kom svo óvænt upp í koll annars hvors okkar að næsta dag, sem var einhver hinna lægra settu helgidaga ferðarinnar, skyldum við bara hafa „kalt borð,„ og elda með því einhvern góðan graut og þá myndi þetta birgðavandamál leysast af sjálfu sér. Þetta var nokkuð snjöll hugmynd en hins vegar fáránleg, því við viss- um það báðir að slíkt tíðkaðist alls ekki um borð í fiskiskipum. Og þó okkur væri það vel ljóst að með þessu gætum við steypt okkar ný- fengnu velgengni hjá áhöfininni í hættu, ákváðum við að slá til. Næsta dag höfðum við svo „kalt borð.„ Það fór ekki framhjá okkur að áhöfninni kom þessi nýja matartíska mjög á óvart en hún tók henni þó möglunar- laust. Þetta varð svo til þess að við endurtókum þetta rétt undir ferðalok- in. Loks kom að því að næsti dagur var hvorki helgi- né frídagur, heldur einn þessara fáu hvunndaga, sem buðu upp á óbreyttan mat. Er við lögðum á ráðin um mat dagsins, ákváðum við að sjóða kjöt og búa til kjötsúpu. En nú komumst við að því að jafnvel venjulegur dagur bauð upp á vangaveltur um matargerð. Það kom nefnilega í ljós að ég vildi hafa haframjöl í súpunni en meistari Magnús vildi hafa hana úr hrísgrjón- um, eins og venja mun vera til sjós. Hér hafði einhver leiðindapúki læðst inn í klefa okkar og slíkum tökum náði hann á okkur að hvorug- ur gaf eftir. Þegar allt virtist svo komið í óefni, stakk ég upp á því að við skyldum sættast á helminga- skipti, það er, hafa jafn mikið af hrís- grjónum og haframjöli í súpunni. Endir þessarar þrætu varð sá að við sættumst á helmingaskiptin og þar með lauk þeirri einu rimmu, sem við áttum í í þessari sjóferð. Súpuna suðum við og bárum fram næsta dag og enginn virtist hafa neitt við hana að athuga og borðuðu allir hana með bestu lyst. Næst þegar við svo hugðumst hafa kjötsúpu kvisaðist það út að slíkt 26 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.