Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.1997, Blaðsíða 31

Heima er bezt - 01.01.1997, Blaðsíða 31
stæði til, enda þá svo komið að áhafn- armeðlimimir voru orðnir heima- gangar í eldhúsinu og voru jafnvel famir að lyfta upp lokum þeirra potta er á eldavél stóðu og fylgdust þeir grannt með öllum okkar gerðum. Kom þá einn skipverjanna til mín og spurði ósköp blátt áfram hvort við vildum nú ekki sjóða kjötsúpu eins og hún mamma hans sauð alltaf. Þó að þessi spurning kæmi mér í opna skjöldu, því auðvitað vissi ég engin deili á þeirri súpu, lét ég sem ekkert væri en sagðist skyldu gera mitt besta í málinu og útkoman varð sú að við notuðum einfaldlega sömu uppskrift og síðast og fengurn við hrós fyrir gæði þeirrar súpu. Sem hjálparkokkur þurfti ég að sinna ýmsum sérverkefnum, sum þeirra upptalin hér að framan, en eins er þó eftir að geta: Eggjasuð- unnar hvern morgun. I því efni kom sér vel að ég rnundi að ég hafði ein- hvern tíma heyrt móður mína eða einhverja aðra mæta konu, segja að egg skyldi sjóða í þrjár mínútur. Eftir þessu heilræði fór ég svo nákvæm- lega að frá því að suða kom upp í eggjapottinum og þar til mínúturnar þrjár voru liðnar, heyrði ég hvorki né sá neitt annað en tifið í úri mínu og ferðalag sekúnduvísins um skífu þess, hina þrjá hringi, en þá þreif ég pottinn af eldavélinni og lét hann í skolvaskinn, sem var hinumegin í eldhúsinu og að því loknu spurði ég svo meistara Magnús hvort hann hefði verið að segja eitthvað. „Ja,„ sagði hann, „þar sem það eru nú víst einar þrjár mínútur síðan ég ávarpaði þig, þá hefi ég nú gleymt hvað ég vildi sagt hafa.„ Það, sem konr mér alltaf jafn mikið á óvart, var að þegar ég bar fram eggin, sem ég taldi vera fremur linsoðin, reyndust þau svo harðsoðin að engu tali tók. Þau voru svo hörð að hefði mér nú sinnast svo við ein- hvern að ég hefði gripið til þess óyndisúrræðis að henda í hann eggi, þá hefði hann hlotið stórskaða af. Það er svo ekki fyrr en þrem til íjórum dögum fyrir heimkomuna er ég átta mig á því að hyggilegast væri kannski að hella heita vatninu úr pottinum, strax að suðu lokinni og setja kalt vatn í þess stað á eggin, að áhöfnin fékk loks linsoðin egg. Svo einfold var þá lausinin á þessu slæma vandamáli. Er skipið var um það bil að leggja frá bryggju í Grimsby, kom stýrimað- ur í eldhúsið til okkar með tvo eða þrjá unglingsstráka er höfðu orðið strandaglópar af öðrum togara. Bað hann okkur að gefa þeim eitthvað að borða og þar sem þeir yrðu með okk- ur heim þá gætu þeir sem best aðstoð- að okkur við eldhúsverkin. Auðvitað fengu drengirnir að borða eins og þá lysti en þar sem þeir voru svo illa til fara og óhreinir, af- þökkuðum við alla aðstoð þeirra og vildum þá sem minnst í kringum okkur hafa, svo að koma þeirra þýddi einfaldlega fleiri svanga munna til að fæða. Lestun farms okkar drógst nokkuð fram á kvöld, svo að ekki var látið úr höfn fyrr en eftir kvöldmat hins síð- asta dags ársins 1964, eða nánar til- tekið 31. desember. Þar sem við meistari Magnús vor- um skráðir áhafnarmeðlimir á b/v Narfa, áttum við eins og aðrir, rétt á svonefndum verslunarfrídegi, en vegna anna við matargerðina höfðum við ekki konrið því við að taka þetta frí fyrr en á gamlársdag en honum skiptum við á milli okkar þannig að ég fór strax að morgni og kom aftur um hádegi en þá fór meistari Magnús í sitt frí og kom aftur um kvöldmat- arleyti. Auðvitað höfðum við komið við á einhverjum krám og fengið okkur ei- lítið smakk af hinum rómaða enska bjór. Það má því vera að hugsun okk- ar hafi verið eitthvað á reiki er við stigum aftur um borð, en hvað um það, við lukum öllum okkar verkum með sóma. Er við höfðum lokið við allan frá- gang eftir kvöldmatinn, segir meist- ari Magnús við mig: „Á morgun er nýársdagur og þá eru alltaf hafðar svínakótelettur í að- almat. Nú skalt þú fara að sofa og taka síðan morgunverkin í fyrramálið en ég fer og lem blessaðar kótelett- umar til og verð því eitthvað seinni til vinnu í fyrramálið.,, Allt gekk þetta eftir, en þar sem meistari Magnús var frá fyrri tíð, sem vélstjóri, vanur að slá fast þegar slá þurfti, komst sú saga á kreik að svo hefði hann slegið kóteletturnar fast að í þeim hefði ekki fundist ein einasta arða af beini, en þær hefðu svo sem verið ágætar fyrir því. Þegar áhöfnin kvaddi okkur á ytri höfninni í Reykjavík, var okkur vel þökkuð góð frammistaða í matar- gerðinni, en báðir fengum við góð- látleg skot í gamansömum tón. Einn sagði við mig að þeir í áhöfn- inni hefðu velt því lengi fyrir sér hvernig stæði á því að ég væri svona mikið fyrir grjóthörð egg. Annar sagði við meistara Magnús: „Þetta er nú í fyrsta skipti sem ég fæ kótelettur án beina.,, Síðan vorum við blessaðir í bak og fyrir. Til gamans langar mig að ljúka þessum pistli með örfáum orðum um b/v Narfa. Hann var einn fárra 1000 lesta fiskitogara, sem keyptir voru til landsins, að því er ég held, um 1960. Eigandi hans var Guðmundur Jör- undsson útgerðarmaður. Þar sem heilfrysting fisks var byrj- uð á erlendum botnvörpungum þá varð það að ráði að setja heilfrysti- búnað í b/v Narfa og varð hann eins konar tilraunaskip á þessu sviði. Held ég að tilraunin hafi gengið all vel, en sá hængur var þó hér á að vegna tæknilegra vandamála var ekki hægt að þýða aflann upp hérlendis, heldur varð að sigla með hann allan til Grimsby og þýða hann þar. Þær þúsund krónur, sem ég átti að greiða í fæði í ofangreindri ferð, voru aldrei nefndar. Hins vegar var meistari Magnús beðinn um að koma til mín fullum launum frá útgerðinni fyrir aðstoðarkokkaríið og á þeim orðum lýkur þessari ítarlegu matar- gerðarfrásögn er fram fór á bláum bylgjum Atlantshafsins. nffiízj Heima er bezt 27

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.