Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.1997, Qupperneq 40

Heima er bezt - 01.01.1997, Qupperneq 40
Ingibjörg Sigurðardóttir. Framhah sagan n margt skipast á ann- an veg en ætlað var. Róshildur hvarf aftur til námsins. Og tíminn rann sitt skeið. Sigurhátíð lífsins fór í hönd. Róshildur hélt heim í páskaleyfi. Hún tók sér far með strandferðaskipi til Súlnavogs. Daginn sem skipið kom til hafnar í Voginum, geysaði norðan stormur með hörkufrosti og snjór var yfir öllu. Róshildur vissi að faðir hennar ætlaði að sækja hana niður í Súlna- vog og hún átti að bíða hans hjá móðursystur sinni, sem búsett var í Voginum, yrði hann ekki mættur við komu skipsins. Jónas í Efstabæ var ekki mættur við landgönguna og Róshildur fór ekki heim til móðursystur sinnar. Hún gat ekki beðið. Stefnan var tekin frá skipshlið beina leið hingað upp að Ármótum. En því miður var Róshildur ekki búin þeim skjólfatnaði, sem skyldi, til ferðarinnar. Bitur froststormurinn náði brátt að læsa sig um veikbyggð- an líkama hennar hvernig sem hún reyndi að herða gönguna. Mún mætti loks föður sínum spölkorn hér fyrir neðan Ármót, þá orðin illa haldin af kulda og þreytu. Róshildur fór ekki lengra en hingað. Faðir hennar sneri einn heim að Efstabæ. Að kvöldi var hún kontin með háan sótthita og sár- an sting fyrir brjósti. Læknirinn í Súlnavogi var kallaður til hennar með hraði. Hann gaf upp þá sjúk- dómsgreiningu að um bráða lungna- bólgu væri að ræða. Sigurbjartur fór með lækninum niður í Súlnavog og sótti meðul. En þau komu ekki að gagni. Róshildur lést í faðmi Sigurbjarts, að morgni næsta dags. Þvílíkur harmur! Frá þeim degi hefur Sigurbjartur aldrei orðið sami maður og áður. Viku síðar var Róshildur jarðsett í kirkjugarðinum hér á Ármótum. Fyrstu vikurnar eftir jarðarförina sat Sigurbjartur langtímum út í kirkjugarði við gröf Róshildar, yfir- kominn af söknuði. Við hjónin vor- um farin að hafa þungar áhyggjur af heilsu hans. En svo fór hann smá- saman að ná tökunr á sorg sinni og komast í andlegt jafnvægi að nýju. Þá lagði hann kapp á það að gróður- setja sem fegurst blómskrúð á leiði unnustu sinnar. Vinnan við þetta virt- ist veita honurn dýrmæta hugsvölun og er kom fram á vorið var leiðið orðið sannkallaður blómareitur. Sig- urbjartur hefúr frá umræddu vori haldið þessu mjög vel í horfinu á tíð gróandans ár hvert, eins og þar væri fólgin gleði hans öll. Sumarið eftir lát Róshildar, kom hingað gamall vinur og skólabróðir mannsins míns, þekktur fjöllistamað- ur, og dvaldi hér í sumarleyfi sínu. Hann gaf sig oft á tal við Sigurbjart og fór vel á með þeim. Þau kynni leiddu til þess að Sigurbjartur fékk vitneskju um það að gesturinn væri meðal annars mikilhæfur myndskeri. Þennan listamann réði Sigurbjartur til þess að gera fyrir sig minnismerki á leiði Róshildar. Krossinn er sann- kallað listaverk og hefur vakið aðdá- un margra, sem átt hafa leið um kirkjugarðinn hérna. En hve mikla fjármuni listaverkið kostaði, hefur Sigurbjartur látið liggja í þagnargildi. Frú Marella hefur lokið frásögn sinni og einnig að undirbúa kirkjuna fyrir hátíðarmessu gamlárskvöldsins. - Jæja, þá er þessu lokið góða mín, segir hún og brosir til Glóeyjar Mjallar. - Eg þakka þér fyrir hjálp- ina. 36 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.